Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjör Hér takast þær á Guðlaug, Sigrún og Elísabet en Ásta kemur askvaðandi í átt til þeirra. Þór á Akureyri heldur. Við höfum barist fyrir því að á Pollamótinu sé keppt í aldursskiptum deildum, því það getur verið fráhrindandi fyrir þær sem keppa að allir aldurs- flokkar séu í einum hópi. Liðin sem hafa á að skipa leikmönnum 35 ára og eldri mæta síður til leiks. Til dæmis söknum við kvennaliðs sem tók þátt í mótinu í mörg ár en þær kölluðu sig Andspyrnuna og voru mömmur úr Þrótti. Við erum búnar að ná því fram að þessu sé skipt upp í tvo hópa og þannig hefur það verið undanfarin ár, sem er mikil framför.“ Viljum vera öðrum stelpum hvatning til að halda áfram að spila Af einhverjum ástæðum er miklu algengara að karlar spili með Old Boys eftir að þeir hætta í meistaraflokki. „En sem betur fer sýnist mér það vera vaxandi að stelpur sem eru hættar að keppa haldi áfram að æfa. Þegar við hættum á sín- um tíma voru mjög fáir svona kvennahópar. Margar stelpur detta út á unglingsaldri og svo verður líka brottfall þegar þær fara að eiga börn. Við viljum vera þess- um stelpum hvatning til að halda áfram að spila fótbolta.“ Dýrmæt vinátta Elísabet segir að það að vera í KR Old-girls snúist um miklu meira en það eitt að spila fótbolta. „Þetta er frábær félagsskapur og dýrmæt vinátta til margra ára. Inn- an hópsins er gott tengslanet og mikill stuðningur. Við höldum alltaf veglega árshátíð á vorin og förum þá helst út úr bænum. Og einu sinni héldum við árshátíð í London. Þess á milli gerum við heilmikið annað sam- an og á haustin er oftast haustfagn- aður,“ segir Elísabet og bætir við að þær telji sig líka góða fyrirmynd fyrir hinar yngri. „Það skiptir máli að þær sjái að það er ekkert mál fyrir konur á milli fertugs og fimmtugs að spila fót- bolta.“ Þarf að hafa fyrir því „Það eru ekki mörg lið sem hafa á að skipa konum sem eru fjörutíu ára og eldri. Ég viðurkenni alveg að ég þarf að hafa fyrir því að spila fótbolta við mér tíu árum yngri konur, en það verður vissulega til þess að ég held mér í góðu formi og ég er miklu duglegri að hreyfa mig en annars væri. Það er svo gaman að spila fótbolta og maður vill ekki missa af því að komast á æfingar einu sinni í viku og vera með þessum góða hópi. Þetta drífur mann sannarlega áfram í líkamsræktinni. Það er mjög jákvætt og við ætlum að halda ótrauðar áfram. Það er engin uppgjöf í stelpunum í þessum hópi.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012 Um helgina fór fram Landsbankabik- armót fyrir börn í skylmingum og var mikil stemning meðal þeirra rúmlega sextíu barna og unglinga sem tóku þátt. Úrslit í tveimur efstu sætum hvers flokks voru eftirfarandi: Keppnisflokkur stúlkna Unglingar I (13-14 ára): 1. Urður Egilsdóttir, Skylmingafélag Reykjavíkur. 2. Freyja Sif Stefnisdóttir, Skylmingafélag Reykjavíkur. Keppnisflokkur drengja Unglingar I (13-14 ára): 1. Róbert Elís Villalobos Skylmingadeild FH. 2. Magni Snævar Jónsson Skylmingadeild FH. Keppnisflokkur drengja Börn II drengja, 11-12 ára: 1. Andri Nikolaysson Mateev Skylmingafélag Reykjavíkur. 2. Egill Pétur Ómarsson Skylmingafélag Reykjavíkur. Keppnisflokkur stúlkna Börn II stúlkna, 11-12 ára: 1. Anna Margrét Ólafsdóttir Skylmingafélag Reykjavíkur. 2. Ísabella Ösp Herbjörnsdóttir Skylmingadeild FH. Keppnisflokkur drengja Börn I drengja, 9-10 ára: 1. Krummi Uggason Skylmingafélag Reykjavíkur. 2. Albert Flóventsson Skylmingafélag Reykjavíkur. Keppnisflokkur stúlkna Börn I stúlkna , 9-10 ára: 1. Viktoría Huld Ragnarsdóttir Skylmingadeild FH 2. Ísafold Kristín Halldórsdóttir Skylmingafélag Reykjavíkur Landsbankabikarmót Skylmingar unga fólksins Efri röð f.v: Urður Egilsdóttir, Freyja Sif Stefnisdóttir, Magnea Jansdóttir, Birta Ösp Rósinberg, Gabríel Gísli Haraldsson, Sigurjón Breki Gunn- laugsson, Magni Snævar Jónsson og Róbert Elís Villalobos. Neðri röð f. v: Guðrún Louise Maier, Diljá Eiðsdóttir, Rós Ólafsdóttir, Ísabella Ösp Her- björnsdóttir, Anna Margrét Ólafsdóttir, Egill Pétur Ómarsson og Andri Ni- kolaysson Mateev. Guðrún Louise Maier og Anna Margrét Ólafsdóttir. Anna Margrét Ólafsdóttir og Ísabella Ösp Herbjörnsdóttir. Eldsneytiskostnaður Volkswagen Passat á hverja 1000 km* Metan 8.442 kr. Dísil 13.484 kr. Bensín 18.158 kr. www.volkswagen.is Metanlegur sparnaður Volkswagen Passat EcoFuel Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat * Miðast við almennt verð á eldsneyti hjá Olís 8. maí 2012 Passat kostar aðeins frá 3.990.000 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.