Morgunblaðið - 19.06.2012, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012
„Að vinna í innan-
landsmálum að víð-
sýnni og þjóðlegri um-
bótastefnu á grundvelli
einstaklingsfrelsis og
atvinnufrelsis með
hagsmuni allra stétta
fyrir augum.“
Ofangreind klásúla
eða meginstef er í
stefnu Sjálfstæð-
isflokksins og hefur
verið þar allt frá stofnun, 1929. Aug-
ljóst er, að ætlunin hafi verið að taka
hlutverk sitt alvarlega. Og sé litið yfir
farinn veg, hefur hagsæld þjóðarinnar
aukist til muna á þeim 83 árum sem
liðin eru frá stofnun. Af þeim hefur
Sjálfstæðisflokkur setið hartnær 60 ár
í ríkisstjórn. Hann hlýtur því að eiga
þátt í þeim árangri sem náðst hefur.
Hugmyndafræðin
Sú hugmyndafræði, að vendipunkt-
ur framfara samfélagsins byggi á
frelsi einstaklingsins og framtaki hans
hefur verið haldreipi hægri manna.
Þannig búa skapandi athafnir fólks til
umsvif, sem birtast í peningum og at-
vinnusköpun. Á þessum stofnum
grundvallast skattheimta og opinber
þjónusta. Vinstri menn í núinu við-
urkenna þessa hugmyndafræði og
deilur dagsins eru að mestu um skat-
taprósentur. Nálgun þessara póla eða
umpólun endurspeglar breytta þjóð-
félagsmynd. Pólitíkin snýst ekki leng-
ur um vinnuveitendur og verkalýð, sú
pólitík er dauð.
Bankahrunið
Bankahrunið var vont en þó ekki al-
slæmt. Það upplýsti þjóðina um eigin
innviði og þá gífurlegu blekkingu, sem
var í gangi. Sjálfstæðisflokkurinn ber
að meginparti ábyrgð á því gönu-
hlaupi og hann hirti ekki um sín helstu
stefnumið, sem meitluð voru í stein í
upphafi. Hann missti sjónar á eigin
grunngildum og hin breyttu viðmið
mætti umorða þannig: „Að vinna að
innanlandsmálum með þröngsýnni og
óhóflegri einkavinavæðingu og að eig-
inhagsmunum með eftirlitsleysi og
hagsmuni flokksins fyrir augum.“
Efnahagsstefna Sjálfstæðisflokks-
ins brást, ekki endilega vegna einka-
væðingarinnar heldur þeirrar nándar,
sem stjórnmálamenn kusu sér gagn-
vart viðskiptalífinu. Þeim yfirsást
hlutverk sitt og því fór sem fór. Sjálf-
stæðisflokkurinn afneitar augljósri
sök sinni á hruninu og gott betur því
hann skartar meira að segja enn sama
fólki. Trúverðugleikinn er því veru-
lega laskaður.
Atvinnufrelsi
Einna pínlegust er þrautaganga
Sjálfstæðisflokksins í auðlindamálum.
Þar aðhyllist hann fiskveiðistjórn-
unarkerfi sem byggir á stærstu með-
gjöf Íslandssögunnar, þ.e. gjafakvót-
anum 1990. Þó kaus flokkurinn á móti
lögunum við afgreiðslu þess. Það er
með endemum að þingmenn flokksins
verji þetta kerfi og vísi í óstaðfesta
hagkvæmni fyrir þjóðarbúið. Eins og
kvótakerfið er uppbyggt reka leyf-
ishafar auðlindarinnar sitt eigið mark-
aðstorg í skjóli ríkisverndar, sem felst
í árlegri úthlutun veiðiréttar. Á þessu
markaðstorgi fárra sérleyfishafa hafa
aflaheimildir verið seldar, leigðar og
veðsettar á verði, sem miðast við
eignaréttindi til ótakmarkaðs tíma þó
lög kveði á um annað. Vitna má í um-
mæli Halldórs Ásgrímssonar 1991,
þáverandi sjávarútvegsráðherra:
„Útvegsmenn sem fá framselda til
sín aflahlutdeild af öðrum fiskiskipum
vita, að þeir eru ekki að fjárfesta í var-
anlegum réttindum. Það verð sem
þeir eru tilbúnir að greiða fyrir slíkar
heimildir hlýtur því að taka mið af
þeim raunveruleika, að Alþingi getur
hvenær sem er breytt lögunum um
stjórn fiskveiða, komist Alþingi að
þeirri niðurstöðu að annað fyr-
irkomulag tryggi betur lífskjör í land-
inu.“
Nú vitum við betur, útvegsmenn
ákváðu sjálfir sinn raunveruleika og
fengu bankana í lið með sér og jú,
Sjálfstæðisflokkinn. Þannig hefur
loftbóluhagkerfi með fiskiauðlindina
viðgengist í rúm 20 ár og Sjálfstæð-
isflokkurinn er allra flokka æstastur
að halda því áfram. Skilningur flokks-
ins á atvinnufrelsi og eigin meg-
instefum er því verðugt rannsókn-
arefni.
Flokkur allra stétta
Í lýðræðismálum hefur Sjálfstæð-
isflokkinn sömuleiðis borið af leið.
Hann fagnar ekki nýrri stjórnarskrá,
sem samin var með fulltingi fólksins í
landinu, heldur forsmáir hana. Það er
gert þrátt fyrir augljósa vangetu
þingsins til verksins, sem sýnir sig í
áratuga árangursleysi. Hvers vegna
flokki, sem höfðar til allra stétta í
grunngildum sínum, er stjórn-
arskrármálið svona mikill þyrnir í
augum, getur vart tengst öðru en
auðlindaákvæðinu. Þungi þess mun
klárlega kollvarpa tangarhaldi valda-
póla flokksins á fiskveiðiauðlindinni,
dýrmætustu mjólkurkú þjóðarinnar.
Flokkurinn flaggar þannig sérhags-
munagæslu fremur en lýðræðis- og
frelsisást.
Að vera sjálfstæðismaður er ekki
lengur að unna frelsi og einka-
framtaki. Að vera sjálfstæðismaður
er ekki lengur að vilja lágmarka af-
skipti ríkisins. Að vera sjálfstæð-
ismaður er ekki lengur að treysta
þjóðinni. Að vera sjálfstæðismaður er
að vera snillingur í flokknum. Þótt
grunngildi flokksins frá 1929 liggi
dauð í móðurkartöflunni, má finna
þau í nýjum sprotum á vettvangi
stjórnmálanna. Þá ættu unnendur
sjálfstæðisstefnunnar að kanna.
Móðurkartaflan
Sjálfstæðisflokkur
Eftir Jónas Bjarna-
son og Lýð Árnason » Skilningur flokksins
á atvinnufrelsi og
eigin meginstefum er
verðugt rannsóknarefni.
Lýður Árnason
Jónas er efnaverkfræðingur. Lýður er
læknir. Báðir eru liðsmenn Dögunar.
Jónas Bjarnason
Grensásvegi 50
108 Reykjavík
Sími: 571 8700
nordichealth@nordichealth.is
www.nordichealth.is
TILBOÐ SEM KEMUR ÞÉR
Í FORM Á 40 DÖGUM!
Árangursrík leið til að efla heilsuna,
bæta útlitið, léttast, forðast lífsstíls-
sjúkdóma og læra að hægja á öldrun.
Vandaður verkefnapakki þar sem þátttakend-
ur eru leiddir í átt að nýjum og heilbrigðum
lífsstíl með aðstoð vinnubókar, fyrirlestra á
DVD disk og slökunar á hljóðdisk. Þetta er
ekki tímabundið átak heldur uppskrift að
auknum lífsgæðum með skilningi á lykil-
þáttum í lífi okkar eins og mataræði, hugar-
fari, hreyfingu, erfðum og umhverfi.
Í form á 40 dögum er ætlað fólki sem veit
hvers virði heilsan er og vill bæta lífsgæði sín
til framtíðar. Þetta er áskorun fyrir þroskað
fólk sem byggir á aðferðum og meðferð
Jónínu Ben.
MOGGAKLÚBBUR
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar
í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Glatist kortið sendu þá póst á askrift@mbl.is.
KORTIÐ GILDIR TIL
30. september 2012
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
Fullt verð 6.900 kr.
Moggaklúbbstilboð 4.900 kr.
Tilboðið gildir frá 15. til 30. júní
Opið þriðjudaga og miðvikudaga milli klukkan 12-18.
Einnig er hægt að panta tilboðið á heimasíðunni okkar
www.nordichealth.is
Í hverjum pakka af
Fjólu Lúxus salernispappír
er ein rúlla vafin happamiða.
Innan á miðanum kemur í ljós
hvort heppnin sé með þér.
Meðal vinninga:
Auk fjölda annarra vinninga
Flug og gisting fyrir 2 innanlands
RÚLLU
LEIKURINN