Morgunblaðið - 21.04.2012, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.04.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012 Sjálfbært vatnafar og blágrænar lausnir í Urr- iðaholti verða til umræðu á málþingi sem haldið verður í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar Ís- lands í Urriðaholti mánudaginn 23. apríl kl. 15- 17. Meðal málflytjenda er Sveinn Þórólfsson, pró- fessor við umhverfis- og vatnafræðideild norska vísinda- og tækniháskólann (NTNU) í Þránd- heimi. Erindi Sveins nefnist „Um sjálfbært vatna- far í nútíð og framtíð.“ Á málþinginu verður einn- ig rætt um þær lausnir sem farnar hafa verið í þessum efnum í Urriðaholti. Með þeim er tryggt að öll úrkoma fari niður í jarðveginn og út í Urr- iðavatn, til að halda lífríki þess og vatnsbúskap í jafnvægi. Að málþinginu standa Garðabær, NTNU, Háskóli Íslands, Urriðaholt og Háskólinn í Reykjavík. Skráning á málþingið fer fram gegnum tölvupóst til gardaba- er@gardabaer.is Sjálfbært vatnafar og blágrænar lausnir Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn sum- ardaginn fyrsta. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum. Stjórn húss Jóns Sig- urðssonar hefur umsjón með hátíð- inni með fulltingi forseta Alþingis og forsætisnefndar. Verðlaunin í ár hlýtur dr.phil. Pétur M. Jónasson, vatnalíffræð- ingur og prófessor emiritus. Hann hefur með framúrskarandi fræði- störfum á sviði vatnalíffræði í Dan- mörku og á Íslandi lagt fram mikil- vægan skerf til að styrkja vísindasamstarf þjóðanna, segir í tilkynningu. Verðlaun Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, afhendir Pétri verðlaunin. Pétur M. Jónasson hlýtur verðlaun Jóns Sigurðssonar Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskrift- inni „Garðrækt á átjándu og nítjándu öld“ í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugar- daginn 21. apríl. Málþingið hefst kl. 13.30 og því lýkur um kl. 16.30. Flutt verða fjögur erindi. Er- indin flytja: Ingi Sigurðsson pró- fessor, Jóhanna Þ. Guðmunds- dóttir sagnfræðingur, Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir sagn- fræðingur og Jónatan Her- mannsson tilraunastjóri. Eftir flutning erinda verða fyr- irspurnir og umræður. Ræða garðrækt Fyrrverandi landsmótssigurveg- arar munu þeysa um reiðhöllina í Víðidal í kvöld ásamt ungum glæsi- hrossum á árlegri stórsýningu hestamannafélagsins Fáks. Miklir sýningarkóngar úr hestaheiminum munu etja kappi í „einvígi ald- arinnar.“ Stórsýningin hefst klukk- an 21 en húsið verður opnað klukkustund fyrr. Miðaverð er 2.500 kr. Sýningarflokkur borg- firska hestakvenna, Skessurnar, fer um salinn með pilsaþyt. Ung- lingar munu sýna atriði, sýndir verða afkvæmahópar stóðhesta og kynbótahross. Kóngar etja kappi á stórsýningu Fáks Grunur Glæsihestar og knapar koma fram á stórsýningu Fáks í kvöld. STUTT Næsta göngu- ferð fuglaskoð- ara verður farin sunnudaginn 22. apríl. Farið verður um Hraunin vestan við Straumsvík og staldrað við hjá Lónakoti. Þeir sem vilja vera með í sam- akstri frá Álftanesi geta mætt á bílastæðið framan við Íþrótta- miðstöðina á Álftanesi klukkan 13 en upphaf göngunnar er frá Straumi, þ.e. burstabænum við Straumsvík klukkan 13.30. Allir eru velkomnir og leiðin er greið- fær. Ætlunin er að staldra við í Lónakoti, rifja upp aðstæður og skoða ummerki búsetu í hraun- inu. Tilvalið er að hafa með nesti og njóta í heimatúninu. Gera má ráð fyrir að ferðin taki 2-3 klst. og gönguleiðin er u.þ.b. 5 km. Þrjú félög standa að göngunni að þessu sinni, þ.e. Hraunavinir, Fé- lag áhugamanna um sögu Bessa- staðaskóla og FoNÁ. Gengið frá Straumi ÚR BÆJARLÍFINU Ómar Garðarsson Vestmannaeyjar Í síðasta hefti tímaritsins Blika er grein eftir Erp Snæ Hansen, Marinó Sigursteinsson og Arnþór Garð- arsson um talningu á lunda í Vest- mannaeyjum. Varpstofn lunda í Vestmannaeyjum var metinn með myndatöku úr lofti og með því að telja varpholur á árunum 1988 til 1993 og 2007 til 2009. Flatarmál lundabyggða var mælt af loftmyndum og leiðrétt fyrir landslagi (halla). Fjöldi varphola er metinn 1.120.500. Árið 2010 voru 74,4% varphola í ábúð. Stærð varp- stofnsins, reiknuð sem margfeldi holufjölda og ábúðarhlutfalls, er 830.100 pör. Þessi tala svarar til um fimmtungs lundastofnsins í heim- inum og staðfestir að Vest- mannaeyjar eru stærsta lundabyggð heims.    Hjónin Ted og Betsy Lewin komu til Vestmannaeyja í september 2009 til að vinna bók um lundann og pysjutímann og nú er bókin komin út. Ted og Betsy eru bæði listamenn og teikningar þeirra prýða bókina sem heitir Puffling Patrol þar sem saga lundans og Eyjanna er sögð í máli og myndum. Ruth Barbara Zohlen er í sam- skiptum við hjónin og er bókin ein- mitt tileinkuð henni og manni henn- ar, Sigurgeiri Scheving, sem lést á síðasta ári og tvíburunum Daníel og Ernu Pálsbörnum Scheving sem koma mikið við sögu í bókinni. Bókin er mjög falleg og tekst þeim að lýsa þeirri eftirvæntingu sem fylgdi því þegar krakkar í Vestmannaeyjum eltust við pysjurnar.    Nýlega sýndi Ragnar Engilberts- son myndir sínar í Einarsstofu í and- dyri Safnahússins. Ragnar, sem er fæddur 1924, starfaði sem húsamálari en ungur nam hann listmálun bæði í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Myndirnar spanna nánast allan fer- ilinn, frá því hann var í námi og fram á síðustu ár, teikningar og vatnslita- og olíumálverk þar sem myndefnið er oftast Vestmannaeyjar.    Leikfélag Vestmannaeyja sýnir núna söngleikinn Banastuð. Um það segir: Sagan sem slík er álíka vitlaus og gera má ráð fyrir enda fjallar hún um uppvakninga, kolóðar kindur og afturgöngur. Inn í þetta fléttast blóð- ug barátta upp á líf og dauða og auð- vitað smávegis lókal húmor. Leik- stjórinn kemst líklega best að orði í leikskrá söngleiksins þegar hann seg- ir að sagan sé fullkomlega ótrúverð- ug, stórkostlega ýkt og húmorinn ansi vafasamur oft á tíðum. Stærsta lundabyggð í heimi Ljósmynd/Júlíus Ingason Húmor Í Banastuði eru uppvakningar, kolóðar kindur og afturgöngur. Þrír skákmeistarar eiga raunhæfa möguleika á Íslandsmeistaratitl- inum, þegar þremur umferðum er ólokið á Íslandsmótinu í skák, sem fram fer í Stúkunni í Kópavogi. Þröstur Þórhallsson er nú efstur ásamt Henrik Danielsen, eftir að sá fyrrnefndi sigraði Davíð Kjart- ansson í 8. umferð í gær. Henrik þurfti hinsvegar að berjast fyrir jafntefli gegn Guðmundi Kjart- anssyni í lengstu skák Íslandsmóts- ins til þessa. Þeir glímdu í 132 leiki áður en sæst var á skiptan hlut. Þröstur og Henrik hafa sex vinn- inga af átta mögulegum, þegar þrjár umferðir eru eftir. Bragi Þorfinns- son er í þriðja sæti með 5,5 vinninga, eftir sigur á Birni Þorfinnssyni í hörkuskák. Sem fyrr einkennist Íslandsmótið af mikilli baráttu og er teflt til þraut- ar í hverri einustu skák að því er segir í frétt á vef Skáksambandsins. Undantekning 8. umferðar var þó skák stórmeistaranna Stefáns Krist- jánssonar og Hannesar Hlífars Stef- ánssonar. Þeir gerðu jafntefli í að- eins tíu leikjum, en hvorugur hefur staðið undir væntingum á Íslands- mótinu að þessu sinni. Einar Hjalti Jensson lagði Sigurbjörn Björnsson í 60 leikjum, og þeir Guðmundur Gíslason og Dagur Arngrímsson gerðu jafntefli í jafnri skák. Þröstur, Henrik og Bragi munu á næstu þremur dögum keppa um hver kemur fyrstur í mark á Ís- landsmótinu. Henrik hefur einu sinni orðið Íslandsmeistari, en hvorki Braga né Þresti hefur ennþá auðnast að hampa titlinum. Það er því mikið í húfi, og útlit fyrir æsi- spennandi lokaumferðir á Íslands- mótinu 2012. Efstir og jafnir á Íslandsmóti í skák

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.