Morgunblaðið - 19.06.2012, Page 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012
Á morgun hefst jógahátíðin Sumar-
sólstöður sem haldin verður á
Lýsuhóli á Snæfellsnesi. Um er að
ræða fimm daga jógahátíð þar sem
jógaiðkendur koma saman og sam-
eina huga og líkama. Þetta er í
annað sinn sem hátíðin er haldin
og fer þátttakendum fjölgandi milli
ára að sögn Sólveigar Kristjáns-
dóttur, sálfræðings og jógakenn-
ara, sem tekur þátt í að skipu-
leggja hátíðina. „Í fyrra vorum við
rúmlega fjörutíu en núna eru
skráðir tæplega sjötíu þátttak-
endur,“ segir Sólveig ánægð með
viðtökurnar.
Fjölbreytt jógadagskrá
„Við verðum með jógatíma
kvölds og morgna og fáum þekkta
jógakennara eins og til dæmis Auði
Bjarnadóttur til að kenna,“ útskýrir
Sólveig en á hátíðinni verður iðkað
svokallað Kundalini-jóga. „Kundal-
ini-jóga er svipað
öðru jóga nema í
því er yfirleitt
meiri áhersla á
hugleiðslu en
vanalega,“
segir Sól-
veig og
bætir við
að dag-
skrá hátíð-
arinnar verði
mjög fjöl-
breytt.
„Það verður
farið í gönguferðir
og boðið upp á alls-
konar fyrirlestra,“ segir hún. „Við
ætlum að nýta okkur þær göngu-
leiðir sem eru á Snæfellsnesinu og
fara í miðnæturgöngu á Snæfells-
jökul,“ segir Sólveig. „Fyrirlestr-
arnir verða til dæmis um austur-
lenska lækningaspeki, hugleiðslu
og slökun. Þetta verður allt jóga-
tengt efni og fræðsla sem nýtist
jógaiðkendum.“
Sólveig segir ekki nauðsynlegt
að hafa mikla reynslu af jóga til að
sækja hátíðina. „Það eru allir vel-
komnir,“ segir hún og bætir við að
sérstök kynning verði haldin fyrir
byrjendur. „Við verðum með kynn-
ingu á jóga fyrir byrjendur svo há-
tíðin hentar öllum sem hafa áhuga.
Þátttakendur þurfa ekki að hafa
áralanga reynslu af jóga eða vera í
svakalega góðu líkamlegu formi því
hver og einn getur valið sér hvaða
jógatíma hann vill sækja,“ segir
Sólveig og bætir við að enn sé op-
ið fyrir skráningar á heima-
síðu hátíðarinnar,
www.sumarsol-
stodur.123.is. Eins og
áður sagði stendur há-
tíðin yfir í fimm
daga, 20.-24.júní,
en hægt er að
skrá sig á þá daga
sem hentar best
eða jafnvel
skella sér í
einn jóga-
tíma og
greiða fyrir
slíkan.
sigyn@mbl.is
Jógahátíð á Snæfellsnesi
Jóga í miðnætursólinni
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Ný markmið Í ágúst keppir Elma á heimsmeistaramóti WBFF í Toronto en markmið hennar er að bæta sig og koma
enn sterkari inn á næsta mót. Hún viðurkennir þó að hún sé ekki enn búin að átta sig á þessu öllu saman.
ekki verið eins erfiður og hún bjóst
við. „Mataræðið hentaði mér full-
komlega og orkan var mikil. Það
sem hefur verið erfiðast við þetta er
að geta ekki tekið þátt í öllu
félagslífinu enda krefst það
mikillar einbeitingar og rút-
ínu að klára svona ferðalag.
Það er líka mikill kostnaður
við að taka þátt í svona
móti en sem betur fer
fékk ég góða styrkt-
araðila til að styrkja
mig, þar á meðal
Icepharma, Vaxt-
arvörur, snyrtistof-
an Krisma, Laugar
Spa og vitanlega eru fjöl-
skylda og vinir ómet-
anlegur styrkur.“
Braut ísinn
Aðspurð af hverju hún
hafi ákveðið að taka þátt í
móti í fyrsta sinn segist
Elma alltaf hafa haft áhuga á
hreysti. „Ég hef farið á ótal
mót og fengið að fylgja vin-
konum mínum alla leið þegar
þær hafa tekið þátt í mótum.
Loks fann ég að ég var sjálf
tilbúin, að það væri kominn
tími til að brjóta ísinn og stíga
á svið,“ segir Elma sem kveið
ekkert fyrir keppninni. „Ég bjóst
við að ég yrði taugahrúga en þetta
var svo gaman að kvíðinn komst
ekki að. Ég var greinilega tilbúin í
þetta. Ég kom því sjálfri mér á
óvart og naut þess í botn að vera á
sviðinu. Minn persónulegi sigur var
í höfn þegar ég hafði brotið ísinn og
þá var eins gott að standa sig og
gera sitt besta.“ Elma segir að það
skemmtilegasta í öllu þessu ferli,
æfingunum og mótinu, hafi tví-
mælalaust verið félagsskapurinn.
„Það er líka ansi gaman að sjá af-
raksturinn af ellefu ára lyftingum.
Svo má ekki gleyma allri hvatning-
unni og hrósinu sem ég hef fengið,“
segir Elma og bætir við að hún hafi
alls ekki búist við að þetta yrði
svona skemmtilegt.
Gerst ansi hratt
Framundan hjá Elmu er
heimsmeistaramót WBFF í To-
ronto sem haldið verður 24.-25.
ágúst en þar mun Elma stíga á svið
með mörgum af þekktustu hreysti-
stjörnum heims. Innt eftir því hvort
Elma sé búin að átta sig á þessu
öllu saman segist hún engan veginn
búin að því. „Þetta er svona að pús-
last saman en þetta hefur gerst
ansi hratt. Markmið mín núna eru
að halda áfram að bæta mig og
koma enn sterkari inn á næsta
mót.“
WBFF stendur fyrir
World Bodybuilding &
Fitness Federation en
það eru líkamsrækt-
arsamtök sem stofnuð
voru af Paul Dillett
sem er með 25 ára
reynslu af atvinnu-
mennsku í vaxtarrækt. WBFF
standa fyrir ótal hreysti-
keppnum um allan heim enda
er markmið samtakanna að
gefa íþróttafólki vettvang þar
sem það getur keppt og kom-
ið er fram við það af fag-
mennsku. Metnaðurinn í sam-
tökunum er því mikill, hvort sem
verið er að setja upp sýningu eða
láta keppendum líða vel. Þannig
vill WBFF stuðla að aukinni
hreysti í atvinnugrein sem fer sí-
fellt stækkandi. Á mótum WBFF
er hægt að keppa í mörgum
flokkum, allt frá módelhreysti yf-
ir í vaxtarrækt.
LÍKAMSRÆKTARSAMTÖK
Fagmennska
að leiðarljósi
www.volkswagen.is
Frelsi til
að ferðast
Volkswagen Tiguan
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Tiguan
Tiguan Sport & Style kostar aðeins frá
6.190.000 kr.
Fullkomið leiðsögukerfifyrir Ísland
Volkswagen Tiguan sportjeppi eyðir
aðeins 5,8 l á hverja 100 km.