Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012 GJÖRIÐ SVO VEL!HÁDEGISMATUR TIL FYRIRTÆKJA HAFÐU SAMBAND OG FÁÐU TILBOÐ! HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is HEITT OG KALT býður fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu heimsendingu á hollum og kjarngóðum hádegismat. Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta matreiðslukeppni heims. Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Vatnsbúskapur Landsvirkjunar er óvenjugóður á þessum tíma árs. Oft- ar en ekki er eðlilegt að lónin fyllist og fari jafnvel á yfirfall seinni part sumars. Í ár verður það þó fyrr, ef taka á mið af stöðunni í gær. Vatnshæð Þórisvatns og Hálslóns var í gær, nokkru áður en vorleys- ingar eru orðnar að einhverju gagni, álíka og í júlímánuði í fyrra. Vatns- hæð Blöndulóns og Hágöngulóns var í gær álíka og um miðjan maí í fyrra. Ef vatnshæð lónanna er skoðuð árin 2010 til 2012 má sjá að vatnshæð þeirra allra er með besta móti nú. Þannig er vatnshæð Hálslóns tæpum 20 metrum meiri 20. apríl í ár en á sama tíma í fyrra. Vatnshæð Þóris- vatns er tæpum 9 metrum meiri í ár en í fyrra. Blöndulón er 5 metrum hærra í ár og Hágöngulón 1,5 metr- um hærra. Miðlunarforðinn almennt betri „Almennt séð yfir það heila þá er miðlunarforðinn okkar mun meiri en á sama tíma í fyrra,“ sagði Guð- mundur Björnsson, sérfræðingur í vinnsluáætlunum hjá Landsvirkjun, spurður um málið í gær. „Nú eru vorleysingarnar að byrja og innrennslið að aukast þannig að það má alveg búast við að það verði snemmsumars,“ segir Guðmundur, aðspurður hvenær búast megi við að lón fyrirtækisins fyllist og fari á yfir- fall í ár. Guðmundur segir að hægt sé að stýra vel miðlun í lónum neðan Þórisvatns, en að slíkt sé hvorki framkvæmanlegt í Þórisvatni né í Hágöngulóni á Sprengisandi. Hann segir þó talsvert enn eftir í að þau lón fari á yfirfall, þó vatns- staðan sé góð nú í sumarbyrjun. Guðmundur segir að aukið rennsli í Þjórsá neðan Búrfells verði líkast til fyrst og fremst af völdum aukins rennslis ofar í ánni með innrennsli inn í Sultartangalón, en síður vegna Þórisvatns eða Hágöngulóns. Vatnsbúskapurinn með besta móti  Fjögur stærstu lón Landsvirkjunar fyllast fyrr en undanfarin ár  Vatnshæð Þórisvatns og Hálslóns álíka nú og í júlí í fyrra  Þórisvatn gæti farið á yfirfall snemmsumars ef vorleysingum lýkur snemma Vatnsbúskapur Landsvirkjunar í miðlunarlónum 2010-2012 Grunnkort/Loftmyndir ehf.Vatnshæð 20. apríl hvert ár (m.y.s.) Yfirfallshæð (m.y.s.) 816 80 9, 65 80 8, 13 81 0 ,5 7 Hágöngulón 2010 2011 2012 Fór á yfirfall: 2010: 28. júlí 2011: 15. júlí Vantar: 5,43 m 579 57 2, 40 56 8, 18 57 7, 52 Þórisvatn 2010 2011 2012 Fór á yfirfall: 2010: 6. ágúst 2011: 30. júlí Vantar: 1,48 m 478 47 3, 84 47 0 ,0 0 47 5, 57 Blöndulón 2010 2011 2012 Fór á yfirfall: 2010: 9. ágúst 2011: 6. ágúst Vantar: 2,43 m 625 59 5, 52 58 6, 53 60 6, 13 Hálslón 2010 2011 2012 Fór á yfirfall: 2010: 27. júlí 2011: 13. sept. Vantar: 18,87 m Vatnshæð Þórisvatns, sem er helsta miðlunarforðabúr fyrir fimm virkjanir fyrirtækisins á vatnasviði Þjórsár og Tungnaár, vekur sérstaka athygli. Vatnshæðin um miðjan júlí 2011 var um 577,5 metrar og yfirfall vatnsins er á 579 metr- um. Frá 14. júlí 2011 tók ein- ungis 16 daga fyrir lónið að fyll- ast og fara á yfirfall, 30. júlí. Nú eru vorleysingar að fara á fullt á svæðinu og mun því tals- vert bætast af vatni í lónið í maí og svo enn meira þegar sól hækkar á lofti og jöklarnir byrja að bráðna. Það má þannig leiða líkur að því að Þórisvatn fari á yfirfall nokkuð fyrr í sumar en í fyrra, nema þó hugsanlega ef tíð í maí verður köld og leys- ingar hægar. Ef hin þrjú lónin eru skoðuð þá var staða Hágöngulóns sú sama 18. maí í fyrra og tók lónið 2 mánuði að fara á yfirfall. Blöndulón var á sama stað 11. maí í fyrra og fylltist á 3 mán- uðum og Hálslón var á sama stað 31. júlí í fyrra og fylltist á einum og hálfum mánuði. Fylltist í fyrra á 16 dögum ÞÓRISVATN EINS OG Í JÚLÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.