Morgunblaðið - 21.04.2012, Side 52

Morgunblaðið - 21.04.2012, Side 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012 DAGSKRÁ www.myndlistaskolinn.is OPIÐ HÚS og VORSÝNING Sunnudaginn 22. apríl kl.12-18 í MYNDLISTASKÓLANUM Í REYKJAVÍK, Hringbraut 121 • Sýning á verkum nemenda á námskeiðum Myndlistaskólans í Reykjavík. • KL.12 LIST ÁN LANDAMÆRA. Opnun sýningarinnar TILRAUNASTOFA • KL.13-14.30 LISTASMIÐJUR FYRIR FJÖLSKYLDUR / Barnamenningarhátíð • KL.14 Útgáfa 5.tölublaðs AAA!!! myndasögublaðs skólans • KL.14-16 KYNNINGAR á námsbrautum (sjá nánar um tímasetningar á vef): Framhaldsskólastig: Myndlista- og hönnunarsvið, Sjónlistadeild Starfstengt listnám / Diplómanám: Mótun, Teikning og Textíll. • KL.15.30-17 LISTASMIÐJUR FYRIR FJÖLDKYLDUR / Barnamenningarhátíð ALLIR VELKOMNIR ! OPIÐ HÚS Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Mótettukórinn flytur Messu í c-moll og Requiem eftir W.A. Mozart á sér- stökum hátíðartónleikum í dag, laug- ardag, og á morg- un, sunnudag, kl. 17 báða dagana í tilefni af 30 ára af- mæli Mót- ettukórsins og Listvinafélags Hallgrímskirkju. „Ég hef alltaf haft sérstakt dálæti á Requiem Mozarts og segja má að verkið hafi fylgt kórnum frá upphafi. Þetta var fyrsta stóra verkefnið sem kórinn flutti í Hallgrímskirkju eftir vígslu kirkj- unnar árið 1986 og síðan hefur það varðað okkar tónlistarflutning, en við erum að flytja það í fjórða sinn núna,“ segir Hörður Áskelsson, stofnandi og stjórnandi Mótettukórsins. Systurverk sakir stærðar Aðspurður segir Hörður verkin tvö kallast mjög vel á. „Þetta eru syst- urverk sakir stærðar sinnar og stöðu í kirkjutónverkum Mozarts. Þau eiga það bæði sameiginlegt að vera ókláruð frá höfundarins hendi,“ segir Hörður, en eins og kunnugt er lést Mozart árið 1791 áður en honum tókst að ljúka við Requiem. Messan er einnig ófullgerð, en hana samdi Mozart í Vínarborg á árunum 1782–83, þegar hann var á há- tindi ferils síns. „Þegar maður setur þessi tvö verk saman á eina tónleika er eins og þau bæti ófullkomleika hvort annars upp,“ segir Hörður og heldur áfram: „Snilli Mozart sem tónskálds er alkunn. Hann er mjög frumlegur auk þess sem tónlist hans einkennist af mikilli fegurð. Verk hans liggja nær óperunni heldur en önnur kirkjuleg tónverk, sem gerir þessi verk mjög spennandi fyrir okkur í flutningi.“ Gamlir kórfélagar í hópi ein- söngvara tónleikanna Með kórnum leikur Kammersveit Hallgrímskirkju, en konsertmeistari er Ari Þór Vilhjálmsson. Einsöngv- arar á tónleikunum eru Þóra Ein- arsdóttir sópran, Herdís Anna Jón- asdóttir sópran, Auður Guðjohnsen alt, Elmar Gilbertsson tenór og Magnús Baldvinsson bassi. Að sögn Harðar eiga þau það öll sameiginlegt að tengjast sögu Mótettukórsins. „Þóra hefur oft komið fram á tón- leikum með Mótettukórnum, nú síðast á jólatónleikum kórsins 2011, og Auð- ur söng einsöng með kórnum í Vesper eftir Rachmaninoff auk þess sem hún er nú meðlimur í kammerkórnum Schola cantorum. Þau Herdís Anna, Magnús og Elmar voru öll félagar í Mótettukór Hallgrímskirkju áður en einsöngvaraferill þeirra hófst erlend- is,“ segir Hörður og tekur fram að Magnús hafi reyndar verið einn af stofnfélögum kórsins á sínum tíma. „Það var áður en hann fór að læra söng, en vera hans í kórnum varð til þess að hann fór í söngnám.“ Meiri andstæður í túlkun Aðspurður segir Hörður að aðeins einn kórfélagi syngi í kórnum í dag sem verið hefur með frá upphafi. „Það hefur verið mikil endurnýjun í kórn- um í áranna rás, en að mínu mati hafa gæðin haldist stöðug,“ segir Hörður og bætir við: „Almennt séð eru söng- kraftar betur búnir til söngs í dag þótt ég hafi reyndar alltaf verið með gott fólk. Svo er auðvitað komin heilmikil reynsla sem bæði ég og kórfélagarnir búa yfir sem er til gagns.“ Spurður hvort hann geti greint ein- hverja þróun í hljómi kórsins á þeim 30 árum sem hann hefur stýrt honum segist Hörður ekki dómbærastur á það sjálfur og það í raun annarra að meta. „Auðvitað er það svo að hljóm- urinn mótast alltaf mjög mikið af stjórnandanum og ég hef haldið í ákveðnar hugmyndir í þeim efnum. Vissulega hafa áherslur mínar sem stjórnanda þó breyst á svona löngum tíma. Þannig er óhætt að segja að ég leggi meiri áherslu á kontrasta eða andstæður í flutningi og túlkun t.d. með tilliti til hraðavals, hljóms og styrkleika,“ segir Hörður að lokum. „Requiem hefur fylgt kórnum frá upphafi“  Mótettukórinn flytur Messu í c-moll og Requiem eftir W.A. Mozart á hátíðartónleikum í dag og á morgun kl. 17 Hörður Áskelsson Morgunblaðið/Ómar Söngstjarna Þóra Einarsdóttir sópran hefur margoft sungið einsöng með Mótettukórnum í gegnum tíðina. Ensk og frönsk tónlist verður í há- vegum á tónleikum í 15:15-syrpunni í Norræna húsinu á sunnudag kl. 15.15. Flytjendur eru Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari, Eydís Franzdóttir óbóleikari, Ármann Helgason klarínettuleikari og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari og á efnisskránni verk eftir Eugéne Go- ossens, William Hurlstone, Made- leine Dring og Camille Saint-Saëns. Verk ensku tónskáldanna eru sjaldheyrð hér á landi, en í kynnngu tónleikanna segir að þau séu létt og skemmtileg áheyrnar. „Hröðu þætt- irnir einkennast af sveiflandi dans- töktum og miklum glæsileika í and- stöðu við syngjandi lagræna þætti þar sem sveitastemning ríkir.“ Eugéne Goossens, sem lést 1962, var eftirsóttur sem tónskáld og hljómsveitarstjóri og starfaði meðal annars á Bretlandi, í Bandaríkj- unum og Ástralíu, William Hurl- stone, sem lést aðeins þrítugur 1906, þótti eitt efnilegasta tónskáld síns tíma og eftir hann liggja allmörg hljómsveitarverk, og Madeleine Dring, sem lést 1977, hefur oft verið líkt við George Gershwin. Camille Saint-Saëns, sem lést 1921, er svo eitt af þekktustu tónskáldum Frakka og samdi tónlist af öllu tagi, stór og smá verk. 15:15-tónleikar á sunnudag Morgunblaðið/Styrmir Kári Sveitastemning Hallfríður Ólafsdóttir, Nína Margrét Grímsdóttir, Eydís Franzdóttir og Ármann Helgason leika á 15:15 tónleikum á sunnudag. Ensk og frönsk tónlist í hávegum Biblían og stjórnmálin nefnist fyr- irlestur sem sr. Hjálmar Jóns- son, fyrrverandi alþingismaður, flytur á Listahá- tíð Seltjarnar- neskirkju á morgun kl. 17 í kirkjunni. Sólveig Pálsdóttir leik- kona mun við sama tækifæri lesa upp nokkur ljóð eftir stjórn- málamennina Grím Thomsen og Hannes Hafstein. Tónlist flytja þær Agnes Amalía Kristjónsdóttir sópran og Jóhanna Héðinsdóttir messósópran við píanóleik Ren- ötu Ivan. Biblían og menningin – vér viljum gera manninn í vorri mynd er yfirskrift Listahátíðar Seltjarnarneskirkju sem hófst fyrir viku og lýkur 28. apríl nk. Ókeypis er á alla viðburði hátíð- arinnar. Myndlistarmaður hátíð- arinnar er Karólína Lárusdóttir og eru m.a. nýjar vatns- litamyndir hennar til sýnis í kirkjunni alla daga. Dagskrá há- tíðarinnar má sjá í heild sinni á vefnum www.seltjarnarnes- kirkja.is. Sr. Hjálmar Jónsson fjallar um Biblíuna og stjórnmálin í Seltjarnarneskirkju Hjálmar Jónsson Jón Axel Björnsson tekur á móti gestum í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum kl. 14 á morgun, sunnudag, og leiðir þá um sýningu sína Tilvist. Á sýningunni gefur að líta ný olíumálverk og vatns- litamyndir eftir Jón Axel en þetta er fyrsta stóra sýning hans í áratug. Aðgangur að Listasafninu er ókeypis. Sýningin stendur til 6. maí. Listamannsleiðsögn um Tilvist Jón Axel Björnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.