Morgunblaðið - 21.04.2012, Page 22
„Ég er raunverulegur“
Sigur Rós Meryl Streep George Clooney Christina Aguilera
Fyrstu orð Kela Þorsteinssonar sem er mikið
einhverfur og talar ekki. Hann lærði að tjá sig í
fyrsta skipti 10 ára gamall með hjálp stafaborðs.
Bókin með ævintýralega hattinum eftir Kate Winslet,
einhverfa strákinn Kela og mömmu hans Margréti
bíður þín í Hagkaup.
Hvað myndir þú segja ef þú værir að tjá þig í fyrsta skipti í dag?
Ef þú hefðir verið mikið einhverfur, ótalandi og fengir gullinn
töfrahatt sem gæfi þér mál. Það er spurningin sem Kate Winslet
spurði alla þá frægu einstaklinga sem tóku þátt í gerð þessarar
bókar. Með bókinni er athygli vakin á því að það er öllum mikilvægt
að hafa rödd og að geta tjáð sig, en áætlað er að um helmingur
fólks með einhverfu geti ekki talað. Til að veita þeim rödd og
stuðning hefur fjöldi heimsfrægra einstaklinga tekið mynd af
sjálfum sér með „gullna hattinn“ og tjáð sig um eitthvað sem
skiptir þau máli. Í bókinni segja þær Margrét og Kate einnig sögu
sína og tölvupóstarnir sem innsigluðu vináttubönd þeirra eru birtir.
Gefðu með hjartanu!
Þú gefur einhverfum rödd og sýnileika með því að kaupa bókina.
Þetta er falleg bók sem er gott að eiga og hlýlegt að gefa.
Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til The Golden Hat
Foundation sem vinnur í þágu einstaklinga með einhverfu.
Fæst í Hagkaup, einnig á netinu á goldenhatfoundation.org
og amazon.com.
Taktu þátt í ævintýrinu
og vertu hluti af hópnum
Þú getur látið gott af þér leiða og orðið hluti af
hópnum í bókinni með því að fara á heima-
síðuna okkar www.goldenhatfoundation.org og
á The Golden Wall. Þar getur þú tekið mynd af
þér með gullna hattinn og deilt með umheim-
inum hver þín fyrsta setning yrði.
Þá ertu kominn í hóp með Kate Winslet, Kobe
Bryant, Michael Caine, Kim Cattrall, Zac Efron,
James Franco, Ricky Gervais, Tom Hanks, Elton
John, Jude Law, Julianne Moore, Rosie
O'Donnell, Tim Robbins, Ben Stiller, Justin
Timberlake, Naomi Watts, Oprah Winfrey o.fl.
Myndina þína með gullna hattinn geturðu svo
notað sem prófílmynd á Facebook og hvatt aðra
til að láta gott af sér leiða. Þinn stuðningur
skiptir máli.
social.goldenhatfoundation.org
The Golden Hat er komin út
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
12
-0
87
9