Morgunblaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Á Krúsku færðu:
heilsusamlegan mat,
kjúklingarétti, grænmetisrétti,
fersk salöt, heilsudrykki,
súkkulaðiköku,
gæðakaffi frá
Kaffitár og
fallega
stemningu.
Suðurlandsbraut 12 l 108 Reykjavík l S. 557-5880 l kruska@kruska.is l kruska.is
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-20 SENDUM Í FYRIRTÆKI
Næring fyrir líkama og sál
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Umræða um sölu á þremur eyjum í
umdeildum eyjaklasa í Austur-
Kínahafi hefur enn á ný hreyft við
ráðamönnum í Kína og Japan, sem
gera tilkalltil eyjanna eins og
Taívan.
Fimm eyjar
eru í klasanum.
Þær eru óbyggð-
ar, en þar eru
villtar geitur og
óvenjulegar teg-
undir af mold-
vörpum. Olíu- og
gaslindir eru
taldar vera á
hafsbotni við þær
og þar eru góð
fiskimið. Fyrir
um fjórum árum náðu Japanar og
Kínverjar samkomulagi um að nýta
gaslindirnar sameiginlega en ekki
hefur reynt á það samkomulag.
Harðar deilur
Fyrir tæplega tveimur árum
hörðnuðu deilur Japana og Kín-
verja enn frekar þegar skipstjóri
kínversks togara sigldi á tvö jap-
önsk strandgæsluskip við eyjarnar.
Af ásettu ráði, að mati Japana.
Deilan var svo hörð að Shintaro Is-
hihara, borgarstjóri í Tókýó, aflýsti
fyrirhugaðri heimsókn til Kína.
Ekki er aðeins deilt um yfirráðin
á eyjunum fimm heldur einnig nafn-
ið. Á japönsku nefnast þær Sen-
kaku en Diaoyu á kínversku. Kín-
verjar segja að eyjaklasinn hafi
verið kínverskur frá örófi alda, en
þær hafa verið í eigu Japana að
minnsta kosti frá 19. öld. Japanska
ríkisstjórnin leigir fjórar þeirra og
á þá fimmtu.
Kosta allt að 63,3 milljörðum
Japanski viðskiptamaðurinn
Kuniki Kurihara keypti þrjár
eyjanna fyrir um 40 árum, en fyrr í
vikunni greindi Shintaro Ishihara
frá því í heimsókn í Washington í
Bandaríkjunum að hann ætti í við-
ræðum við Kurihara um að Tókýó
keypti af honum eyjarnar. Fram
kom hjá borgarstjóranum að hægt
væri að ganga frá viðskiptunum á
þessu ári og vernda þannig jap-
anskt yfirráðasvæði.
Makoto Watanabe, lögfræðingur
Kuriharas, vill ekki greina frá hugs-
anlegu söluverði en eyjarnar hafa
verið verðlagðar frá því að vera
einskis virði upp í sem samsvarar
nær 63,3 milljörðum íslenskra
króna (um 500 milljónir dollara).
Hugmynd Ishihara um kaupin
fellur ekki öllum Japönum vel í geð.
Bent hefur verið á að eyjarnar séu í
1.900 km fjarlægð frá Tókýó og
ekki sé réttlætanlegt að eyða pen-
ingum skattborgaranna á þennan
hátt. Aðstoðarmaður borgarstjór-
ans hefur í því sambandi bent á
þann möguleika að sérstaklega yrði
safnað fyrir kaupverðinu á meðal
almennings.
Hörð viðbrögð
Ummæli borgarstjórans hafa líka
kallað á sterk viðbrögð frá Kína, en
Kínverjar segja að hugsanleg kaup
yrðu ólögleg og marklaus. Yoshi-
hiko Noda, forsætisráðherra Jap-
ans, áréttaði hins vegar yfirráð Jap-
ana á eyjaklasanum á þingi.
Eyjaklasi í Austur-Kínahafi
Kína
Japan
Tævan
Okinawa
Senkaku-eyjar
Chunxiao-
gaslindirnar
Kyrrahaf
Stórveldin í austri deila enn
Kína, Japan og Taívan ekki sammála um yfirráð yfir óbyggðum eyjaklasa í Austur-Kínahafi
Kínverjar segja að eyjaklasinn hafi verið kínverskur frá örófi alda en Japanir eiga eyjarnar
AFP
Mótmæli Kínverjar í Hong Kong mótmæltu hugsanlegri sölu á umdeildum eyjum í fyrradag. Á borðanum stendur: Japan, farið frá Diaoyu.
Shintaro
Ishihara
Deilur og samstarf
» Þjóðernissinninn Shintaro
Ishihara var kjörinn borg-
arstjóri í Tókýó 1999.
» Landhelgisdeilur Japana og
Kínverja haustið 2010 voru
harðar og lagði hópur þing-
manna í Lýðræðisflokki Japans
til að Japanar íhuguðu að
koma sér upp setuliði á eyja-
klasanum í austur-Kínahafi.
» Efnahagslíf Kína og Japans
hefur verið nátengd.