Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012 Einu sinni var ég lítil sjö ára gömul stelpa. Þá var ég prinsess- an þín. Vonandi held ég þeim titli enn og var það vonandi í huga þín- um öll árin þín, þótt þú hafir ekki getað tjáð mér það. Það að vera þín prinsessa er eitthvað sem mig Jóhanna Sigrún Ingólfsdóttir ✝ Jóhanna Sig-rún Ingólfs- dóttir fæddist á Siglufirði 19. mars 1930. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 4. maí 2012. Útför Jóhönnu fór fram frá Foss- vogskirkju 14. maí 2012. langar að vera þang- að til ég fæ að hitta þig aftur. Mikið verður það gaman, að geta loksins talað við þig og heyrt þig segja frá þínu lífi eins og þú gerðir alltaf fyrir háttinn. Og búkolla, hún verður efst á mínum óskalista þá. En þangað til þá hef ég söguna alltaf hjá mér og á mér. Að hafa fengið að eiga þig sem ömmu mína er eitthvað sem ég er og mun alltaf verða óendanlega þakklát fyrir. Sem og að hafa dótt- ur þína sem mömmu mína, hún er það allra yndislegasta sem ég á. Mig langar að kveðja þig hér með bæninni sem þú kenndir mér og við fórum oft með saman. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesú mæti. (Höf. ók.) Eins láttu ljósið þitt lýsa í hjarta mitt, skína í sál og sinni, sjálfur vaktu þar inni. Lát húmið milt og hljótt hlúa að mér í nótt og mig að nýju minna á mildi arma þinna. Ég fel minn allan hag einum þér nótt og dag, ljósið af ljósi þínu lifi í hjarta mínu. (Sigurbjörn Einarsson.) Þín prinsessa, Anna Rán Árnadóttir. Í Fréttablaðinu 15.5. sá ég að auglýst var minningarathöfn um Svandísi Jónsdóttur leik- konu sem lést eftir erfið veik- indi. Svandís var gift Raymond Witch sem einnig var leiklist- armenntaður. Við vorum fjögur sem byrjuðum í leiklistarskóla Ævars R. Kvaran og fórum snemma að vinna saman og æfa ýmis verkefni sem tilheyrðu náminu. Svandís tók að sér að æfa upp einþáttung fyrir stúku- sýningu. Fékk hún til liðs við sig Bjarna Steingrímsson, Vil- borgu Sveinbjarnardóttur og mig. Í hópinn bættist svo Sig- urlína Óskarsdóttir sem benti á leikritið Festarmey að láni, eft- ir Astrid Lindgren. Eftir þetta fór Ævar að nota okkur til að sýna við ýmis tæki- færi. Þetta þróaðist síðan upp í það að við fengum leyfi Ævars til þess að fara með leikþáttinn til Ólafsvíkur, en þar þekkti Sigurlín vel til. Og í framhaldi af því, í lok fyrra tímabilsins á leiklistarskólanum æfðum við upp annan leikþátt, Geimfar- ann, sem við sýndum á Vest- fjörðum. Þarna var Svandís einn aðaldrifkrafturinn, enda vel menntuð, framtakssöm og forkur dugleg. Í lok seinni ársins á skól- anum hjá Ævari fórum við í sýningarferð um landið með nýja einþáttunga og enn sem nemendur Leiklistarskóla Æv- ars R. Kvaran. Árið á eftir stóðumst við inntökupróf í Leiklistarskóla Þjóðleikhússins. Nú vorum við ákveðin í að fara ekki fleiri nemendasýningar, töldum skólann of virðulegan fyrir slíkar ferðir. Þá var það að Svandís átti erindi til Guð- laugs Rósinkrans þjóðleikhús- stjóra. Hann spurði hvort hún væri ekki ein af þeim sem hefðu verið í Leikflokki Ævars. Hún játti því. Og nú var hún hissa þegar Guðlaugur sagði að hann hefði ekkert á móti því að við færum slíkar leikferðir sem nemendur Þjóðleikhússins. Við urðum auðvitað himinlif- andi og Svandýs fann og þýddi leikritið Morð eða hjónaband. Þar vorum við Bjarni og Svan- dís, auk Þorsteins Gunnarsson- ar, sem var þá einn af nem- endum skólans. Vilborg gat ekki verið með vegna þess að hún var í MR og hann stóð lengur en leiklistarskólinn. Til þess að fá lánaða leik- muni sem okkur vantaði frá Þjóðleikhúsinu og vegna ótta vissra kennara um að leiksýn- ing nemenda skólans stæðist ekki gæðakröfur þurftum við Svandís Jóns- dóttir Witch og Raymond Witch ✝ Svandís Jóns-dóttir Witch fæddist í Breið- holti 5. júní 1932. Hún lést 4. maí sl. Raymond Her- bert Witch fæddist í Hampton Court 6. október 1927. Minningar- athöfn um Svandísi og mann hennar Raymond Herbert Witch fór fram í Kópavogskirkju 17. maí 2012. að fá viðurkenndan leikstjóra til þess að leggja blessun sýna yfir sýninguna, en ég var leikstjórinn, Þorsteinn lék annan bróðurinn móti Bjarna Steingríms- syni og Svandís var frænkan, sem þeir bræður urðu, ann- aðhvort að giftast, eða myrða, til þess að eignin héldist í ættinni. Sjálfur lék ég, auk leikstjórnarinnar, forgaml- an þjón þeirra bræðra, Harry gamla. Öll vorum við nemendur, eins og fyrr getur, en eftir að Guð- laugur þjóðleikhússtjóri fékk umsögn Haraldar Björnssonar, leikara og leikstjóra, veitti hann okkur blessun sína og annað sem til þurfti. Öll útskrifuðumst við svo frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins eftir tveggja ára nám sem þá tíðkaðist. Ég er viss um að allir úr leikhópi nemenda Ævars og Þjóðleikhússins 1960 sakna Svandísar og vottum við ætt- ingjum hennar innilega hlut- tekningu okkar. Kristján Jónsson. Hugurinn leitar til bernsku- áranna þegar ég hugsa um Svandísi föðursystur mína, sem nú hefur fengið hvíld eftir ára- löng veikindi. Hún var yngsta barn ömmu og afa aðeins 11 ár- um eldri en ég. Ég leit mjög upp til duglegu frænku minnar með fallega glóbjarta hárið. Minningabrot streyma fram. Hún var félagslynd og átti góða vini. Svana í skátakjól að fara á skátafundi og útilegur. Svana átti stóra dúkku, mikla gersemi, sem gat lokað augunum og stundum fékk lítil frænka að leika sér með hana. Seinna gaf hún dóttur minni dúkkuna, sem nú er í minni vörslu. Svana í Kvennó og svo stúdent frá MR. Svana á ferðalagi í útlöndum og safnaði servíettum handa frænku sinni. Svana að vinna hjá Ellingsen. Svana í leiklist- arskóla. Svana að þýða og lesa framhaldsögu í útvarpinu. Svana og leikarahópurinn í sýn- ingarferð um landið. Já, það var gaman þá. Oft var glatt á hjalla á Spítalastígnum, þar sem alltaf var opið hús fyrir vini og vandamenn. Fjölskyldan öll einstaklega samheldin. Stundum fékk ég að fljóta með Svönu og vinkonum hennar sem mér fannst mikil upphefð. Við vorum góðar vinkonur þrátt fyr- ir aldursmuninn. Svana hélt svo til London að forframast í leiklistarfræðum. Þar kynntist hún ástinni í lífi sínu honum Ray. Þau komu til Íslands og störfuðu hér um tíma, settu m.a. upp leiksýn- inguna Belindu í Hafnarfirði. Svo vildi til að við giftum okkur báðar árið 1963. Ég flutti til Ísafjarðar um tíma og þangað komu Svana og Ray um páskana 1964 og dvöldu hjá okkur nokkra daga. Eftir það urðu samskiptin minni því þau fluttu til London og bjuggu þar alla tíð. Við hittumst þó yfirleitt þegar þau komu til Íslands og oft ók ég þeim á þá staði sem þau langaði að sjá meðan á dvöl- inni stóð, m. a. til Stokkseyrar þar sem þau giftu sig. Ég hélt líka lengi þeim sið að senda þeim póstkort ef ég var á ferðalagi og sagði Svana mér að sér þætti það gaman. Alltaf sendi ég líka smápakka með konfekti og stundum hangiá- leggi fyrir jólin. Aðeins tvisvar gafst mér kostur á að heim- sækja þau í London, en þar tóku þau vel á móti mér og Eyj- ólfi syni mínum og fóru með okkur í fallegan lítinn bæ sem þau höfðu miklar mætur á. Seinna skiptið sem við fórum var sjúkdómur frænku minnar farinn að gera vart við sig og ekki mörgum árum seinna var hún komin á hjúkrunarheimili. Ray reyndist henni einstaklega vel í veikindum hennar og sá til þess að allt væri frágengið og í lagi þegar hann lést eftir bar- áttu við krabbamein. Hann skrifaði mér nokkrar línur með jólakorti 2008 þar sem fram kemur að hann sé orðinn sjúkur og þreyttur. Því miður virðist heilbrigðiskerfið hafa brugðist og hann ekki hafa fengið þá umönnun sem hann þurfti á að halda fársjúkur. Ray lést í des- ember 2010 og hafði ég ekki tök á að fara við útför hans, en nú minnumst við þeirra beggja. Ég heyrði Jesú himneskt orð: Kom, hvíld ég veiti þér. Þitt hjarta’ er mætt og höfuð þreytt, því halla’ að brjósti mér. Ég leit til Jesú, ljós mér skein, það ljós er nú mín sól, er lýsir mér um dauðans dal, að Drottins náðarstól. (Stefán Thorarensen.) Katrín Eyjólfsdóttir. Látin er í London heiður- skonan Svandís Jónsdóttir Witch. Ég var svo lánsöm að kynnast henni og tilvonandi eig- inmanni hennar árið 1963. Svan- dís hafði þá lokið framhalds- námi við virtan leiklistarskóla í London eftir nám sitt við leik- listarskóla Þjóðleikhússins árið 1960. Áður hafði hún lokið stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík. Hinn 1. júní 1963 gekk Svan- dís að eiga Raymond Witch, en hann var einnig leikari og leik- stjóri. Leiðir þeirra höfðu legið saman í London og saman fluttu þau til Íslands til að freista gæf- unnar. Eftir heimkomuna fékk Ray tækifæri sem leikstjóri hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar við að setja á svið leikritið „Belinda“ eftir Elmer Harris, sem Svandís hafði þýtt og lék hún aðalhlut- verkið í leikritinu. Þau fengu lof fyrir þá sýningu. En margir eru kallaðir, en fá- ir útvaldir. Það tíðkaðist ekki þá eins og nú að fá erlenda leik- stjóra til að setja upp sýningar. Því miður fékk Ray ekki mikið að gera hér á landi sem leik- stjóri, svo dvölin hér á landi varð ekki löng. Eftir að þau fluttu aftur til London starfaði Ray við list sína sem „free lance“ mest, lék bæði í sjón- varpi, kvikmyndum og leikhúsi. Það kom fyrir að maður sá hann í ýmsum breskum framhalds- þáttum í sjónvarpinu hér heima. Hann var einstakur maður, mik- ill sjentilmaður og talaði þessa líka fallegu ensku, svo unun var á að hlýða. Svandís var íslenskari en allt sem íslenskt er. Mér fannst allt- af einhvern veginn að hún væri að koma úr Borgarfirðinum en ekki frá höfuðborginni London. Hún var alveg einstök kona, dugnaðarforkur til vinnu og góðum gáfum gædd. Það hefði verið sama hvað hún Svandís hefði tekið sér fyrir hendur. Hún var nokkurs konar „mång- sysslare“. Svandís ólst upp í stórum systkinahópi og var óvenju kært með þeim öllum. Ray átti eina systur sem býr ásamt fjölskyldu sinni í London. Þeim Svandísi og Ray varð ekki barna auðið. Svandís bjóst svo sem ekki við að fást mikið við leiklist eftir að þau fluttu utan, en hún vann alltaf skrifstofustörf þann tíma meðan hún hafði heilsu til og var afburða starfskraftur. Svandís og Ray voru sannir vinir vina sinna. Alltaf stóð heimili þeirra, sem fyrst var í Kensington og síðar í Blooms- bury, opið gestum frá Íslandi og kærkomið var að fá íslenskan mat að heiman. Þær gleymast ekki stundirnar þegar við fórum til Oxford, Bath og fleiri staða með þeim hjónum að ógleymd- um mörkuðunum í London. Það var í gegnum þeirra gleraugu sem ég kynntist þessari heims- borg. Síðast þegar leið mín lá um London síðla árs 2009 lá Ray á sjúkrahúsi þar sem hann and- aðist skömmu síðar. Svandís dvaldi á hjúkrunarheimili síð- ustu árin þar sem hún lést í lok apríl sl. Þegar þessir góðu vinir mínir eru nú kvaddir koma upp í hug- ann góðar minningar bæði héð- an og frá London. Ég votta bræðrum, mágfólki og systkinabörnum Svandísar mína dýpstu samúð. Minningin um þau hjón mun lifa. Bryndís Óskarsdóttir. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, FRIÐBJÖRG INGJALDSDÓTTIR, Grandavegi 45, Reykjavík, andaðist á Landspítala Fossvogi mánu- daginn 14. maí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 23. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Helgi Oddsson, Sigrún Oddsdóttir, Bjarni I. Árnason, Þóra Oddsdóttir, Sigurður B. Oddsson, Iðunn Lúðvíksdóttir, Oddur H. Oddsson, Elínborg Jóhannsdóttir, Pétur E. Oddsson, Margrét H. Kjærnested, Valgerður Oddsdóttir, Friðrik Eysteinsson, barnabörn, barnabarnabörn og langalangömmubarn. ✝ Elsku móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS SIGFÚSDÓTTIR frá Vogum í Mývatnssveit, Hörðalandi 8, lést á Landspítala Landakoti sunnudaginn 20. maí. Sólveig Ólöf Jónsdóttir, Pétur R. Guðmundsson, Guðmundur H. Pétursson, Elín B. Gunnarsdóttir, Birgir Tjörvi Pétursson, Erla Kristín Árnadóttir, Ásdís Ýr Pétursdóttir, Haraldur Örn Ólafsson, Bryndís Ýr Pétursdóttir, Jürgen Maier og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, tengdasonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR EINAR ÓLAFSSON framkvæmdastjóri, Stararima 21, sem lést fimmtudaginn 17. maí, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 25. maí kl. 13.00. Þorbjörg Jónsdóttir, Kolbrún Gunnlaugsdóttir, Ásdís Ýr Ólafsdóttir, Svavar Stefánsson, Kolbrún Ýr Ólafsdóttir, Ólafur H. Torfason og afabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, sonur, tengdasonur, tengdafaðir, bróðir, mágur og frændi, HALLDÓR JÓN GUÐJÓNSSON, Miðholti 9, Mosfellsbæ, lést á heimili foreldra sinna á Siglufirði mánudaginn 14. maí. Útför hans fer fram frá Siglufjarðarkirkju föstudaginn 25. maí kl. 13.30. Irene Jósepsdóttir, Heba Lind Halldórsdóttir, Sunneva Guðnadóttir, Jóel Manuel Fernandez, Sigurður Guðnason, Steinunn Ósk Magnúsdóttir, Valgerður Halldórsdóttir, Guðjón Jóhannsson, Jósep Magnússon, Anna Friðrikka Guðjónsdóttir,Óskar A. Finnbogason, Jóhann Þór Guðjónsson, Áshildur Vilhjálmsdóttir, Guðrún Ósk Guðjónsdóttir, Eyjólfur Hannesson og systkinabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.