Morgunblaðið - 21.04.2012, Side 12

Morgunblaðið - 21.04.2012, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012 www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu ÖGRANDI, HRÍFANDI OG ALGERLEGA ÓMÓTSTÆÐILEG N Ý L J Ó Ð A B Ó K EFTIR BRAGA ÓLAFSSON Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Listmunauppboð í Gallerí Fold Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012 Ó liG .Jóhannsson Ó liG .Jóhannsson Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalista- manna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. mánudaginn 23. apríl, kl. 18, í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Verkin verða sýnd laugardag 11–17, sunnudag 12–17, mánudag 10–17 STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Veiði hófst í Litluá í Kelduhverfi 1. apríl síðastliðinn, eins og víðar þar sem von er á sjóbirtingi, og segir Sturla Sigtryggsson í Keldunesi, sem þjónustar veiðimenn, að veiðin hafi verið frábær í vor þrátt fyrir kulda. Þar hjálpar hvað áin er heit, 16 til 17 gráður þar sem hún renn- ur úr Skjálftavatni. „Það hefur verið mikil veiði, búið er að skrá um 720 fiska til bókar. Það er mjög gott,“ segir Sturla. „Síðasta holl fékk 163 fiska á fjór- um dögum, þar af voru 105 yfir 50 cm, 40 yfir 60 cm og 10 yfir 70 cm. Sá stærsti í vor mældist 77,5 cm. Þetta er bæði sjóbirtingur og stað- bundinn urriði og einnig nokkuð af bleikju.“ Sturla segir veiðina aldrei fyrr hafa verið þetta góða í Litluá í apr- íl. „Í fyrra veiddust 380 fiskar en þrátt fyrir að veitt hafi verið fleiri stangardaga þegar núna en allan aprílmánuð í fyrra, þá er nærri helmingi meiri veiði á stöng í ár og fiskurinn er verulega stærri.“ Í Litluá hefur verið veitt og sleppt í tólf ár en þótt stofnarnir hafi styrkst síðan hafa heimamenn aldrei séð jafn stórt stökk hvað stærð fiskanna varðar og nú. „Við merktum 20 fiska í mars og hefur aðeins einn þeirra veiðst. Það segir manni að töluvert sé af fiski í ánni, fyrst aðeins einn merktur hafi verið meðal þessarra 720. Þetta lít- ur mjög vel út,“ segir Sturla og spáir frábærri veiði nyrðra þegar tekur að hlýna, en lofthitinn hefur varla farið yfir tvær, þrjár gráður yfir hádaginn í apríl. Kropp í vötnum við borgina Veiði hófst í Elliðavatni á sum- ardaginn fyrsta. Færri veiðimenn þöndu sig þar í morgunkulinu en oft gerðist hér áður fyrr, þegar vatnið var opnað fyrir veiði 1. maí, en þeir sem reyndu fengu sumir stöku fiska þegar aðeins hlýnaði er leið á morguninn. Voru það einkum urriðar sem gáfu sig enda hefur bleikju fækkað stórum í Elliða- vatni. Kropp hefur líka verið í Vífil- staðavatni, sem var opnað til veiði 1. apríl, og segja þeir sem stunda vatnið að bleikjan hafi verið heldur viljugri að taka nú en síðustu vor. Þá sé hún ágætlega haldin. Samkvæmt vefmiðlinum Vötn og veiði hafa veiðimenn fengið ágæt skot á sjóbirtingsslóðum í Vestur- Skaftafellssýslu undanfarið en aug- ljóst sé að sá fiskur sem enn sé í án- um sé að færa sig neðar í þær og undirbýr að ganga til hafs. Ágæt veiði hefur þannig verið í Eldvatni, í Tungulæk og Steinsmýrar- vötnum, og fyrstu hollin í Vatna- mótunum veiddu vel. Veiðimenn í síðasta holli þar urðu hinsvegar lít- ið varir en það þarf ekki að þýða að fiskur sé horfinn af svæðinu, enda birtingurinn dyntóttur með af- brigðum. Stangaveiðifélag Reykjavíkur, sem er langfjölmennasta veiðifélag landsins, hefur flutt skrifstofu sína af Háleitisbraut í Elliðaárdalinn, á Rafstöðvarveg og er þar rétt við kunnan veiðistað, Ullarfoss í Elliða- ánum, og í næsta nágrenni við laxa- teljarann sem margir kíkja á á sumrin. Haft er eftir Bjarna Júl- íussyni formanni SVFR að félagið sé nú „komið heim“ en það var stofnað árið 1939 til þess að taka Elliðaárnar á leigu og hafa þær verið kjölfestan í starfi félagsins allar götur síðan. Segir veiðina í Litluá hafa verið frábæra  720 fiskar hafa verið færðir til bókar í Litluá í mánuðinum  „Nærri helmingi meiri veiði á stöng í ár“  Kropp í opnun Elliðavatns  Ágæt sjóbirtingsveiði hefur verið í Vestur-Skaftafellssýslu Morgunblaðið/Einar Falur Silfraður Vænn sjóbirtingur í höndum veiðimanns við Tungulæk. Eins og síðustu ár hefur veiðin þar verið góð. Í kjölfar heldur meiri snjóalaga á hálendinu í vetur en mörg undanfarin ár, og hlýinda af og til sem hafa valdið hressilegri bráðnun, mun talsvert meira vatn hafa safnast saman í uppi- stöðulónum á hálendinu en síð- ustu ár. Þannig mun vatnsborð vera hátt bæði í Hálslóni og Blöndulóni sem þýðir að árnar geti mögulega farið fyrr á yfir- fall en síðustu sumur. Að sögn kunnugra kann það að hafa áhrif á laxveiðina í Blöndu og Jöklu í sumar. Mikið í uppi- stöðulónum LÓNIN FYRR Á YFIRFALL? Nýtt veiðihús, sem fengið hefur nafnið Fossgerði, er að rísa við Selá í Vopnafirði. Húsið er 960 fermetrar og í því eru tíu stór herbergi fyrir veiðimenn auk góðrar aðstöðu fyrir starfsfólk. Það stendur spölkorn neðan við Selárfoss og er útsýni úr öllum herbergjum yfir kunna veiði- staði í ánni. Þegar veiði hefst í Selá 22. júní verður húsið fullbúið og tekið í notkun. „Þetta verður glæsileg aðstaða og húsið er á mjög fallegum stað við ána,“ segir Orri Vigfússon hjá Veiði- félaginu Streng ehf. Arkitekt húss- ins er Helgi Hjálmarsson og verk- fræðihönnun annaðist Gústaf Vífilsson á Teiknistofunni Óðins- torgi. Heimamenn og fyrirtæki á Vopnafirði hafa séð um alla vinnu við byggingu hússins. Strengur hefur gert nýjan tíu ára samning um Selá en áin hefur verið í fremstu röð síðustu ár. „Vegna þessa langa samnings geta veiðimenn nú sett nöfn sín á óskalista um veiðitíma í ánni næstu árin,“ segir Orri en Strengur hefur verið með ána síðan 1965. „Okkur hefur tekist glæsilega vel að margfalda veiðina í ánni. Við höfum gert margt gott, keypt upp netin á staðnum og samningar við Færeyinga um netauppkaup hafa líka hjálpað. Þá hafa verið byggðir fiskvegir sem hafa opnað 43 kíló- metra fyrir laxinn upp um alla á þar sem hann getur hrygnt.“ Orri segir að við nágrannaánna í Vopnafirði, Hofsá, sem Strengur er einnig með, standi einnig yfir fram- kvæmdir. Verið er að endurnýja her- bergi og bæta aðstöðuna í veiðihús- inu. Nýtt veiðihús að rísa við Selá Fossgerði Nýja veiðihúsið, sem sést hér á tölvumynd, er hið glæsilegasta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.