Morgunblaðið - 19.06.2012, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012
Sumarsólstöður verða miðvikudag-
inn 20. júní nk. Þá um kvöldið kl. 20
mun Vinafélag Krýsuvíkurkirkju
gangast fyrir stuttri en táknrænni
helgistund við grunn Krýsuvíkur-
kirkju, sem brann fyrir fáeinum ár-
um.
Sr. Gunnþór Þ. Ingason, sérþjón-
ustuprestur á sviði þjóðmenningar,
og sr. Þórhallur Heimisson, sókn-
arprestur Hafnarfjarðarkirkju,
munu stýra helgistundinni. Á eftir
verður farið í stutta göngu um
Krýsuvíkurtorfuna og boðið í
kvöldkaffi í Sveinssafni.
Bygging nýrrar Krýsuvíkur-
kirkju, sem Vinafélagið beitir sér
fyrir og er nemendaverkefni Iðn-
skólans í Hafnarfirði, gengur vel og
standa vonir til að hún verði vígð
sumarið 2013.
Helgistund við
grunn Krýsu-
víkurkirkju
Krýsuvíkurkirkja árið 2007.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Julieanne Kost, kennari hjá hug-
búnaðarframleiðandanum Adobe,
verður með námskeið í mynd-
vinnslu á Grand hóteli, föstudag-
inn 6. júlí og laugardaginn 7. júlí.
Kost verður hér á vegum
FocusOnNature. Námskeiðin
verða annars vegar um Photo-
shop 6 og hins vegar um Adobe
Lightroom 4. Hún mun einnig
stýra vinnustofu fyrir erlenda
ljósmyndara.
Kost hefur áður haldið nám-
skeið hér á landi. Nánari upplýs-
ingar um námskeiðin eru á vef
FocusOnNature, www.focuson-
nature.is.
Námskeið í ljós-
myndavinnslu
Verslunin Thorvaldsensbazar,
Austurstræti 4, tekur fram í til-
kynningu, að þar séu eingöngu
seldar handprjónaðar lopapeysur
sem prjónaðar eru á Íslandi.
Sama sé að segja um annað
handprjón sem þar er selt.
Thorvaldsensfélagið stofnaði
Thorvaldsensbazarinn í júnímán-
uði 1901 og hefur verslunin alltaf
verið á sama stað við Austur-
stræti 4. Allur ágóði af sölu á
Bazarnum rennur til góðgerðar-
mála.
Aðeins handprjón-
aðar lopapeysur
STUTT
SVIÐSLJÓS
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
„Jarðvegur er sennilega sú auðlind
sem skiptir okkur mestu máli þegar
til alls er litið og við verðum að líta
til þess að hún er ekki endurnýj-
anleg, í það minnsta ekki á þeim
tímaskala sem okkur er tamt að líta
til, sem er okkar ævilengd,“ segir
Jóhann Þórsson, sérfræðingur hjá
Landgræðslu ríkisins, en hann var
meðal fyrirlesara á málþingi sem
efnt var til í gær undir yfirskriftinni
„Ástand landsins – moldrok eða
grænar hlíðar?“
Þingið var haldið á vegum Land-
græðsluskóla Háskóla Sameinuðu
þjóðanna í samstarfi við Landbún-
aðarháskóla Íslands og Land-
græðslu ríkisins.
„Jarðvegur er ekki eitthvað sem
maður býr til. Þegar Ísland var
numið fyrir þúsund árum hafði land-
ið verið íslaust í níu þúsund ár. Í
þann tíma myndaðist jarðvegur sem
var sú auðlind sem menn gengu að
og lifðu á næstu þúsund árin. Á þeim
tíma tókst okkur að ganga verulega
á þá auðlind, sem sést á því að jarð-
vegur er mjög næringarrýr í mörg-
um landshlutum, til að mynda í út-
haga,“ segir Jóhann.
Varanlegur skaði
„Sums staðar hafa menn bók-
staflega ofnýtt jarðveginn þannig að
hann hefur blásið á brott.“ Jóhann
nefnir að langan tíma þurfi til að
bæta skaðann sem hlýst af upp-
blæstri. „Við erum að tala um árþús-
und í því samhengi.“
Jóhann hélt fyrirlestur um ástand
úthaga ásamt Ólafi Arnalds, prófess-
or við Landbúnaðarháskóla Íslands.
„Við veltum fyrir okkur ástandi vist-
kerfa og möguleika þeirra til að
styðja við þá framleiðslu sem innan
þeirra fer fram, hvort sem það er
gróður eða samfélag manna. Land
sem er grænt og fallegt að sjá þarf
ekki endilega að hafa góða land-
heilsu, það þarf ekki að fara saman
þó yfirleitt sé það
tilfellið,“ segir Jó-
hann. Heilsa ís-
lenskrar náttúru
er misgóð að hans
sögn. „Til eru
staðir á Íslandi
þar sem ástandið
er alls ekki slæmt
en líka staðir þar
sem það er verra.
Lífmassi á Íslandi hefur aukist á ár-
unum 1982 til 2010. Hins vegar hafa
engar eða mjög litlar breytingar
orðið á stórum svæðum landsins á
þessum tíma.“
Hálendið er illa statt að sögn Jó-
hanns. „Svæðin sem eru í versta
ástandinu eru gosbeltissvæðin uppi
á hálendinu. Það eru viðkvæmust og
þar hafa orðið mjög litlar breytingar
á þessu árabili. Ef við lítum aftur á
móti til Vesturlands og Suðvestur-
lands virðist gróður vera í mikilli
framför,“ segir hann. Spurður um
utanaðkomandi áhrif segir hann þau
geta skaðað landheilsuferlana. „Þeir
geta orðið fyrir áföllum til að mynda
vegna umferðar ferðamanna en líka
vegna truflana á borð við eldgos.
Eftir að landbúnaður á Íslandi hófst
urðu ýmsar breytingar á vistkerfinu.
Eðli þeirra áhrifa sem eldgos getur
haft á umhverfið eru allt önnur en
þau voru hér áður fyrr. Þetta vill
gleymast í umræðunni,“ segir Jó-
hann.
Sama landhnignun
Hafdís Hanna Ægisdóttir, for-
stöðumaður Landgræðsluskóla Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna, setti
þingið í gær. ,,Skólinn hefur starfað
frá árinu 2007 en varð aðili að Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna á árinu
2010,“ segir Hafdís.
Nemendur skólans koma víða að,
og í ár eru þeir 10 talsins. ,,Nem-
endum hefur fjölgað ár frá ári, og nú
erum við með nemendur frá Mong-
ólíu, Úsbekistan, Gana, Namibíu og
Úganda, svo hér er mjög mikil fjöl-
breytni,“ segir Hafdís. „Markmið
skólans er að byggja upp færni sér-
fræðinga sem koma hingað frá fá-
tækum þróunarlöndum sem öll
glíma við landhnignun.“
Nemendurnir koma allir frá stofn-
unum í sínu heimalandi sem starfa á
sviði málaflokksins, hvort sem það
er að sjálfbærri landnýtingu eða um-
hverfisstjórnun, segir Hafdís. „Þau
koma hingað í 6 mánuði, kynnast
fólki alls staðar að úr heiminum,
læra af okkur og við af þeim. Svo
snúa þau aftur til heimalands síns
með nýja þekkingu í farteskinu og
miðla af sinni reynslu.“
Hafdís segir mismunandi að-
stæður í löndunum sem nemendur
skólans koma frá mætast á áhuga-
verðan hátt. „Veður- og náttúrufar
hér á landi og í löndunum sem nem-
arnir koma frá er yfirleitt ólíkt en
hins vegar eru ástæðurnar fyrir
landhnignun víðast hvar svipaðar.
Það er þá ýmist ofbeit, skógarhögg
eða annars konar ósjálfbær landnýt-
ing. Innan hópsins verða því oft
áhugaverðar umræður.“
Víða næringarrýr jarðvegur
Ljósmynd/Jóhann Þórsson
Jarðvegur „Sums staðar hafa menn bókstaflega ofnýtt jarðveginn þannig að hann hefur blásið á brott,“ segir Jóhann
Þórsson sérfræðingur, hjá Landgræðslu ríkisins. Á myndinni má sjá rofabarð á Hrunamannaafrétti í Árnessýslu.
Jarðvegur sums staðar ofnýttur Tekur þúsundir ára að endurnýja jarðveg sem tapast hefur
vegna uppblásturs Breytingar á vistkerfi hafa áhrif á afleiðingar eldgoss fyrir umhverfið
Jóhann Þórsson
Aðalfyrirlesari var Jeffrey Herrick
en hann er sérfræðingur í mati á
ástandi úthaga og starfar við Jor-
dana-rannsóknastöðina í Nýju-
Mexíkó sem er leiðandi í þessum
fræðum á heimsvísu.
„Ég fjallaði um þörfina fyrir að
hafa eftirlit með og meta jarðveg
út frá sjálfbærnisjónarmiðum,“
segir Herrick um efni fyrirlestr-
arins. „Um er að ræða mál sem
snertir öll lönd heims og krefst
skilnings á þeirri áhættu sem
fylgir því að stunda ekki sjálfbæra
landnýtingu.“ Afleiðingarnar geta
að sögn Herricks verið grafalvar-
legar. „Sjálfbærni í landnýtingu er
nauðsynleg til
að fólk hafi
næringu í fram-
tíðinni, og þetta
á við um Ísland
eins og önnur
ríki. Eins verð-
um við að líta til
sjálfbærrar
landnýtingar ef
við ætlum að halda áfram að geta
andað að okkur andrúmsloftinu.
Til að koma í veg fyrir að næstu
kynslóðir þurfi að glíma við enn
frekari hungursneyðir og önd-
unarvandamál verðum við að axla
ábyrgð í þessum efnum.“
Verðum að axla ábyrgð
JEFFREY HERRICK KENNIR VIÐ LANDGRÆÐSLUSKÓLANN Í JÚNÍ
Jeffrey Herrick