Morgunblaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
Sumarbolir
Verð 1.290 kr.
Margir litir
BROSANDI
ALLAN
HRINGINN
HÓTEL EDDA
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
0
5
8
6
12 HÓTEL ALLAN HRINGINN
Pantaðu allan hringinn á www.hoteledda.is eða í síma 444 4000.
1ML Laugarvatn • 2 ÍKÍ Laugarvatn • 3 Skógar • 4 Vík í Mýrdal • 5 Nesjum • 6 Neskaupstaður
7 Egilsstaðir • 8 Stórutjarnir • 9 Akureyri • 10 Laugarbakki • 11 Ísafjörður • 12 Laugar í Sælingsdal
Veitingastaðir á öllum hótelum • Alltaf stutt í sund
Vingjarnleg þjónusta • Gjafabréf fáanleg • Eddubiti í ferðalagið
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
07
53
HVERT SEM
TILEFNIÐ ER
til vinnu og frístunda
Fatnaður og skór
25180
Litir: Svartur/hvítur
Kr. 7.990
25170
Litir: Ljósblátt/dökkblátt
Kr. 6.990
25130
Litir: Svart/hvítt
Kr. 7.690
25220
Litir: Rautt/sand/blátt
Kr. 7.990
25090
Litir: Svart/hvítt/blátt
Kr. 10.900
00314
Litir: Svart/hvítt/
rautt/blátt
Kr. 11.900
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568
2878, praxis.is
25200
Litir: Svart/hvítt
Kr. 8.600
Erum á sama
stað og
Friendtex
Frú Sigurlaug
Mjóddin s. 774-7377
Aðhaldsföt
Sundbolir
Tankini
Bikini
Náttföt
Undirföt
Sloppar
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Að mati Bjarna Más Magnússonar,
sérfræðings í hafrétti við Háskólann
í Reykjavík, er það ekki hafið yfir all-
an vafa að Geirfugladrangur teljist
gildur grunnlínupunktur eins og
þjóðréttarfræðingur utanríkisráðu-
neytisins staðhæfir.
Fram kom máli starfsmanns
Landhelgisgæslunnar í Morgun-
blaðinu í síðustu viku að Geirfugla-
drangur væri horfinn í sæ. Tómas H.
Heiðar, þjóðréttarfræðingur í utan-
ríkisráðuneytinu, sagði í Morgun-
blaðinu síðastliðinn laugardag að
þetta væri ekki rétt og að enn mætti
sjá flæðisker þar sem drangurinn
stóð áður. „Ég tel það hafið yfir allan
vafa að Geirfugladrangur teljist enn
flæðisker í merkingu hafréttarsamn-
ingsins og gildur grunnlínupunktur
þótt vissulega hafi drangurinn látið
nokkuð undan í tímans rás,“ sagði
Tómas á laugardag.
Notast er við grunnlínur sem upp-
hafsreit til að ákvarða ytri mörk haf-
svæða ríkja. Þegar talað er um að
efnahagslögsagan sé 200 sjómílur er
átt við að hún sé 200 sjómílur frá
grunnlínum. Því eru miklir hags-
munir fólgnir í því fyrir Íslendinga
að hægt verði að nota Geirfugla-
drang sem grunnlínupunkt til þess
að ákvarða ytri mörk efnahagslög-
sögunnar á Reykjaneshrygg þar
sem er gjöful úthafskarfaveiði.
Ólík notkun á flæðiskerjum í
hafréttarsamningnum
Bjarni Már Magnússon bendir á
að samkvæmt hafréttarsamningnum
sé hægt að nota flæðisker sem
grunnlínupunkt með tvenns konar
hætti. Almennt er talið að einungis
sé hægt að nota aðra aðferðina á
flæðisker sem ekki er fjær en 12 sjó-
mílur frá meginlandi eða eyjum, en
Geirfugladrangur er fjær landi en 12
sjómílur og kemur því varla til álita í
þesssu samhengi.
Hina aðferðina er hægt að nota á
svokallaðar beinar grunnlínur en ís-
lenskar grunnlínur hafa ævinlega
verið taldar til þeirra. Sú aðferð
kveður á um að ekki skuli draga
beinar grunnlínur „að og frá flæði-
skerjum nema vitar eða svipuð
mannvirki, sem eru stöðugt ofan-
sjávar, hafi verið byggð á þeim eða
svo hátti til að mörkun grunnlína að
og frá þessum skerjum hafi verið al-
mennt viðurkennd á alþjóðavett-
vangi,“ segir Bjarni.
Verður að spyrja hvort þögnin
ein sé nægjanleg viðurkenning
Þar sem enginn viti eða önnur
mannvirki eru staðsett á Geirfugla-
drangi segir Bjarni að skoða verði
hvort Geirfugladrangur hafi verið al-
mennt viðurkenndur á alþjóðavett-
vangi. Spyrja verður hvort almenn
viðurkenning á alþjóðavettvangi
þurfi að fela í sér einhvers konar
beina yfirlýsingu eða aðgerð annarra
ríkja eða hvort „þögnin ein“ sé nægj-
anleg viðurkenning. Jafnframt verð-
ur að spyrja hversu mörg ríki þurfi
að viðurkenna lögmæti grunnlínu-
punkts og hvort máli skipti að þau
hafi einhverra hagsmuna að gæta
eða ekki. Við þessum spurningum er
ekkert skýrt svar að mati Bjarna.
Spurningum ósvarað
Bjarni bendir jafnframt á að hafa
verði í huga að hafréttarsamningur-
inn setur það skilyrði fyrir notkun
beinna grunnlína að á þeim stöðum
þar sem slíkar línur séu dregnar sé
strandlengjan mjög vogskorin og
óregluleg eða strandeyjaröð sé í
næsta nágrenni strandlengjunnar.
Spyrja verður hvort strandlengja
ysta odda Reykjanessins falli í þann
flokkinn.
Að lokum leggur Bjarni áherslu á
að ekkert ríki hefur mótmælt Geir-
fugladrangi sem grunnlínupunkti og
að það þekkist að flæðisker hafi verið
notuð sem grunnlínupunktur þrátt
fyrir að þau séu mannvirkjalaus eða
hafi ekki verið almennt viðurkennd á
alþjóðavettangi. Sádi-Arabía og Sýr-
land hafa t.a.m. notast við slík sker.
Óljóst lögmæti
Geirfugladrangs í
hafréttarsamningi
Ekkert ríki hefur mótmælt drang-
inum sem grunnlínupunkti
Hafréttur Bjarni Már Magnússon,
sérfræðingur í hafrétti við HR.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Íslenska brids-
landsliðið á enn
möguleika á að
komast í úr-
slitakeppnina á
Evrópumótinu í
brids í Dublin en
til þess þarf hag-
stæð úrslit á
lokadegi riðla-
keppninnar í dag.
Ísland vann í gær Dani, 19:11, en
tapaði fyrir Austurríki, 7:23, og
Sviss, 14:16. Þegar tveimur um-
ferðum er ólokið í dag er íslenska
liðið í 10-11. sæti í sínum riðli
ásamt Dönum en 9 lið fara áfram í
úrslit.
Ísland spilar við Rússa í dag en
situr síðan yfir í lokaumferðinni
síðdegis.
Íslenska liðið er með 222 stig í
10-11. sæti ásamt Dönum og Wales
hefur 223 stig. Frakkar hafa 226
stig í 8. sæti, Svisslendingar 235 og
Pólverjar 240 stig í 6. sæti. Mónakó
hefur mikla yfirburði í riðlinum en
liðið er með 309 stig, Englendingar
eru í 2. sæti og Rússar í því þriðja.
Í hinum riðli mótsins hafa Ítalir
forustu með 272 stig.
Eiga enn möguleika
á úrslitasæti á EM