Morgunblaðið - 21.04.2012, Side 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-0
9
1
5
Sætún 10 | 105 Reykjavík | Sími 440 9000 | advania@advania.is | www.advania.is
Dagskrá:
13.00 Opnun
GesturG.Gestsson, forstjóriAdvania
13.10 Viðskiptagreind: Fimmþrepa
nálgun við stefnumótun
Hinrik JósafatAtlason, Advania
13.25 Öryggi: Stafræn óværa,
blekkingar og öryggisstefna
SigurðurMásson, Advania
13.45 Öryggi: Upplýsingaleki er ógn
Tryggvi R. Jónsson, Deloi 14.05 Kaffipása
14.25 Samfélagsmiðlar: Hagnýt
ráð fyrir fyrirtæki og stofnanir
BárðurÖrnGunnarsson,Hvítahúsið
14.40 Snjallsímar: App og
farsímavefir semmarkaðstæki
Helgi Pjetur Jóhannsson, Stokkur
(leggja.is)
15.00 Viðskiptalausnir: Microso
SharePoint fyrir skjöl ogsamvinnu
Sigvaldi Óskar Jónsson, Advania
15.15 Viðskiptalausnir: Hámörkun
árangursmeð viðskiptalausn -
Reynslusaga
Reynir Eiríksson,Norðlenska
15.35 Verslun og viðskipti:
Framtíðarsýn í afgreiðslukerfum
Hjalti G.Hjartarson, Advania
15.50 Kaffipása
16.10 Veflausnir: Nýjungar í
netverslun og rafrænumviðskiptum
SigrúnEvaÁrmannsdóir, Advania
16.30 Veflausnir: Spennandi stefnur
og straumar í hönnun og viðmóti
JónatanGerlach, Skapalón
16.50 Lokaorð
GarðarMárBirgisson, Advania
17.00 Léarveitingar
Þátaka er gestumaðkostnaðarlausu.
Skráningognánari upplýsingar á
www.advania.is.
Vorráðstefna
Advania á Akureyri
Hin árlega vorráðstefna Advania verður haldin íMenningarhúsinuHofi
áAkureyri föstudaginn 27. apríl og er öllum opin ámeðan húsrúm leyfir.
Á dagskrá eru 10 áhugaverðir fyrirlestrar þar sem áhersla er lögð á gagnlegan fróðleik
um nýjustu strauma og stefnur í upplýsingatækni fyrir atvinnulífið. Ráðstefnunni lýkur
með léum veitingum, ljúfum tónum og notalegum félagsskap.
Bóndinn í Belgsholti í Melasveit er
vel á veg kominn með endurreisn
vindrafstöðvarinnar sem skemmd-
ist í lok nóvember. Haraldur Magn-
ússon nýtir þá reynslu sem hann
hefur safnað við uppbyggingu og
rekstur stöðvarinnar og aðlagar
hana að íslenskum aðstæðum.
Vindrafstöðin var sett upp síðast-
liðið vor og var fyrsta vindrafstöðin
sem tengd var við raforkukerfi
landsins. Hún sparaði eiganda sín-
um orkukaup og skapaði smá
tekjur þar til bilun sem kom upp í
lok september varð henni að falli.
Sama dag var Haraldur byrjaður
að undirbúa endurreisn. Hann hef-
ur keypt nauðsynlega varahluti,
gert við mastrið og er að láta smíða
fyrir sig nýja spaða á Akureyri og
hanna nýjan hugbúnað.
Fyrirtækið sem framleiddi stöð-
ina varð gjaldþrota áður en bilunin
varð þannig að Haraldur gat ekki
gert það ábyrgt fyrir tjóni sínu.
helgi@mbl.is
Undirbýr
endurreisn
vindmyllu
Aðlöguð að ís-
lenskum aðstæðum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Mylla Sterkari íslenskir spaðar
verða settir á vindrafstöðina.
Færst hefur í vöxt að ökumenn nýti
sér vefmyndavélar Vegagerðarinnar
áður en haldið er út á þjóðvegina.
Beinar útsendingar frá 80 vefmynda-
vélum á vegum landsins er nú að finna
á vefsíðu stofnunarinnar, og munu
tuttugu bætast við á árinu.
Að sögn G. Péturs Matthíassonar,
upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar,
hafa umræddar myndavélar reynst
vel í daglegum rekstri stofnunarinnar
en í auknum mæli er hægt að fylgjast
stöðugt með ástandi vega með til-
komu þeirra. Umtalsverð hagræðing
hefur einnig hlotist af þessum beinu
útsendingum en mikill akstur sparast
auk þess sem myndirnar nýtast víða.
Vefmyndavélarnar þola íslenskar að-
stæður einkar vel og geta staðið af sér
dágóðar hviður. Er vélunum stillt
þannig upp að ávallt eru þrjár áttir á
hverjum stað sýndar, þ.e. beint niður
á vegi og til beggja átta.
Útsendingar myndavélanna nýtast
ekki einungis starfsfólki Vegagerðar-
innar og ökumönnum til að kanna
færð og ástand vega heldur hefur
einnig hefur borið á að flugmenn nýti
sér þær til að kanna aðstæður til sjón-
flugs. Þá hafa myndavélarnar einnig
nýst lögreglunni sem a.m.k. einu sinni
hefur haft uppi á ökumanni sem sat
fastur í bíl sínum í byl á Öxnadalsheiði
en vissi ekki hvar nákvæmlega. Út-
sendingarnar má nálgast á
www.vegagerd.is. gunnhildur@mbl.is
Útsending af vegum landsins
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vefmyndavélar Vegagerðin er nú með 80 vefmyndavélar úti á vegum.
Góð reynsla af vefmyndavélum hjá Vegagerðinni Átta-
tíu vefmyndavélar úti á þjóðvegunum og fleiri á leiðinni
Skráning er hafin
í Vinnuskóla
Reykjavíkur. Bú-
ist er við að um
það bil 1.800 nem-
endur skrái sig til
starfa í Vinnu-
skóla. Foreldrar
nemenda sjá um
skráninguna í
gegnum Rafræna Reykjavík líkt og í
fyrra. Skráningarfrestur er til föstu-
dagsins 18. maí.
Öllum nemendum í 9. og 10. bekk
grunnskóla í Reykjavík býðst starf
hjá Vinnuskólanum. Nemendur í 8.
bekk eiga ekki kost á starfi í sumar.
Vinnutímabilin verða tvö, þrjár
vikur í senn. Reynt verður að koma
til móts við óskir flestra um val á
tímabili, segir í tilkynningu frá
Reykjavíkurborg.
Skráning er
hafin í Vinnu-
skólann