Morgunblaðið - 21.04.2012, Page 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Ábendingar frá
Haraldi Sigurðssyni
eldfjallafræðingi um
nauðsyn jarð-
skjálftamælinga á
Snæfellsnesi eru orð í
tíma töluð. Það þyrfti
að setja upp jarð-
skjálftamæla á Snæ-
fellsnesi af svokall-
aðri SIL-gerð og
stefna að því, að með
SIL-mælakerfinu, verði unnt að
mæla jarðskjálfta þarna allt niður
í Richters-stærðina 0.
Til að gera sér í hugarlund
hvað skjálftastærðin 0 er má
hugsa sér að slíkir skjálftar komi
frá misgengissprungum sem eru
um 100 metrar á kant og að mis-
gengishreyfing við slíkan skjálfta
sé um hundraðasti hluti úr milli-
metra.
Þótt fólk finni ekki slíka smá-
skjálfta gefa þeir okkur bestar
upplýsingar um hvað er að gerast
djúpt niðri í jarðskorpunni áður
en stórir jarðskjálftar bresta á og
verða því, ef vel er fylgst með
þeim og lesið stöðugt úr þeim á
vísindalegan hátt, mikilvægasti
grunnur þess að geta varað við
stórum skjálftum áður en þeir
bresta á.
Rannsóknir hafa sýnt að jarð-
skjálftasprungur, allavega hér á
landi, byrja að mjakast djúp niðri
í jarðskorpunni eða neðan við
hana, löngu áður en stór skjálfti
brestur á. Háþrýstar kvikur
skjótast upp í jarðskorpuna að
neðan vegna þessarar djúpu
sprunguhreyfingar. Þær veikja
smám saman samloðun á gömlum
jarðskjálftasprungum, veikja þær
og gefa okkur um leið merki um,
með smáskjálftum, hvað er að
gerast þarna niðri.
Þetta er í raun mjög svipað og
gerist í löngum aðdraganda eld-
gosa. Kvikuhreyfingar verða
djúpt niðri sem eru svo smáar að
þeirra verður ekki vart nema með
afar næmum mælum og þá helst
með jarðskjálfta-
mælingum. Fyrstu
jarðskjálftarnir sem
unnt er að mæla vel
og geta gefið okkur
vísbendingar og
rannsóknargögn eru
af stærðinni 0 eða
svo.
Gosið í Heimaey
Þegar Heimaeyj-
argosið hófst klukk-
an 2 eftir miðnætti
aðfaranótt 23. janúar
1973 kom það án þess að nokkrar
viðvaranir hefðu verið gefnar út.
Samkvæmt mælingum á jarð-
skjálftamælum uppi á landi urðu
þó jarðskjálftar þarna djúpt niðri
í rúmlega sólarhring á undan,
mest á dýpi allt niður í 20 km.
Mælitæknin þá var ekki með
þeim hætti að unnt væri að stað-
setja þessa skjálfta fyrr en með
rannsókn eftir að gosið var byrj-
að. Það er líklegt að með betri
tækni og meiri næmni mæla
hefði verið hægt að átta sig á
undanfara gossins miklu lengur,
vel áður en það byrjaði.
Í Heimaey, eins og á Snæfells-
nesi nú, var ekki reiknað með að
eldgos væru mjög líkleg, og oft
var talað um Helgafellið sem
svokallaða útdauða eldstöð.
Eins og Haraldur bendir á er
nauðsynlegt að útvíkka núver-
andi landskerfi jarðskjálftamæl-
inga á Íslandi, svokallað SIL-
kerfi, til að geta numið og unnið
sjálfvirkt úr jarðskjálftum niður í
stærðina 0 á Snæfellsnesi. Fyrir
utan það að geta verið hluti af
mikilvægu vöktunarkerfi til ör-
yggis fyrir íbúa svæðisins væri
þetta mikilvægt fyrir þekkingu á
eðli og ferlum í jarðskorpunni
undir okkur.
Það má líka benda á að Árni
Stefánsson, augnlæknir og hella-
fræðingur, hefur verið að opna
Vatnshelli við Snæfellsjökul fyrir
ferðafólki til skoðunar. Upplagt
væri að einn slíkur jarð-
skjálftamælir væri í eða við
þennan helli til að ferðamenn
gætu skoðað í leiðinni niðurstöður
úr þessu merkilega mælingakerfi
sem SIL-netið er.
SIL-kerfið
SIL kerfið er nefnilega heims-
frægt mælingakerfi fyrir smá-
skjálfta.
Þegar jarðskjálftaspárann-
sóknir hófust á Íslandi á skipu-
legan hátt um 1988 var lögð meg-
ináhersla á að byggja upp
sjálfvirkt mælingakerfi til að geta
numið skjálfta allt niður í stærð-
ina 0 og unnið samstundis upplýs-
ingar úr þeim um hvað sé að ger-
ast þarna niðri á hverjum tíma.
Þetta var kallað SIL-kerfið,
sem er skammstöfun á Södra Is-
lands Lågland sem er sænska og
þýðir Suðurlandsundirlendið,
enda voru fyrstu stöðvarnar í
kerfinu á svæði Suðurlands-
skjálftanna. Sænskan var notuð í
þessari skammstöfun, enda vor-
um það við í samstarfi við fólk
annars staðar á Norðurlöndum,
ekki síst í Svíþjóð, sem afrek-
uðum þetta.
Í seinni tíð eftir að þetta kerfi
hefur öðlast heimsfrægð höfum
við útskýrt skammstöfunina á
ensku, South Icelandic Lowland.
SIL-kerfið þarf að útvíkka til
að nema og meta upplýsingar frá
smáskjálftum á Snæfellsnesi.
Þetta hefur lengi verið á óskalista
jarðváreftirlitshópsins á Veð-
urstofunni. Vel rökstuddar ábend-
ingar Haraldar eru sannarlega
mikils virði til þrýsta á um þetta.
Smáskjálftamælingar
á Snæfellsnesið
Eftir Ragnar
Stefánsson » Það þarf að útvíkka
skjálftamælinga-
kerfið okkar, SIL-
kerfið, til að nema
og meta upplýsingar
frá smáskjálftum
á Snæfellsnesi.
Ragnar Stefánsson
Höfundur er jarðskjálftafræðingur
og prófessor á eftirlaunum við
Háskólann á Akureyri.
Vörubílastöðin Þróttur býður fjölbreytta þjónustu og ræður
yfir stórum flota atvinnutækja til margvíslegra verka
ÖFLUGIR Í SAMSTARFI
VIÐ LÓÐAFRAMKVÆMDIR
· Fellum tré og fjarlægum garðarúrgang
· Grjóthleðsla með sérhæfðum kranabílum
· Seljum hellusand og útvegum mold
ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA
SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS
Verð kr. 34.980.-
Stgr. kr. 31.800.-
Magnari, útvarp, iPod stöð
og klukka.
Magnari, útvarp, iPod stöð
og klukka.
Verð kr. 98.600.-
Stgr. kr. 86.800.-
4 litir.
genevalab.com
Verð kr. 68.800.-
Stgr. kr. 58.800.-
Ferðatæki með hleðslurafhlöðu.
Stereo Bluetooth móttakari,
útvarp, klukka og vekjaraklukka.
3 litir.
3 litir.
GENEVA S
GENEVAM
sumargjöfin...
Sumarverð stgr. kr. 54.900,-
Sumarverð stgr. kr. 29.900,-
Sumarverð stgr. kr. 79.900,-
3
Arnór og Óli Þór unnu
sveitarokk á Suðurnesjum
Óli Þór Kjartansson og Arnór
Ragnarsson sigruðu örugglega í
sveitarokki sem lauk sl. miðviku-
dagskvöld hjá bridsfélögunum. Þeir
tóku forystu í upphafi móts og héldu
nær óslitið til loka. Bræðurnir Árni
og Oddur Hannessynir urðu í öðru
sæti en lokastaðan varð þessi:
Óli Þór – Arnór 255,8
Árni – Oddur 154,5
Vignir Sigursveinss. – Úlfar Kristinss. 142
Lárus Óskarsson – Karl Einarsson
– Birkir Jónsson 72
Einar Guðmundsson – Garðar Garðarsson
– Þorgeir Ver Halldórss. 62
Gunnl. Sævarsson – Randver Ragnarsson47
Síðasta spilakvöld skoruðu Vignir
og Úlfar mest eða 69. Guðni Sigurðs-
son og Þórir Hrafnkelsson skoruðu
35 eins og Óli Þór og Arnór, sig-
urvegarar mótsins. Þetta var
lengsta keppni vetrarins, stóð yfir í
sjö vikur.
Lokakvöld vetrarins verður
snittutvímenningur sem styrktur er
af Landsbanka Íslands. Spilað er í
húsi félaganna á Mánagrund á mið-
vikudögum kl. 19.
Bridsfélag Kópavogs
Á öðru kvöldi af þremur í Monrad-
tvímenningi Bridsfélags Kópavogs
urðu Jón Steinar Ingólfsson – Guð-
laugur Bessason og Sigurður Sigur-
jónsson – Ragnar Björnsson efstir
og jafnir með 58,6% skor. Þeir fyrr-
nefndu hafa nauma forystu saman-
lagt með 111,2% úr báðum kvöldum.
Staða efstu para er þessi (prósent-
skor):
Jón St. Ingólfss. – Guðlaugur Bessas. 111,2
Baldur Bjartmarsson – Halldór Þorvaldss./
Sigurjón Karlsson 110,6
Ingvaldur Gústafss. – Úlfar Ö. Friðrss.
110,2
Jörundur Þórðars. – Þórður Jörundss. 109,4
Guðmundur Aldan Grétarsson – Guðbjörn
Baldvins/Þorsteinn Berg 103,3
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is