Morgunblaðið - 21.04.2012, Side 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Fermingargjöfin hennar
og hans
Fæst í flestum
raftækjaverslunum
um land allt
Act Heildverslun - Dalvegi 16b - 201 Kópavogur
577 2150 - avon@avon.is
S HELGASON
steinsmíði síðan 1953
SKEMMUVEGI 48 ▪ 200 KÓPAVOGUR ▪ SÍMI: 557 6677 ▪ WWW.SHELGASON.IS
SAGAN SEGIR SITT
Þónokkur ár hafa
liðið síðan ungir sjálf-
stæðismenn komu
fram með það, og
lögðu mikla áherslu á,
að ríkisumsvif og fjöldi
ríkisstarfsmanna væri
orðinn slíkur að mikil
þjóðhagsleg hag-
kvæmni yrði af því að
taka allt ríkiskerfið til
athugunar í því skyni
að minnka það bákn sem búið væri
að byggja upp hér á landi. Undir
þessa skynsamlegu sýn ungu sjálf-
stæðismannanna tók fjöldi fólks úr
öðrum flokkum.
Síðan þetta var hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn verið lengst af með öll
þau völd á Íslandi sem til þess
þurfti að verða við óskum hinna
ungu sjálfstæðismanna. Nú eru
margir þeirra orðnir þingmenn
flokksins á Alþingi. Að kröfu Jóns
Baldvins var fallist á að ganga inn
í EES, ella væri Jón ekki til tals
um að mynda ríkisstjórn. Á það
var fallist, sem varð til þess að
gera gersamlega útaf við hinar
skynsamlegu hugmyndir ungu
sjálfstæðismannanna um báknið
burt.
Vegna EES hafa Íslendingar
þurft að setja upp gífurlegt kerfi
reglugerða og eftirlitsstofnana.
Með ógæfustjórn Jóhönnu og
Steingríms er enn bætt í með því
að taka upp verklag í
því skyni að aðlaga
Ísland að regluverki
ESB sem felur í sér
enn meira ríkisbákn
og jafnframt afsal
þjóðarinnar á því að
stjórna landinu í okk-
ar þágu. Með inn-
göngu í ESB sem
starfsmenn báknsins
virðast aðhyllast og
Samfylkingin berst
fyrir með Vinstri
grænum, hálfnauð-
ugum, mun báknið bókstaflega
springa út og þjóðin, þingið, rík-
isstarfsmenn og frjálsir atvinnu-
rekendur verða ófrjálsir menn. Sú
vinna sem Össur Skarphéðinsson
fer í fararbroddi fyrir er að mínu
áliti landráð. Þeir sem á Alþingi
eru á hverjum degi að samþykkja
lög og reglugerðir ESB (að sögn
Össurar) eru þá einnig að fremja
landráð. Sá verknaður er sagður
gerður gegn núverandi stjórn-
arskrá.
Enn er greinilegt að meirihluti
þjóðarinnar er mótfallinn inngöngu
í ESB. Svo ótrúlegt sem það er, þá
hamast Össur enn við að koma nið-
ur á Alþingi með lög og reglugerð-
ir frá ESB sem svo eru sam-
þykktar þar. Þegar loks kemur að
því að þjóðin fái að greiða atkvæði
um inngönguna, þá er kosningin
aðeins ráðgefandi en ekki afger-
andi. Landráðaliðið á Alþingi getur
þá farið með þjóðina ósátta inn í
skrímslið í Brussel og land-
ráðamenn fá væntanlega feit og
þægileg embætti í stjórnstöðvum
ESB.
Þeir sem ekki trúa á landið,
gæði þess og dugnað þjóðarinnar,
berjast fyrir inngöngunni í ESB.
Hinir dugandi og bjartsýnu sem
hafa trúna og vilja viðhalda sjálf-
stæði þjóðarinnar og frelsi munu
berjast gegn Brussel-valdinu. Sjálf-
stæðir menn í öllum flokkum verða
að standa saman gegn því óþjóð-
lega liði sem hefur misst trúna á
landið, þjóðina og krónuna okkar.
Segjum okkur þegar í stað úr
EES og Schengen og hættum þeim
landráðum að daðra við ESB.
Auðæfi landsins okkar eru slík
að niðurlægjandi er að hafa full-
trúa okkar sem Árna Þór Sigurðs-
son og Össur Skarphéðinsson sem
betlandi og smjaðrandi förumenn
frammi fyrir skrímslinu í Brussel.
Báknið burt
Eftir Kristin
Snæland
» Þeir sem ekki trúa á
landið, gæði þess og
dugnað þjóðarinnar,
berjast fyrir inngöng-
unni í ESB.
Kristinn Snæland
Höfundur er rafvirkjameistari.
Nám í lífeindafræði
við Háskóla Íslands
hófst haustið 2005 í
nýrri námsbraut í líf-
eindafræði innan
læknadeildar. Frá
árinu 1966 og fram til
þess tíma hafði
menntun þeirra verið
í Tækniháskóla Ís-
lands og Háskólanum
í Reykjavík.
Hvað gera lífeinda-
fræðingar? Gagnstætt því sem
margir halda felst starf lífeinda-
fræðinga ekki fyrst og fremst í
blóðtökum heldur margvíslegum
mælingum og greiningum þeirra
einda, efna og fruma sem manns-
líkaminn er samsettur úr. Margir
lífeindafræðingar koma aldrei ná-
lægt blóðtökum og sjá aldrei sjúk-
linga í starfi heldur einungis sýni
frá sjúklingunum.
Meginmarkmið
námsins er að veita
grunnmenntun í líf-
eindafræði þannig að
nemandi geti tekist á
við frekara nám sem
veitir réttindi til að
starfa sem lífeinda-
fræðingur eða æðri
prófgráður eftir því
hve langt er haldið.
Mikilvægi náms í líf-
eindafræði liggur í
þekkingu sem stuðlar
að öruggri greiningu,
meðferð og forvörnum
gegn sjúkdómum en einnig getu
og þekkingu til starfa á öllum
rannsóknastofum innan heilbrigð-
isgeirans. Námið hefur einnig nýst
vel í störfum við matvælafram-
leiðslu, líftækni eða þungaiðnað.
Í náminu fá nemendur tækifæri
til að takast á við rannsóknir á
sýnum frá mannslíkamanum sem
gerðar eru á mismunandi sviðum
lífeindafræðinnar, svo sem blóð-
bankafræði, blóðmeinafræði,
erfðafræði, klínískar lífefnafræði,
klínískar lífeðlisfræði, ónæm-
isfræði, sameindaerfðafræði,
sýklafræði og vefjameinafræði.
Námið og starfið hentar vel
þeim sem hafa áhuga á lífvísindum
og vilja búa sig undir að taka þátt
í fjölbreytilegu starfi á flestum
gerðum rannsóknastofa.
Til að verða lífeindafræðingur
þarf að ljúka fyrst þriggja ára
grunnnámi með BS-prófi og til að
öðlast starfsréttindi sem lífeinda-
fræðingur þarf að bæta við sig
einu ári og diplómaprófi í líf-
eindafræði en það er einnig fyrra
árið í meistaranámi í lífeinda-
fræði.
Stúdentspróf er og hefur alltaf
verið krafa til þeirra nema sem
hafa hug á námi í lífeindafræði og
eru samkeppnispróf í lok fyrsta
misseris. Á fyrsta kennslumisseri
er lögð mikil áhersla á raun-
greinar svo sem efnafræði, líf-
efnafræði, lífeðlisfræði, líf-
færafræði. Einnig er tækjafræði
og lífefna- og frumulíffræði kennd
á fyrsta ári. Þá er lagður grunnur
að þekkingu á framsetningu vís-
indalegra gagna og tölfræði.
Á öðru ári og þriðja ári er meiri
áhersla lögð á að dýpka þekkingu
nemanna á aðferðafræði hinna
ýmsu greina lífeindafræðinnar en
þá eru námskeið í aðferðafræði og
sjúkdómafræði klínískrar líf-
efnafræði og lífeðlisfræði, blóð-
meinafræði, ónæmisfræði, sýkla-
fræði, líffærameinafræði,
erfðafræði og sameindaerfðafræði
að ógleymdri blóðbankafræði og
ísótóparannsóknum. Á fyrra ári
meistaranáms, sem allir þurfa að
taka til að öðlast starfsréttindi,
takast nemarnir á við sérhæfðari
aðferðafræði og vísindarannsóknir.
Þá er einnig lögð áhersla á stjórn-
un og hagnýta lífupplýsingafræði.
Í meistaranáminu og síðar í dokt-
orsnámi geta nemendur haldið
áfram að bæta þekkingu sína og
hæfni í vísindarannsóknum.
Í kennslu á öllum námsárum er
lögð áhersla fjölbreytta kennslu-
hætti með fyrirlestrum, verklegri
kennslu, hóp- og einstaklingsverk-
efnum. Að loknu námi halda út í
atvinnulífið einstaklingar sem hafa
haldgóða þekkingu sem nýtist á
öllum rannsóknastofum, þekkja
aðferðafræði sem nýtist við allar
rannsóknir, þekkja hugmynda-
fræði gæðastjórnunar og gagna-
kerfa, hafa skilning á hugmyndum
og aðferðafræði stjórnunar, geta
framkvæmt vísindarannsóknir og
gert þeim skil í ræðu og riti. Síð-
ast en ekki síst: hafa skilning á
nauðsyn siðfræði og góðra hátta í
mannlegum samskiptum.
Eftir Eddu Sóley
Óskarsdóttur » Starf lífeindafræð-
inga felst í margvís-
legum mælingum og
greiningum þeirra
einda, efna og frumna
sem mannslíkaminn er
samsettur úr.
Edda Sóley
Óskarsdóttir
Höfundur er lífeindafræðingur.
Lífeindafræði – nám í HÍ