Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Boris John-son, borg-arstjóri Lundúna, þykir ein helsta von- arstjarna breska Íhaldsflokksins eftir varnarsigur sinn í bar- áttunni um höfuðborgina. Hann lætur mjög til sín taka í umræðu um fleira en borgarmál. Nú síðast fjallaði hann um vandræði Grikklands, sem leiðtogar Evrópusambandsins og „G-8“ segjast vilja leysa með niðurskurði og atvinnu- sköpun í senn. Þetta eru einhvers konar hræringur af þýsku og frönsku leið- inni, sem dengt var saman eftir forsetaskipti í Frakk- landi. Borgarstjórinn í Lund- únum telur sig vita upp á hár hvað felist á atvinnu- sköpun að uppskrift búró- krata í Brussel. Hann biður lesendur sína að slást í för með sér um miðborg Aþenu, þaðan sem hann er nýkom- inn, þótt hætt sé við að þá muni sundla við að sjá hvernig áður stolt ríki standi nú á barmi stjórn- málalegs, efnahagslegs og siðferðislegs hruns: „eftir áralangt utanaðkomandi kvalræði og einelti“. Boris borgarstjóri lýsir þeim hryllingi sem fyrir augu hans bar í heimsókn hans til Aþenu og segir svo: „Þúsundir manna verða að treysta á súpugjafir hjálp- arstofnana til að lifa daginn. Atvinnuleysið vex dag frá degi og er komið í skamm- arlegar hæðir, eða í 54 pró- sent hjá ungu fólki. Já, gott fólk, þetta er árangur af því sem ESB sagði að myndi skapa vöxt og störf. „Evra“ er það kallað og leiddi hörmulega ógæfu yfir Grikki og hefur einnig reynst mjög skaðlegt fyrir aðrar þjóðir á meginlandinu (með einni undantekningu).“ Borgarstjórinn víkur því næst í grein sinni að því að nú séu leiðtogar evrusvæð- isins farnir að ræða op- inskátt um að sennilega verði óhjákvæmilegt að ýta Grikklandi út úr evrunni. Slíkt hefði áður verið bann- orð á svæði hennar. Grikkir sjálfir séu þó ekki að biðja um þá niðurstöðu enda séu þeir ekki undir hana búnir eftir áróðurinn sem á þeim hefur dunið. „En hvað svo?“ spyr hann. Jú, fyrst þurfi menn auðvitað að brenna fyrir sár- ið eftir aflimunina og sam- einast svo um yfirlýsingar, til að róa markaðinn, um að meiri upplausn verði ekki liðin á svæðinu. Þýskaland muni verja Spán og Portú- gal með sínum sjóðum og evrusvæðið verði gert að fjármálalegri heild því öfl- ugra og einsleitara banda- lag sé eina lausnin í stöð- unni. Boris Johnson borg- arstjóri telur á hinn bóginn að þrengingarnar á evru- svæðinu muni aðeins aukast við þær aðfarir: „Á daginn er komið að evran hefur reynst dómsdagsmaskína, fargari atvinnu, og kæfing alls vaxtar.“ Síðar í grein sinni furðar Boris borg- arstjóri sig á að for- ystumenn í hans eigin flokki séu opinberlega teknir upp á að mæla með því við ná- granna sína á meginlandinu að evrusvæðið verði allt lát- ið lúta fjárhagslegri yf- irstjórn í Brussel: „Það minni helst á að gefa bíl- stjóra sem stefnir á stál- vegg á miklum hraða það neyðarráð að stíga nú bens- íngjöfina í botn en láta bremsuna eiga sig.“ Og hann heldur áfram: „Hvergi á öðru sambæri- legu svæði í öllum heim- inum er hagvöxtur jafn lítill og í Evrópu um þessar mundir. Mörgum árum hef- ur verið á glæ kastað í til- raunum til að halda evru- sjúkdómnum niðri. Árangurinn er sá að við klöstrum upp á krabbamein- ið en kálum sjúklingnum. Við höfum valdið óteljandi mörgum miklum skaða og tapað óteljandi störfum á meðan sjálfsblekkingunni um að „meiri Evrópa“ sé lausnin á hinni miklu krísu hefur verið haldið á lofti“. Það er sjálfsagt gustuk að segja ekki mönnum eins og borgarstjóranum í London frá því að á Íslandi sé enn til flokkur með blindingja innanborðs sem trúa því að ESB og evran þess sé allra meina bót, hvort sem þau séu innvortis eða útvortis. Boris Johnson, borgarstjóra í London, sundlaði eftir veru í Aþenu} Stígið á bensíngjöfina, bílstjóri F orsíða tímaritsins TIME í byrjun maí vakti mikla athygli. Á henni mátti sjá mynd af móður með tæplega fjögurra ára son sinn á brjósti. Greinin, undir fyrirsögn- inni „Ert þú nægilega mikil mamma?“, fjallaði um nýstárlega hugmyndafræði um barnaupp- eldi, svonefnt bindi-uppeldi (Attachment Par- enting) sem felst í þremur grundvallarþáttum; framlengdri brjóstagjöf, sameiginlegum svefn- venjum og jafnframt að ungbörn séu fest við foreldra sína öllum stundum í burðarpokum. Forsíðumyndin og greinin vöktu heilmikla um- ræðu um allan heim um brjóstagjöf og nútíma- uppeldi. Móðirin á forsíðunni, Jamie Lynne Grumet, hefur hlotið mikla athygli fyrir og ekki alla já- kvæða. Viðhorfið til brjóstagjafar hefur þótt gamaldags og teprulegt í Bandaríkjunum og hefur verið unnin mikil átaksvinna þar í landi til að breyta því. Aftur á móti hefur viðhorfið til brjóstagjafar þótt opið og ný- stárlegt hér. Það þykir sem betur fer sjálfsagt hér á landi að konur gefi barni brjóst á almannafæri þó ég ætli ekki að fullyrða um viðhorf fólks til þess að hafa börn í mörg ár á brjósti. Það er eflaust stundum gamaldags. En í ljósi þess hvað umræðan um brjóstagjöf er mikil og opin hér koma nýjar tölur um brjóstagjöf á Íslandi nokkuð á óvart. Í nýjasta tölublaði Talnabrunns; fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, er kynnt niðurstaða úr nýrri úttekt á brjóstagjöf og næringu ungbarna hér á landi. Tölurnar eru byggðar á gögnum frá heilsu- gæslustöðvum fyrir börn fædd á árunum 2004-2008. Þær sýna að 86% vikugamalla barna hér á landi voru eingöngu á brjósti en 98% fengu brjóstamjólk með ábót. 8% sex mánaða gamalla barna voru eingöngu á brjósti en 74% barna á sama aldri voru að ein- hverju leyti á brjósti. Þá fékk ríflega helm- ingur átta mánaða gamalla barna einhverja brjóstamjólk, eða 61%, en tæpur þriðjungur eins árs gamalla barna, eða 27%. Samkvæmt bandarískum brjóstagjafatöl- um CDC fyrir árið 2011 byrjuðu 75% af bandarískum mæðrum á að gefa barni sínu brjóst, 44% gefa enn brjóst um 6 mánaða ald- ur en aðeins 15% eru þá eingöngu með barnið á brjósti. Í Talnabrunni landlæknisembættisins kem- ur fram að hlutfall þeirra barna sem eru eingöngu á brjósti hálfs árs gömul telst nokkuð lágt hér á landi miðað við ráðleggingar um að ungbörn neyti eingöngu brjósta- mjólkur frá fæðingu til sex mánaða aldurs, sé þess nokk- ur kostur. Þá er mælt með áframhaldandi brjóstagjöf með annarri fæðu í allt að tvö ár eða lengur. Sonur Jamie Lynne Grumet á líklega eftir að njóta góðs af þolinmæði móður sinnar og öllum ber að virða hennar uppeldisaðferðir. En það ber líka að virða að ekki geta allar konur gefið brjóst og sumar kjósa að hafa barn- ið sitt ekki lengur á brjósti en nokkra mánuði. Hver verð- ur að hafa sinn háttinn á. ingveldur@mbl.is Ingveldur Geirsdóttir Pistill Hver verður að hafa sinn háttinn á STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Að beiðni innanríkisráðherra,Ögmundar Jónassonar,sendi vegamálastjóri bréftil þriggja sveitarfélaga á Norðvesturlandi í síðasta mánuði þar sem tilkynnt var að Vegagerðin mundi ekki vinna frekar að hug- myndum um styttingu hringvegarins framhjá Blönduósi og Varmahlíð í Skagafirði. Þar með dró Vegagerðin til baka kröfur um að mögulegar veg- línur færu inn á aðalskipulag sveitar- félaganna, m.a. svonefnd Svínavatns- leið. Innanríkisráðherra tilkynnti þessa ákvörðun sína einnig til Skipu- lagsstofnunar; um að flutningur hringvegarins á þessum stöðum væri ekki inni í samgönguáætlun, hvorki til fjögurra né tólf ára. Svandís Svav- arsdóttir, umhverfisráðherra og flokksystir innanríkisráðherra, hafði áður úrskurðað að Blönduósbær og Húnvatnshreppur skyldu merkja sér- staklega veglínu Svínavatns/ Húnavallaleiðar á nýjum að- alskipulagsuppdrætti áður en skipu- lagið fengist staðfest. Af þessu hefur ekki orðið, enda hafa hugmyndir að nýjum veglínum mætt mikilli andstöðu heimamanna, sérstaklega á Blönduósi þar sem hringvegurinn liggur í gegn. Var til skoðunar að færa hring- veginn frá Blönduósi á nýja Svínvetn- ingabraut um Húnavelli og að Langa- dal miðjum. Myndi þessi leið stytta hringveginn um 14 km með 17 km löngum nýjum vegi. Gegn heildarhagsmunum En það fagna ekki allir ákvörðun innanríkisráðherra og Vegagerð- arinnar. Eyfirðingar hafa farið fram- arlega í flokki þeirra sem vilja ná fram vegarstyttingum milli Akureyr- ar og Reykjavíkur. Þegar Blönduós- bær gekk frá nýju aðalskipulagi haustið 2010, sem gildir til 2030, var ekki gert ráð fyrir færslu hringveg- arins og af um 200 athugasemdum við skipulagið komu flestar frá Akureyri. Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins í bæjarstjórn Akureyrar, dregur stórlega í efa að innanríkisráðherra hafi farið að lögum í málinu, hvort sem um er að ræða vegalög eða stjórnsýslulög. Vísar hann þar m.a. til 28. gr. vegalaga frá árinu 2007: „Ákveða skal legu þjóðvega í skipulagi að fenginni tillögu Vega- gerðarinnar, að höfðu samráði Vega- gerðarinnar og skipulagsyfirvalda. Fallist sveitarfélag ekki á tillögu Vegag. skal það rökstyðja það sér- staklega. Þó er sveitarfélagi óheimilt að víkja frá tillögu Vegagerðarinnar ef það leiðir til minna umferðarör- yggis en tillagan felur í sér.“ Það er einmitt umferðaröryggið sem er ein helsta röksemd Njáls Trausta, fyrir utan arðsemina sem hann telur vera eina þá mestu á hringveginum öllum. Hann hefur skoðað slysatíðni á fimm mismunandi köflum á þjóðvegi eitt og komist að því að hún er mest á köflunum um Langadal og Blönduós, eða 1,67 og 2,01 slys á hverja milljón ekna kíló- metra. Slysatíðnin á öðrum köflum var 0,79 til 1,04, þ.e. á Vesturlands- vegi, Suðurlandsvegi og veginum um Víkurskarð og Svalbarðsströnd. Samkvæmt þessum útreikningum telur Njáll að fækka megi slysum um 10-11 á ári með því að fara nýja Svínavatnsleið. „Það er verið að taka sérhagsmuni umfram hagsmuni heildarinnar og um leið verið að vinna gegn öðrum byggðum og sam- keppnishæfni annarra svæða,“ segir hann og bendir á að um helmingur umferðarinnar gegnum Blönduós tengist Akureyri með einum eða öðrum hætti. Ekki eigi þó að leggja niður núverandi vegi heldur bjóða vegfar- endum upp á valkosti, vilji þeir stytta leið sína. Fór ráðherrann framhjá vegalögum? Blönduós Svínavatn 731. Svínvetningabraut 728.Auðkúluvegur 724.Reykjabraut Auðkúla H ún af jö rð ur Laxárvatn LANGIDALUR Blanda Ti lR ey kj av ík ur Til Akureyrar Svínavatnsleið - hugmyndir Ný veglína 1 Ný veglína 2 Ný veglína 3 Vegir sem tengjast Svínavatnsleið Þjóðvegur 1 Njáll Trausti Friðbertsson á Akureyri ritaði nýlega grein í Akureyri vikublað þar sem hann fjallar um ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra varðandi nýjar veglínur um Húnaþing og Skagafjörð. „Þetta mál er dæmi um yfir- gang þar sem ekki er litið til nokkurra raka, hvort sem tekið er tillit til umferðaröryggissjón- armiða, þjóðhagslegrar arðsemi styttinganna eða umhverfis- þátta,“ ritaði Njáll Trausti m.a. í greininni og hvatti Ögmund Jónasson til að taka tillit til hagsmuna heildarinnar og endurskoða afstöðu sína. Sagði hann ráðherra hafa eyðilagt margra ára vinnu við að auka umferðaröryggi og draga úr ferðakostnaði. Njáll Trausti segist í samtali við Morgun- blaðið ætla að senda Ög- mundi bréf og óska eftir nánari rökstuðn- ingi fyrir ákvörðun hans. Útilokar hann ekki að fara með málið lengra ef svörin verða að hans mati ófullnægjandi. Óskar eftir rökstuðningi ÓSÁTTUR VIÐ ÖGMUND Njáll Trausti Friðbertsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.