Morgunblaðið - 21.04.2012, Síða 50
50 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert næmur á líðan annarra og
veist hvað er viðeigandi að segja og hvað
ekki. Og mundu að þótt allt virki ekki nú get-
ur það gerst síðar.
20. apríl - 20. maí
Naut Að leita af ást er þér eðlislægt, en
einkalífið gæti núna haft gott af meðvitaðri
aðgerðum. Samningur er í húfi hjá ein-
hverjum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur unnið vel og skipulega og
hefur nú lokið verkefni þínu í tæka tíð. Stund-
um gerast hlutirnir þegar maður á síst von á
þeim.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gættu þess að ofmetnast ekki nú
þegar allir vilja hrósa þér fyrir árangur þinn í
starfi. Bjóddu fólki í heimsókn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ykkur býðst einstakt tækifæri sem
freistar ykkar svo þið skuluð leggja ykkur alla
fram um að grípa það. Farðu varlega í inn-
kaupum í dag og gættu þess að kaupa engan
óþarfa.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það vantar ekki mikið upp á að þér
takist að ljúka því verkefni sem þér hefur ver-
ið falið. Ekki reyna að stjórna því sem lætur
ekki að stjórn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Notaðu hvert tækifæri sem þú færð til
þess að tjá þig í rituðu máli. Vilji er allt sem
þarf og hálfnað er verk þá hafið er.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dagurinn í dag er kjörinn til að
takast á við gamalt vandamál sem þér hefur
ekki tekist að leysa. Við finnum öll fyrir því að
vera bundin því sem við eigum þótt í raun sé
það órökrétt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sköpunarmáttur þinn er mikill.
Sýndu dugnað og samviskusemi í starfi og þá
er allt í lagi að slá á létta strengi þegar við á.
Leyfðu rómantíkinni að blómstra í lífi þínu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú færð tækifæri til að aðstoða
einhvern í fjölskyldu þinni. Stundum gerum
við okkur ekki grein fyrir ótta okkar fyrr en
hann er horfinn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sjaldnast vitum við alla söguna
um annað fólk og því eigum við að fara okkur
hægt í að dæma gjörðir þess. Ekki stinga
vandamálum undir stól því þau hverfa ekki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Eyddu ekki tímanum í bið eftir aðstoð
annarra heldur notaðu eigin hæfileika til þess
að ganga frá málunum. Hafðu ekki áhyggjur
af tímanum, það liggur ekki svo á.
Mér varð á í messunni, þegar égfjallaði um skírnarsálminn „Ó,
blíði Jesús blessa þú“ á miðvikudag.
Í sálmabókinni er hann sagður eftir
Ólaf Guðmundsson og Valdimar
Briem og gekk ég út frá því að
fyrsta erindið væri eftir Ólaf, en var
of fljótur á mér. Valdimar orti sálm-
inn eins og hann stendur í sálmabók-
inni. Ég fór í smiðju til Kristjáns
Vals Ingólfssonar vígslubiskups í
Skálholti og Einars Sigurbjörns-
sonar prófessors og er þeim þakk-
látur fyrir hversu vel þeir brugðust
við. Ég tek upp eftir Kristjáni Val:
„Skírnarsálmurinn í gerð Valdi-
mars Briem birtist í sálmabókinni
1886. Í þeirri útgáfu var höfunda
ekki getið við hvern sálm eins og síð-
ar varð, en í yfirliti kemur fram að
sálmurinn er merktur með x sem
táknar annaðhvort að hann sé sam-
inn upp úr öðrum sálmi eða þýddur.
Þannig vildi Valdimar að hann birt-
ist, hann var jú sjálfur í nefndinni.
Hvergi er getið um það í þessari bók
hvað sá sálmur hét sem umortur var
og gildir það eins um þennan.
Næsta sálmabókarútgáfa var
1945. Þar túlkaði nefndin x-ið við
skírnarsálminn sem svo að Valdimar
hefði þýtt hann, en vissi ekki hvað-
an, og þess vegna stendur þar frum-
sálmur óþekktur.
Það var svo séra Sigurjón Guð-
jónsson í Saurbæ, helsti sálma-
sérfræðingur 20. aldar, sem gerði
grein fyrir uppruna sálmsins í rann-
sóknum sínum á sálmasögu og
tengslunum við séra Ólaf í Sauða-
nesi. Hefur því beggja höfunda verið
getið síðan í 4. prentun þeirrar bók-
ar 1965 og í öllum sálmabókum síð-
an.“
Sálmur Ólafs var sex erindi og
birtist í Sálmabók Guðbrands 1589,
og síðan í öllum sálmabókum og
Gröllurum á 17. og 18 öld, þangað til
Magnús Stephensen breytti honum í
Leirgerði 1801. Hann vildi ekki hafa
„engla“ í öðru versi hér fyrir neðan
og setti í staðinn: „Ætíð hlíf því með
aðstoð þín“. Og síðan hefur hann í
lokaversinu, – „og er þá farinn að
nálgast Valdimar“:
Og lifi svo í heimi hér
að himneska fái dýrð með þér.
Þrjú síðustu erindi Ólafs, sem
Valdimar umorti, eru svona í Grall-
aranum;
Þetta barn þér befalað sé
blíði Jesú vor lausnari,
í þína kristni það innleið
þyrm og frelsa frá allri neyð.
Ætíð hlíf því með englum þín
frá ólukku slys og pín.
Með þinni ást og mildri náð
miskunna því og blessa það.
Veit því með aldri vöxt og spekt
að verði hlýðið þér og þekkt.
Og lifi hér heilaglega
hjá þér síðar ævinlega. Amen.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af séra Valdimar og séra Ólafi
Víkverji umgengst duglegt fólksem hefur verið svo heppið að
lenda ekki í alvarlegum veikindum
né atvinnumissi. Það er mikil lukka.
En stundum verður þessi lukka til
þess að sumir þeirra horfa til at-
vinnubóta og sjúkratrygginga með
tortryggnum augum. Allir eru sam-
mála um tilvist slíks kerfis. En þeg-
ar fregnir berast af því að einhverjir
séu að misnota kerfið til að svíkja út
úr því fé verður fólk skiljanlega fúlt.
Það bölsótast og stundum kemur
það með yfirlýsingar sem dæma allt
fólkið á slíkum bótum sem lið sem
ætti að fá sér vinnu og gera eitthvert
gagn. Þetta er þó mikill minnihluti
enda gera flestir sér grein fyrir því
að sá litli huti ræfla sem svíkja fé út
úr sjóðunum á ekki að vera notaður
sem réttlæting til þess að afnema
þetta tryggingakerfi sem hjálpar
fólki í gegnum erfiða tíma.
x x x
Á hinn bóginn þekkir Víkverji líkafólk sem tengist ekki við-
skiptum, starfar í opinbera geir-
anum, í listum eða öðrum geirum
samfélagsins, en það hefur horft upp
á fréttaflutning af því hvernig sumir
menn í viðskiptalífinu sýndu glæp-
samlega hegðun í uppsveiflunni. Þar
sem örfáir gerðust sekir um svik og
pretti og enn fleiri dönsuðu á gráu
svæði sem var á mörkum þess sem
telst siðferðislega viðurkvæmilegt.
Frá þessum félögum Víkverja heyrir
hann svipað raus um þetta lið í við-
skiptum eins og þeir væru allir
glæpamenn af því að einhverjir í
uppsveiflunni reyndust vera glæp-
samlegir. Þeir gleðjast í hvert sinn
sem menn úr viðskiptalífinu eru
settir í járn og trúa öllu illu sem um
þá er sagt, sama hversu lélegur fjöl-
miðill flytur fréttirnar eða heimild-
irnar eru slakar.
x x x
Víkverji myndi verða mjög glaðuref fólk myndi minnka aðeins til-
hneigingu sína til að dæma heila
stétt sem glæpamenn af því að ein-
hverjir innan hennar hafi reynst
vera það. Það eru glæpamenn innan
allra stétta landsins. En meirihluti
fólks innan þeirra er afbragðsmenn
sem eiga ekkert nema gott skilið.
Víkverji
Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú
um skamma stund hafið orðið að
hryggjast í margs konar raunum.
(1Pt. 1, 6.)
G
re
tt
ir
H
ró
lfu
r
hr
æ
ði
le
gi
G
æ
sa
m
am
m
a
o
g
G
rí
m
ur
F
er
di
n
an
d
ÞAÐ ER KOMIN
HELGI...
NÚNA GETUR
ÞÚ SLAKAÐ Á
S
m
áf
ól
k
ÉG SKAL
REYNA, EN BARA
Í ÞETTA EINA
SINN
„Á
JÓLA-
DAGINN
FYRSTA...
...HANN JÓNAS
FÆRÐI MÉR...
...EINN TALANDI
PÁFUGL Á GREIN”
SVONA
NÚ, Á FÆTUR
MEÐ ÞIG!
SVONA NÚ, FARÐU
OG LEYFÐU HÚSBÓNDANUM
Á HEIMILINU AÐ SOFA
AÐEINS LENGUR
EF HÚSBÓNDI
HEIMILISINS ER EKKI
KOMINN Á LAPPIR EFTIR
30 SEKÚNDUR, ÞÁ FÆR
HANN ENGAN
MORGUNMAT!
*ANDVARP*
MEIRA AÐ SEGJA HÚSBÓNDAR
ÞURFA AÐ BORÐA
ER ALLT Í LAGI
HEIMA FYRIR?
ÞÚ VIRÐIST VERA
EITTHVAÐ LÍTILL
Í ÞÉR