Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012 FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Kostnaður ríkissjóðs við nýtt hús- næðisbótakerfi gæti orðið 23-27 milljarðar. Bætur fjögurra manna fjölskyldu sem fær óskertar hús- næðisbætur samkvæmt kerfinu yrðu 37.400 krónur á mánuði eða 528 þús- und á ári. Vinnuhópur á vegum velferðar- ráðherra skilaði í gær skýrslu um húsnæðisbætur. Hópurinn leggur til að tekið verði upp eitt húsnæðisbóta- kerfi fyrir alla landsmenn, óháð bú- setuformi. Í dag niðurgreiðir hið op- inbera húsnæðiskostnað heimilanna með ýmsum hætti. Um 14 milljörðum er varið í vaxtabætur fyrir þá sem eiga húsnæði. Um 6,5 milljarðar fara í sérstakar vaxtabætur, en þær voru hugsaðar sem tímabundin aðgerð vegna áranna 2011 og 2012. Um 4,3 milljarðar fara í almennar húsa- leigubætur og um einn milljarður í sérstakar húsaleigubætur. Það eru sveitarfélögin og ríkissjóður sem greiða húsaleigubætur, en ríkis- sjóður greiðir vaxtabætur. Lúðvík Geirsson, formaður vinnu- hópsins, segir að mikill munur sé á stuðningi hins opinbera eftir því hvort fólk á húsnæðið sem það býr í eða leigir það. Hann nefndi sem dæmi að reiknað hafi verið út að fjöl- skylda með meðaltekjur og með um 150 þúsund króna húsnæðiskostnað á mánuði hefði á árunum 2000-2010 fengið samtals um 7,5 milljónir í vaxtabætur frá ríkinu. Ef þessi sama fjölskylda hefði búið í leiguhúsnæði hefði hún ekki fengið neitt. Lúðvík tók fram að þessar tillögur væru ekki til komnar vegna hrunsins og erfiðleika heimilanna við að ráða við húsnæðiskostnað heldur væru þær hugsaðar til framtíðar og vegna þess að núverandi kerfi hefði marga ókosti. Lúðvík sagði að vinnuhópurinn hefði lagt áherslu á að búa til einfalt kerfi. Kerfið gerði ráð fyrir að stuðn- ingurinn miðaði við fjölskyldustærð. Ekki ætti að skipta máli aldur þeirra sem búa á heimili, en núverandi húsaleigubótakerfi miðar við aldur barna. Í skýrslu vinnuhópsins er tekið dæmi af fjögurra manna fjölskyldu sem býr í 111 fm íbúð í fjölbýlishúsi í Reykjavík. Hún á tæplega 3,5 millj- ónir í íbúðinni og skuldar 13,8 millj- ónir. Lánið er til 25 ára og fyrsta af- borgun er 78.516 krónur á mánuði. Heildarárstekjur fjölskyldunnar eru 8 milljónir og ráðstöfunartekjur tæp- lega 5,8 milljónir. Þessi fjölskylda fengi 142 þúsund á ári í húsnæðis- bætur, ef miðað er við 7% tekju- skerðingarmörk en 252 þúsund ef miðað er við 5% tekjuskerðingar- mörk. Hún fengi sömu upphæð ef hún væri í leiguhúsnæði. Í dag fengi þessi sama fjölskylda tæplega 19 þúsund í vaxtabætur en ef hún væri á leigumarkaði fengi hún ekki neitt. Um 25% af fjölskyldum búa í dag í leiguhúsnæði, en fyrir fáum árum var þetta hlutfall 20%. Flest bendir til að þetta hlutfall eigi enn eftir að hækka. Gæti kostað ríkissjóð 23-27 milljarða á ári Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýtt húsnæðisbótakerfi Lúðvík Geirsson, formaður vinnuhóps á vegum velferðarráðherra, kynnir fyrirhugaðar húsnæðisbætur. Við útreikning á upphæð hús- næðisbóta hefur verið horft til þess að jafna þurfi mun á milli framfærslu almannatrygginga, grunnneysluviðmiða velferðar- ráðuneytisins og meðalleigu á höfuðborgarsvæðinu. Miðað er við að grunnupphæð húsnæð- isbóta fyrir einstakling sé 22 þúsund á mánuði eða 264 þús- und á ári. Ef tveir eru á heimili fer upphæðin upp í 30.800 kr. Ef þrír eru á heimili er miðað við 37.400. Ef fjórir eru á heimili er miðað við 44.000 kr. Ef fimm eru á heimili er miðað við 46.200 kr. og ef sex eða fleiri eru á heimili er upphæðin 48.400 kr. eða 580.800 krónur á ári. 22 þúsund á mánuði GRUNNUPPHÆÐ BÓTA Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Loftslagsbreytingar á norðurheim- skautinu munu bæði skapa tækifæri og vandamál, segir haffræðingurinn Jean-Claude Gascard, forstöðumað- ur ACCESS-verkefnisins um fé- lagsleg og hagræn áhrif loftslags- breytinga á norðurslóðum. Gascard er staddur hér á landi ásamt Jean- Charles Pomerol, prófessor í tölvun- arfræðum og fyrrverandi rektor Université Pierre et Marie Curie í París, en þeir munu m.a. undirrita samstarfssamning við Háskólann á Akureyri og funda með íslenskum embættis- og fræðimönnum um mál- efni norðurskautssvæðisins. Utanríkisráðherrar Íslands og Frakklands ákváðu í mars síðastliðn- um að stórauka samstarf þjóðanna um norðurslóðarannsóknir og hefur íslenskum fræðamönnum m.a. verið boðin þátttaka í ACCESS-verkefn- inu, sem byggist á DAMOCLES- verkefninu um loftslagsbreytingar á norðurheimskautinu, sem lauk 2009. Í ACCESS verða m.a. umhverfis- áhrif breytinganna rannsökuð en einnig áhrif þeirra á siglingar, þ.á m. ferðaiðnað, fiskveiðar og nýtingu náttúruauðlinda. Þá verður þróunin á svæðinu skoðuð í samhengi við nú- gildandi lög og samninga og leitast við að sjá fyrir og draga úr líkum á mögulegum hagsmunaárekstrum. „Ef umsvif aukast á svæðinu eykst til dæmis áhættan á mengun og öðr- um vandamálum sem við erum að takast á við annars staðar í heimin- um. Þetta eru vandamál sem við munum þurfa að horfast í augu við, vera undirbúin fyrir og gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir. En ACCESS starfar ekki á sviði stjórn- málanna; það snýst um að safna upp- lýsingum, framkvæma vísindalegar rannsóknir og auka skilning og reyna að spá fyrir um atburði. Þeir sem eru við völd munu síðan taka ákvarðanir byggðar á þessum upp- lýsingum,“ sagði Gascard í samtali í franska sendiráðinu í gær. Óvíst um áhrif á stefnumótun Hann sagði of snemmt að ræða um niðurstöður þar sem verkefnið væri skammt á veg komið en að skilningur vísindamanna á áhrifum loftslags- breytinga á hafísinn, hafið og and- rúmsloftið á norðurheimskautinu hefði aukist síðastliðin ár. Þá sagði hann ljóst að breytingarnar væru ör- ari en módel hefðu spáð fyrir um og að tímabilið frá því að hafísinn bráðnaði að vori og frysi aftur að hausti hefði lengst um mánuð á tíu árum. „Þetta er umtalsverð breyting og spurningin er hvort þetta tímabil eigi enn eftir að lengjast í framtíðinni eða hvort það komist á jafnvægi. Þessari spurningu er ACCESS ætl- að að svara,“ segir Gascard. Hann segir enn eiga eftir að koma í ljós að hversu miklu leyti rannsókn- irnar muni hafa áhrif á stefnumótun en eitt af viðfangsefnum verkefnisins er að rannsaka hvaða breytingar á regluverki og sáttmálum þróunin á norðurslóðum muni kalla á. „Í DAMOCLES gátum við greint mjög ákveðin tengsl milli hitastigs- ins í Barentshafi og löndunar afla á sama tíma. Þetta eru mjög áhuga- verðar rannsóknir en duga þær til að fá sjávarútveginn eða stjórnvöld til að taka upp kvóta eða koma á ein- hvers konar regluverki um veiðarn- ar? Við áttum ekki svar við þessu þegar DAMOCLES lauk en stefnum á að hafa fengið svar þegar ACCESS lýkur. Að sjá hvort vísindaleg sönn- unargögn séu nógu sannfærandi og áreiðanleg til að telja þá sem stjórna, og útvegsmennina sjálfa, á að taka tillit til þeirra,“ sagði hann. Kortleggja þróunina á norðurslóðum  Íslenskum vísindamönnum boðin þátttaka í fjölþættu verkefni um áhrif loftslagsbreytinga á norður- slóðum  Leggja mat á tækifæri og áhættuþætti  Reyna að sjá fyrir mögulega hagsmunaárekstra Morgunblaðið/Styrmir Kári Samvinna Jean-Claude Gascard og Jean-Charles Pomerol. ACCESS- verkefninu er m.a. ætlað að spá fyrir um ástand mála eftir 30 ár. Gascard segir áhrifa loftslags- breytinganna þegar gæta á Ís- landi þar sem veiði hafi aukist norðan við landið í kjölfar þess að Norður-Atlantshafsstraum- urinn hafi teygt anga sína lengra norður. Þá segir hann mögulegt að loftslagsbreytingarnar muni hafa áhrif á veðurfar á Íslandi, séstaklega með tilliti til þess að lægðarbrautir liggi yfir landinu. Þetta sé nokkuð sem íslenskir vísindamenn og sérfræðingar fylgist með og það verði áhuga- vert að sjá hver þróunin verði. Áhrifa gætir á Íslandi LOFTSLAGSBREYTINGAR ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00 Opið um helgar frá 18:00 - 23:00 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar ÞRÍR FRAKKAR Café & Restaurant Pönnusteikt búraflök með humri og humarsósu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.