Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið erum oft langelsta lið- ið þar sem við keppum. Við tókum þátt í Drottningamóti ÍR í apríl síðastliðnum en á því móti keppa einvörðungu kvenna- lið utan deilda. Í vor tóku níu lið þátt og yngstu stelpurnar voru 25 ára. En við stóðum samt uppi sem sigur- vegarar á mótinu og það var vissu- lega sætur sigur fyrir okkar þessar gömlu að ná að vinna ungu stelp- urnar. Þar kom reynslan sér vel. Við vorum vissulega orðnar þreyttar eft- ir að hafa spilað átta leiki á einum degi, en við tókum þetta á keppnis- skapinu á síðustu metrunum,“ segir Elísabet Tómasdóttir en hún er ald- ursforseti hins gallharða liðs sem kallar sig KR Old-girls. Kjarninn í hópnum kemur úr meistaraflokki KR „Ég byrjaði í KR árið 1979 og kjarninn í þessum hópi spilaði með meistaraflokki KR í gamla daga. Ég er aldursforsetinn í hópnum, stend á fimmtugu, en sú yngsta verður fer- tug í haust. Þessi hópur sem skipar KR Old-girls hefur verið að sparka saman bolta undanfarin fimmtán ár. Við hittumst einu sinni í viku nánast allt árið um kring. Það þarf að hafa virkilega góða afsökun til að mæta ekki og það gerist ekki oft að æfing- ar falli niður vegna lélegrar mæt- ingar.“ Tveir hópar á Pollamótinu Síungu stelpurnar í KR Old- girls ætla að fara í tíunda sinn í sum- ar norður á Pollamótið á Akureyri en þar er keppt í eldri flokkum í fót- bolta, bæði karla og kvenna. „Þetta er stórt og skemmtilegt mót sem Grjótharðar stelpur í KR Old-girls Þeim finnst fátt skemmtilegra en að spila fótbolta og hafa gert það markvisst undanfarin fimmtán ár. Sú yngsta er fertug en sú elsta er fimmtug. Þær gerðu sér lítið fyrir og unnu Drottningamót ÍR sem fram fór í vor. KR Old-girls Standandi f.v. Sigrún Gréta Helgadóttir, Hjördís Guðmunds- dóttir, Hrefna Harðardóttir, Margrét Leifsdóttir, Elísabet Tómasdóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Sigríður Fanney Pálsdóttir, Inga Lára Þórisdóttir. Fremri röð f.v. Nanna Herborg Tómasdóttir, Sigurbjörg Haraldsdóttir, Ásta Edda Stefánsdóttir, Edda Júlía Helgadóttir. Vaskar Guðlaug og Hjördís slást um boltann og þrumuskot í uppsiglingu. Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) stendur fyrir svokölluðum hefðbundnum UMSB-göngum í sum- ar alla fimmtudaga. Ævinlega er lagt af stað frá upphafsstað göngu kl 20. Á vefsíðunni ganga.is kemur fram að í ár sé markmiðið að ganga á sex fjöll á sambandssvæðinu. Þetta eru mjög breytilegar göngur og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hver ganga getur tekið allt frá einum og hálfum tíma upp í fjóra til fimm tíma. Göngurnar fóru af stað í maí en næsta ganga verður núna á fimmtu- dag 24. maí, en þá verður gengið á Miðfellsmúla í Hvalfjarðarsveit. Þann 7. júní verður svo gengið á Svartatind í Skarðsheiði og 21. júní verður geng- ið á Vikrafell, en það verður sólstöðu- ganga. Nú er um að gera að kynna sér á síðunni fleiri fimmtudagsgöngur og finna eitthvað við sitt hæfi, skella sér af stað og taka alla fjölskylduna með. Vefsíðan www.ganga.is Ljósmynd/Eyþór Árnason Fjallganga Að ganga á fjall er hressandi útivist og líka þrælskemmtilegt. Fjallgöngur alla fimmtudaga Á þessum árstíma eru flestir fúsir til að fara út og gera eitthvað skemmti- legt, hreyfa sig og vera í góðum fé- lagsskap. Því er tilvalið að hóa fólki saman í smærri eða stærri hópa og skipuleggja gönguferðir, fjallgöngur, hjólatúra, boltaspark eða hvað annað sem fólk hefur gaman af að gera ut- andyra. Það þarf ekki að vera flókið eða dýrt, stundum er nóg að sigra lágreist fjall í næsta nágrenni eða ganga hringinn í kringum vatn sem ekki er langt frá heimilinu. Svo er um að gera að taka hundinn með í styttri ferðir, skepnurnar vita fátt skemmti- legra en að fá að skottast með. Endilega… …hóið fólki saman og út Morgunblaðið/Ómar Rómantík Gaman að ganga saman. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Norðurlandamótið í taekwondo fór fram í Malmö um síðustu helgi og fyrir Íslands hönd kepptu um 30 ein- staklingar, bæði í ólympískum bar- daga og formi. Taekwondosamband Íslands (TKÍ) sendi landsliðsfólk á öllum aldri, krakka í afrekshópnum Ung & Efnileg, unglingahópinn og landsliðið. Íslenska landsliðið í ólympískum bardaga hreppti silfur meðal landsliða og er það besti ár- angur landsliðsins til þessa á Norður- landamóti. Keppendur í formi náðu einnig góðum árangri, en þar hreppti Guðrún Vilmundardóttir silfur. Í formi er keppt í einstaklings-, para og hópakeppni og þær Hulda Rún Jóns- dóttir, Hildur Baldursdóttir og Svein- borg Katla Daníelsdóttir lönduðu silfri í hópaflokki. Norðurlandamót í Malmö Ljósmynd/Afturelding Glæsileg Hún er björt framtíðin með svona flottum fulltrúum. Gott gengi á taekwondomóti Umhverfisvæn ræsting með örtrefjum Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700 raestivorur.is Ræsting með örtrefjaklútum og moppum er hagkvæmari og skilar betri árangri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.