Morgunblaðið - 21.04.2012, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
ÖGRANDI, HRÍFANDI OG
ALGERLEGA ÓMÓTSTÆÐILEG
N Ý L J Ó Ð A B Ó K
EFTIR BRAGA ÓLAFSSON
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
Ó
liG
.Jóhannsson
Ó
liG
.Jóhannsson
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalista-
manna svo og fjöldi frábærra verka gömlu
meistaranna.
mánudaginn 23. apríl, kl. 18,
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Verkin verða sýnd laugardag 11–17, sunnudag 12–17, mánudag 10–17
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Veiði hófst í Litluá í Kelduhverfi 1.
apríl síðastliðinn, eins og víðar þar
sem von er á sjóbirtingi, og segir
Sturla Sigtryggsson í Keldunesi,
sem þjónustar veiðimenn, að veiðin
hafi verið frábær í vor þrátt fyrir
kulda. Þar hjálpar hvað áin er heit,
16 til 17 gráður þar sem hún renn-
ur úr Skjálftavatni.
„Það hefur verið mikil veiði, búið
er að skrá um 720 fiska til bókar.
Það er mjög gott,“ segir Sturla.
„Síðasta holl fékk 163 fiska á fjór-
um dögum, þar af voru 105 yfir 50
cm, 40 yfir 60 cm og 10 yfir 70 cm.
Sá stærsti í vor mældist 77,5 cm.
Þetta er bæði sjóbirtingur og stað-
bundinn urriði og einnig nokkuð af
bleikju.“
Sturla segir veiðina aldrei fyrr
hafa verið þetta góða í Litluá í apr-
íl. „Í fyrra veiddust 380 fiskar en
þrátt fyrir að veitt hafi verið fleiri
stangardaga þegar núna en allan
aprílmánuð í fyrra, þá er nærri
helmingi meiri veiði á stöng í ár og
fiskurinn er verulega stærri.“
Í Litluá hefur verið veitt og
sleppt í tólf ár en þótt stofnarnir
hafi styrkst síðan hafa heimamenn
aldrei séð jafn stórt stökk hvað
stærð fiskanna varðar og nú.
„Við merktum 20 fiska í mars og
hefur aðeins einn þeirra veiðst. Það
segir manni að töluvert sé af fiski í
ánni, fyrst aðeins einn merktur hafi
verið meðal þessarra 720. Þetta lít-
ur mjög vel út,“ segir Sturla og
spáir frábærri veiði nyrðra þegar
tekur að hlýna, en lofthitinn hefur
varla farið yfir tvær, þrjár gráður
yfir hádaginn í apríl.
Kropp í vötnum við borgina
Veiði hófst í Elliðavatni á sum-
ardaginn fyrsta. Færri veiðimenn
þöndu sig þar í morgunkulinu en
oft gerðist hér áður fyrr, þegar
vatnið var opnað fyrir veiði 1. maí,
en þeir sem reyndu fengu sumir
stöku fiska þegar aðeins hlýnaði er
leið á morguninn. Voru það einkum
urriðar sem gáfu sig enda hefur
bleikju fækkað stórum í Elliða-
vatni. Kropp hefur líka verið í Vífil-
staðavatni, sem var opnað til veiði
1. apríl, og segja þeir sem stunda
vatnið að bleikjan hafi verið heldur
viljugri að taka nú en síðustu vor.
Þá sé hún ágætlega haldin.
Samkvæmt vefmiðlinum Vötn og
veiði hafa veiðimenn fengið ágæt
skot á sjóbirtingsslóðum í Vestur-
Skaftafellssýslu undanfarið en aug-
ljóst sé að sá fiskur sem enn sé í án-
um sé að færa sig neðar í þær og
undirbýr að ganga til hafs. Ágæt
veiði hefur þannig verið í Eldvatni,
í Tungulæk og Steinsmýrar-
vötnum, og fyrstu hollin í Vatna-
mótunum veiddu vel. Veiðimenn í
síðasta holli þar urðu hinsvegar lít-
ið varir en það þarf ekki að þýða að
fiskur sé horfinn af svæðinu, enda
birtingurinn dyntóttur með af-
brigðum.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur,
sem er langfjölmennasta veiðifélag
landsins, hefur flutt skrifstofu sína
af Háleitisbraut í Elliðaárdalinn, á
Rafstöðvarveg og er þar rétt við
kunnan veiðistað, Ullarfoss í Elliða-
ánum, og í næsta nágrenni við laxa-
teljarann sem margir kíkja á á
sumrin. Haft er eftir Bjarna Júl-
íussyni formanni SVFR að félagið
sé nú „komið heim“ en það var
stofnað árið 1939 til þess að taka
Elliðaárnar á leigu og hafa þær
verið kjölfestan í starfi félagsins
allar götur síðan.
Segir veiðina í Litluá hafa verið frábæra
720 fiskar hafa verið færðir til bókar í Litluá í mánuðinum „Nærri helmingi meiri veiði á stöng í
ár“ Kropp í opnun Elliðavatns Ágæt sjóbirtingsveiði hefur verið í Vestur-Skaftafellssýslu
Morgunblaðið/Einar Falur
Silfraður Vænn sjóbirtingur í höndum veiðimanns við Tungulæk. Eins og síðustu ár hefur veiðin þar verið góð.
Í kjölfar heldur meiri snjóalaga
á hálendinu í vetur en mörg
undanfarin ár, og hlýinda af og
til sem hafa valdið hressilegri
bráðnun, mun talsvert meira
vatn hafa safnast saman í uppi-
stöðulónum á hálendinu en síð-
ustu ár. Þannig mun vatnsborð
vera hátt bæði í Hálslóni og
Blöndulóni sem þýðir að árnar
geti mögulega farið fyrr á yfir-
fall en síðustu sumur. Að sögn
kunnugra kann það að hafa
áhrif á laxveiðina í Blöndu og
Jöklu í sumar.
Mikið í uppi-
stöðulónum
LÓNIN FYRR Á YFIRFALL?
Nýtt veiðihús, sem fengið hefur
nafnið Fossgerði, er að rísa við Selá í
Vopnafirði. Húsið er 960 fermetrar
og í því eru tíu stór herbergi fyrir
veiðimenn auk góðrar aðstöðu fyrir
starfsfólk. Það stendur spölkorn
neðan við Selárfoss og er útsýni úr
öllum herbergjum yfir kunna veiði-
staði í ánni. Þegar veiði hefst í Selá
22. júní verður húsið fullbúið og tekið
í notkun.
„Þetta verður glæsileg aðstaða og
húsið er á mjög fallegum stað við
ána,“ segir Orri Vigfússon hjá Veiði-
félaginu Streng ehf. Arkitekt húss-
ins er Helgi Hjálmarsson og verk-
fræðihönnun annaðist Gústaf
Vífilsson á Teiknistofunni Óðins-
torgi. Heimamenn og fyrirtæki á
Vopnafirði hafa séð um alla vinnu við
byggingu hússins.
Strengur hefur gert nýjan tíu ára
samning um Selá en áin hefur verið í
fremstu röð síðustu ár. „Vegna þessa
langa samnings geta veiðimenn nú
sett nöfn sín á óskalista um veiðitíma
í ánni næstu árin,“ segir Orri en
Strengur hefur verið með ána síðan
1965. „Okkur hefur tekist glæsilega
vel að margfalda veiðina í ánni. Við
höfum gert margt gott, keypt upp
netin á staðnum og samningar við
Færeyinga um netauppkaup hafa
líka hjálpað. Þá hafa verið byggðir
fiskvegir sem hafa opnað 43 kíló-
metra fyrir laxinn upp um alla á þar
sem hann getur hrygnt.“
Orri segir að við nágrannaánna í
Vopnafirði, Hofsá, sem Strengur er
einnig með, standi einnig yfir fram-
kvæmdir. Verið er að endurnýja her-
bergi og bæta aðstöðuna í veiðihús-
inu.
Nýtt veiðihús að rísa við Selá
Fossgerði Nýja veiðihúsið, sem sést hér á tölvumynd, er hið glæsilegasta.