Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012 Fyrstu klassísku tónleikarListahátíðar í Reykjavík2012 hófust í Eldborg ásunnudag kl. 14 með Hljómsveitarsvítum Bachs í með- förum Kammersveitar Reykjavíkur og Richards Egarr. Sama kvöld hélt „kraftaverkið frá St. Pétursborg“, réttu nafni Arcadi Volodos, píanó- tónleika á sama stað. Aðsóknin var í samræmi við há- spennta eftirvæntingu því ekki varð betur séð neðan úr gólfhæð en Eld- borgarsalur væri að heita fullsetinn, m.a.s. kórpallssætin aftan við sviðið. Að áhuginn væri ósvikinn mátti sjá og heyra á einbeitingu hlustenda. Ræskingar voru t.a.m. í lágmarki, og eins gott í sal sem magnar jafnt æskileg sem óæskileg hljóð betur upp en nokkur annar tónvettvangar landsins. Kom hvorttveggja, heyrð og næði, einleikaranum til góða. Alltjent minnist ég varla áður að hafa heyrt jafnvíðfeðm styrkbrigði í slaghörpu- leik. Þessi „lúxus“eiginleiki Eld- borgar – að skila jafnvel örveikustu tónum út í hvern krók og kima – ætti nú þegar að hafa sett salinn í eftir- sóknarverðan sérflokk, því fráleitt ná allir sinfóníusalir jafnframt að státa af úrvalsakústík handa undir- leikslausu píanói. Sú afspurn er áreiðanlega nokk- urs virði þá ginna skal fremstu pí- anóljón heimsins hingað, enda vissi sólisti kvöldsins auðsjáanlega af henni miðað við hvað hann nýtti sér hljómburðinn út í hörgul, í gullvægri vitund um að forsenda dýnamískrar spennu er einmitt fólgin í listrænni nýtingu á styrkrænum andstæðum allt frá hinu vart heyranlega að fít- onskrafti fortissimósins. En þótt hinn nú fertugi Volodos léki að þessu leyti á als oddi, þá sagði það ekki alla söguna. Né held- ur einu sinni tæknilegur brilljans Rússans, er skilaði hverri nótu of- urskýrt á jafnvel manndrápshraða þegar svo bar undir, að ógleymdu syngjandi legatói á öðrum stöðum svo minnt gat á líðandi strengjasveit eða dúnblítt orgel. Útslagið gerði hinsvegar afburða- vel útfærð mótun og hnitmiðað formskyn, er komu manni á köflum næstum því til að halda að píanistinn hefði samið verkin sjálfur. Hvað mig varðar, er sízt verður vændur um sérstaka hollustu við stærri tón- smíðar Franzs Liszts, má eflaust þakka nefndum sérgáfum að með- ferð Volodosar á h-moll sónötunni eftir hlé hélt mér aldrei þessu vant upptendruðum til enda. Hvað svo sem það segir öðrum. Upphafsverk kvöldsins, hin dimmleita a-moll Sónata Schuberts frá 1823, er í I. þætti þrammar veg- laust áfram lömuð þjáningu grimmra örlaga, bryddar eftir stutta hæga miðþáttinn upp á vellandi létt- leika, líkt og til að minnast fyrri sorglausari tíma. Sónatan þykir afar vandmeðfarin í túlkun – en í undra- gegnsærri útleggingu Volodosar var verkið nánast eins og lesið upp úr hispurslausri dagbók. Hin þrjú Int- ermezzi (millispil) Brahms voru engu síðri í flutningi, og naut sín bezt íðiltært nr. 1 er ber aukakeim af ferskleika þjóðlaga og kóraflokknum Liebesliederwalzen. Tónleikaskráin fræddi ekki hlust- endur í neinu um verkin og því hætt við að sumir söknuðu betri viður- gjörnings SÍ á álíka ritvangi. Það spillti samt ekki fyrir ógleymanlegu kvöldi, og þó að aukalög Pétursborg- armeistarans byðu ekki upp á flug- eldasýningu á við umritun hans á Rondo alla Turca Mozarts, gátu allir farið fullsáttir heim. Ógleymanlegur píanisti Ógleymanlegt Volodos uppskar dynjandi lófatak að loknum tónleikum sínum í Eldborgarsal Hörpu. Eldborg í Hörpu Listahátíð – píanótónleikar bbbbb Schubert: Sónata í a D754 Op. 143. Brahms: Þrjú intermezzi Op. 117. Liszt: Sónata í h-moll. Arcadi Volodos píanó. Sunnudaginn 20. maí kl. 20. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Gillon – Næturgárun bbbnn Um er að ræða listamannsnafn Gísla Þórs Ólafs- sonar skálds, en hann hefur verið iðinn við ljóða- bókakolann undanfarin ár og gefið út bók á ári. Gísli hefur hins vegar lýst því að ljóðabókaútgáfan hafi aðallega verið til að undirbúa hann fyrir tón- listarútgáfuna og nú er sumsé komin út breiðskífa með tíu frumsömdum lögum, hans fyrsta. Tónlistin er nokkuð hrá og minnir mig stundum einhverra hluta vegna á amerískt háskólarokk frá níunda ára- tugnum. Lagasmíðarnar eru þannig séð hefðbundnar en það er eitthvað „auka“ þarna sem hífir þau upp yfir meðalmennsku. Í rokkaranum „Blindaður af ást“ sýnir Gísli t.a.m. fram á að hann er naskur melódíu- smiður, fallegt lag sem límir sig þægi- lega við heilann, og í ballöðunni „Fyrir tilstilli þína“ nær Gísli inn að hjartarótum, söngröddin veðruð, rám og nánast „pínd“ – sótraftaleg á áhrifaríkan hátt þar sem hann nær að knýja fram angurværa, löngunarfulla tóna. Þetta er allt á réttri leið. Kjuregej – Lævirkinn bbbbb Alexandra Arg- unova „Kjuregej“ er upprunalega frá fyrr- verandi sovétlýðveld- inu Jakútíu en hefur búið hér í 46 ár. Hún er myndlistarkona, leikari, leiktjalda- og búningahönnuður og tónlist- armaður en Lævirkinn er, ótrúlegt en satt, hennar fyrsta plata. Á henni syngur hún sextán lög, flest þeirra þjóðlög á jakútsku en einnig lög á rússnesku og íslensku. Plata þessi er að sönnu fengur þar sem Kjuregej syngur þjóðlög sem eru mörg hver í útrýmingarhættu í heimalandinu. Áferðin er jafnan ang- urvær og á köflum dökkleit og í söng- röddinni má nema nið aldanna, til- finningaþrungin áköll í bland við ástríðufulla saknaðarsöngva. Íslensk lög eins og „Til eru fræ“ og „Úr Sól- eyjarkvæði“ fá þá á sig nýstárlegan blæ og Kjuregej gerir þau algerlega að sínum með magnaðri, ástríðullri túlkun. Þegar best lætur er fegurðin stingandi. Glæsilegt verk. Að lokum ber að geta umslags- hönnunar allrar sem er sérstaklega vönduð og falleg. Tríó Glóðir – Bjartar vonir bbbbn Hafsteinn Þór- ólfsson söngvari er langafabarn Odd- geirs Kristjáns- sonar, þjóðskálds Vestmannaeyja ef svo má segja. Hann ákvað árið 2003 að Oddgeir skyldi hann heiðra með því að gefa út plötu á hundrað ára af- mæli hans og hér gefur að líta af- raksturinn. Hann fékk þá Ingólf Magnússon bassaleikara og Jón Gunnar Biering Margeirsson gít- arleikara til liðs við sig en auk þess kemur söngkonan Sigríður Thorlac- ius við sögu í völdum lögum. Óhætt er að segja að vandað hafi verið til alls frágangs, hvort sem hann snýr að umbúðum eða innihaldi. Grip- urinn sjálfur er fallegur, fjöldi ljós- mynda prýðir bæklinginn, textar fylgja auk þess sem saga Oddgeirs er rakin. Tónlistin sjálf er þá í samræmi við þetta. Hljómur er algerlega frá- bær og útsetningar sömuleiðis, tríóið nálgast lögin af næmi og natni. Áferð- in er lágstemmd, söngurinn er í for- grunni og undirspil allt einstaklega smekklegt. Á köflum minnir platan mig á þrekvirki Einars Scheving, Land míns föður, þar sem hún mynd- ar einstaklega notalega og þægilega áru sem leggst utan um þig eins og dúnn. Virkilega vel að verki staðið. Raggi Dan – Hughrif bbmnn Höfundur plöt- unnar, Ragnar Dani- elsen, lýsir innihald- inu sem „slökunar- tónlist hjartalæknis- ins“, enda er hann sjálfur einn slíkur. Ragnar stofnaði Stuðmenn á sínum tíma í MH ásamt þeim Valgeiri Guðjónssyni, Jakobi Frímanni Magnússyni og Gylfa Krist- inssyni en sveitin hét þá Frummenn (og platan Tapað/fundið, sem end- urreistir Frummenn gáfu út árið 2006, varð kveikjan að þessari plötu Ragnars). En eins og Ragnar segir; innihaldið er slökunartónlist og virkar ágætlega sem slík. Uppistaðan er gítarspil en undir eru áreynslulitlar hljómborðs- mottur. Hljómur hefði getað verið betri og motturnar eru sumar hverjar komnar yfir síðasta söludag. Gít- arleikur er hins vegar prýðilegur. Lögin renna hvert inn í annað, eru nokkuð einkennalaus og á köflum „hverfur“ tónlistin, sem er í raun út- gangspunktur svona tónlistar. „Ambi- ent“-tónlist á að umlykja þig og mynda stemningu, hún á ekki að áreita eða láta bera á sér. Eysteinn Pétursson – Það er margt í mannheimi bbbbn „Ef Ólöf Arnalds væri eldri maður sem byggi í Breiðholt- inu …“ er ein af þeim setningum sem ég hef heyrt í tengslum við þessa dásamlegu plötu Eysteins Pét- urssonar. Sonur hans, Svavar Pétur Eysteinsson (Prinspóló), sá um upp- tökur og útgáfu og innihaldið er ein- læg og alþýðleg tónlist sem Eysteinn syngur við eigið gítarundirspil. Mörg laganna urðu til á námsárum Ey- steins í Kaupmannahöfn og bera með sér skemmtilega sérstæðan blæ. Söngur Eysteins er í senn blíður og hrjúfur, á vissan hátt seiðandi og röddin dregur mann inn í lögin. Sum þeirra, eins og „Ókindarkvæði“, eru naumhyggjuleg þar sem versin ganga í endurteknum lykkjum en hér eru líka galgopalegar smíðar („Má ég fá harðfisk“) og opnunarlagið, „Það sem enginn veit“, er einfaldlega fallegt. Hljómur plötunnar er lágstemmdur og berstrípaður flutningurinn gerir að verkum að maður dokar við og sperrir óhjákvæmilega eyrun. Það er svo nærandi að hlusta á tón- list sem er gerð á hinum einu og réttu forsendum; hinni knýjandi þörf til að skapa. Það gefur óhjákvæmilega eitt- hvað satt af sér, eitthvað fallegt, eins og þessa plötu hér. Lævirkinn „Plata þessi er að sönnu fengur þar sem Kjuregej syngur þjóðlög sem eru mörg hver í útrýmingarhættu í heimalandinu.“ Íslenskar plötur Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hér getur að líta gagnrýni á nýútkomnar íslenskar plötur af hinu og þessu tagi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.