Morgunblaðið - 19.06.2012, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012
✝ Birkir ÞórGunnarsson
fæddist í Reykja-
vík 28. nóvember
1938. Hann lést á
heimili sínu 9. júní
2011.
Foreldrar hans
voru Ágústa Guð-
björg Guðmunds-
dóttir, f. 23.8.
1908, d. 17.4. 1995,
og Gunnar Þórð-
arson, f. 27.10. 1904, d. 1.10.
1986. Systkini Birkis eru
Selma, f. 1932, og Guðmundur,
f. 1950.
Hinn 23. júlí 1960 giftist
Birkir Róshildi Stefánsdóttur,
f. 5.10. 1941, d. 21.7. 2011. For-
eldrar hennar voru Guðlaug
20.11. 1988, gift Steindóri
Hjartarsyni, f. 22.4. 1989, Aron
Birkir, f. 17.5. 1990, unnusta
hans er Herdís Helgadóttir, f.
21.5. 1990, Simon Berg, f. 6.5.
1996, d. 31.1. 1998 og Hanna
Björt, f. 5.1. 2000.
Birkir varð hárskerameist-
ari 1963 og húsgagnabólstr-
arameistari 1983, hann átti og
rak verslunina Húsgagnaval og
verslunina Birki ásamt bólst-
urvekstæði um árabil, síðustu
áratugina vann hann sem
stefnuvottur í Reykjavík. Birk-
ir var virkur í hinum ýmsu fé-
lagsstörfum, meðal annars var
hann félagi í Oddfellowregl-
unni, hann tók þátt í að stofna
borðtennisfélagið Örninn og
var formaður Sjóstanga-
veiðifélags Reykjavíkur á ár-
unum 1992 til 2001.
Útför Birkis fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 19.
júní 2012, og hefst athöfnin kl.
13. Jarðsett verður í Gufu-
neskirkjugarði.
Jóhannsdóttir, f.
28.9. 1911, d. 7.8.
2006, og Stefán
Hjálmar Ein-
arsson, f. 13.1.
1911, d. 26.1. 1955.
Systkini Róshildar
eru: Atli, f. 1936,
d. 1955, Jóhann, f.
1938, Ebba, f.
1940, Sigríður, f.
1944 og Gautur, f.
1946. Róshildur og
Birkir eignuðust tvo syni, þeir
eru: Gunnar, f. 15.6. 1962, gift-
ur Jóhönnu Bergman Þórhalls-
dóttur, f. 1.3. 1964, og Stefán
Hjálmar, f. 7.10 1965, giftur
Margréti Björk Kjartansdóttur,
f. 31.3. 1966. Börn Stefáns og
Margrétar eru: Dagný Björk, f.
Elskulegur tengdafaðir minn
er látinn. Aldrei hefði mann
grunað að hann færi svo fljótt og
svo fljótt á eftir tengdamömmu.
Birkir var frábær afi
barnanna minna og ekki hægt að
hugsa sér betri afa. Alltaf var
hann boðinn og búinn ef einhver
hringdi og vantaði eitthvað eða
þurfti skutl eitthvert þá var hann
kominn eins og skot. Þær voru
ófáar útilegurnar á sumrin sem
við fórum saman með Rósu og
Birki og oft tóku þau Dagnýju og
Aron með sér meðal annars
hringinn í kringum landið. Birkir
var sterkur karakter og hafði
mikla nærveru.
Það eru margar minningar
sem koma upp í hugann. Birkir
átti enga dóttur og þegar Dagný
dóttir mín var farin að hafa svo-
lítið vit talaði hann alltaf um að
hann myndi leiða hana upp að
altarinu. Hún var nú fljót til að
svara og sagði við hann að hann
yrði nú löngu dauður þá. Það var
því mjög stoltur afi sem leiddi
hana inn hálft kirkjugólfið þar
sem pabbi hennar tók við. Þetta
er ein sú dýrmætasta minning
sem við eigum um Birki. Birkir
og Rósa voru mjög samrýnd
hjón. Þau voru gift í tæp 51 ár og
átti Birkir mjög erfitt eftir að
Rósa dó. Það var samt léttara yf-
ir honum undanfarna mánuði.
Hann var farinn að vera í rækt-
inni sjö daga vikunnar (aldrei
neitt hálfkák hjá honum) og
mætti á borðtennisæfingar tvisv-
ar í viku. Þetta var því algjört
kjaftshögg að hann skyldi fara
núna.
Farinn er góður maður og
hans er sárt saknað.
Hvíl í friði, elsku Birkir, ég
veit að það er vel tekið á móti
þér.
Þín tengdadóttir,
Margrét Björk.
Elsku besti afi minn.
Ég elska þig svo mikið og mun
alltaf gera. Okkur þótti alltaf svo
gaman að fara saman í bíltúra og
í Perluna. Ég man ekki einu sinni
hvenær við fórum fyrst. Það
verður svo skrýtið að geta ekki
hringt í afa og fá hann í Perluna
til að fá sjeik og fara á vax-
myndasafnið örugglega í þrítug-
asta skiptið en alltaf komstu með
mér. Þetta er allt svo skrýtið, ég
meina fyrir rúmum tveim vikum
varstu að koma frá Ítalíu og á
fimmtudaginn 7. júní náðir þú í
mig af æfingu og komst í mat
heima hjá mér. Það var í seinasta
sinn sem ég sá þig.
Ég á svo margar góðar minn-
ingar af þér eða okkur. Eins og
öll ættarmótin, útilegurnar og
auðvitað bíltúrarnir. Dekrið við
heita pottinn. Ég þurfti ekki ann-
að en að segja afi mig langar í ís
og þá varstu hlaupinn inn í ís-
skáp að ná í hann. Í skólanum í
vetur var ég búin að smíða gjöf
handa þér sem ég náði aldrei að
gefa þér.
Ég veit að nú ertu hjá ömmu
og Símoni og líður vel en ég mun
sakna þín allt mitt líf, þú tókst
stóran hlut í hjarta mér og átt
ennþá.
Þín afastelpa,
Hanna Björt.
Elsku Birkir, afi minn.
Ég get ekki komið orðum að
því hversu sárt það er að missa
þig. Alla mína ævi hefur þú verið
eitt símtal í burtu. Bara eitt sím-
tal og þú varst mættur hvar sem
ég var, sama hvað þú varst að
gera. Þú vildir allt fyrir mig gera
og ég mun aldrei geta þakkað
þér fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir mig. „Júhú,“ er það fyrsta
sem kemur upp í huga minn þeg-
ar ég hugsa til þín. Þú kallaðir
alltaf svona á mig í margmenni,
mér til mismikillar skemmtunar.
Kertaljós koma næst í huga minn
því þú hafðir unun af því að
mynda notalega stemningu með
fjölmörgum kertum.
Kótelettur á skafti. Það er
matur sem ég elska og hef bara
fengið hjá þér. Samstæðuspil.
Þegar við spiluðum saman var að
sjálfsögðu alltaf spilað á gler-
borði því þú leyfðir mér alltaf að
leggjast undir borðið og skoða
spilin. A-húsið. Ég get ekki talið
næturnar sem við Aron gistum í
því á ferðalögum með þér og
ömmu. Æfingaakstur. Það var
langbest að fara út að keyra með
þér. Allra besti kennarinn. Dans.
Þó að þú værir um og yfir sjötugt
hoppaðir þú með mig í dansi á
ættarmótum og á Oddfellow-böll-
um. Ég gæti haldið endalaust
áfram því ég á óteljandi minn-
ingar um það sem við höfum
brallað saman síðustu 24 árin.
Það stærsta sem ég geymi í
hjarta mér er þegar þú labbaðir
með mig hálfa leið upp að alt-
arinu í brúðkaupinu mínu. Það
segir allt sem segja þarf um það
hversu stóran hluta af mér þú átt
og munt alltaf eiga. Elsku afi
minn, ég sendi þér fingurkoss og
hlakka til að hitta þig á himnum.
Takk fyrir allt, allt, allt.
Þín
Dagný.
Mín kveðja til Birkis, kæra
bróður míns.
Í æsku okkar systkinanna vor-
um við mikið saman. Ég reyndi
að gæta hans sem allra best,
enda var hann rúmlega 6 árum
yngri en ég. Birkir bróðir var
glaðlegur og hugulsamur dreng-
ur. Þegar við systkinin fórum
með móður okkar til Siglufjarðar
sumarið 1946 sýndi Birkir bróðir
það strax hve ákveðinn og dug-
legur hann var, þá aðeins sjö ára
gamall. Þegar við mæðgurnar
fórum í síldarsöltun, þá bað Birk-
ir um vinnu á síldarplaninu og
hann fékk vinnu við að afhenda
okkur síldarkonunum hring á
hverja tunnu. Þessi litla saga
sýndir hve ákveðinn og duglegur
hann var, þegar á ungum aldri og
hélst það alla hans ævi. Ég vil
einnig segja, að Birkir bróðir
minn var alltaf svo gjafmildur og
ósérhlífinn.
Hinsta kveðja,
þín systir,
Selma Gunnarsdóttir.
Það voru sorglegar fréttir
þegar Sigga mín hringdi í mig sl.
laugardagskvöld þar sem ég var
þá staddur utanbæjar og sagði
mér að Birkir, vinur okkar, svili
og mágur, hefði orðið bráðkvadd-
ur á heimili sínu rétt áður.
Það er líka með ólíkindum að
við séum að skrifa minningar-
grein um Birki núna, þar sem við
minntumst Rósu sem andaðist
eftir erfið veikindi fyrir aðeins
tæpu ári.
Það vissu allir þvílíkur missir
það var fyrir Birki að missa Rósu
sína og erfitt reyndist honum að
finna fótfestu eftir það áfall. Það
virtist þó allt á réttri leið og er
það ekki síst hans frábæru fjöl-
skyldu að þakka sem hefur stutt
hann með öllum ráðum. Við
Sigga höfum líka verið í miklum
og góðum samskiptum við hann.
Það var góð ferðin okkar til
Ameríku snemma á þessu ári þar
sem við nutum samvista í tvær
vikur og Biggi hafði mjög gaman
af þeirri ferð og var bæði glaður
og ánægður. Síðustu mánuðir
hafa verið virkilega skemmtilegir
eftir að Biggi hringdi í mig og
stakk uppá að við prófuðum
ræktina. Ég var jákvæður fyrir
því og Birkir lét verkin tala og
við vorum strax komnir í pró-
gramm hjá Hreyfingu undir
handleiðslu fagfólks sem þar
starfar. Það er skemmst frá að
segja að þetta veitti okkur mikla
ánægju og árangur sem eftir var
tekið.
Birkir var fjölmenntaður.
Hann var hárskerameistari og
vann við þá iðn til fjölda ára. Þá
kláraði hann húsgagnabólstrun
sem hann vann lengi við ásamt
því að reka verslun með húsgögn
og bólstrun. Síðustu árin starfaði
hann sem stefnuvottur. Það var
alveg sama hvað Birkir tók sér
fyrir hendur, hann var slíkur
keppnismaður að hann kláraði öll
verkefni fljótt og vel. Birkir
leiddi mig í Oddfellowregluna ár-
ið 1985, sem var mikið happ fyrir
mig. Þar eins og annars staðar
var Birkir mjög dugmikill, sat í
stjórn stúkunnar okkar um ára-
bil, auk þess að vera í mörgum
nefndum og ráðum. Hans verður
örugglega minnst þar fyrir störf
sín fyrir styrktarsjóð stúkunnar
þar sem hann vann að fram-
göngu margra góðra mála.
Birkir og Rósa voru mikið úti-
vistarfólk og voru ófáar ferðirnar
okkar saman til sólarlanda, í
ferðalög innanlands, í hjólhýsið
þeirra um allt land og í sumarbú-
staðaferðir. Ennfremur stund-
uðu þau hjón sjóstöng af miklum
krafti þar sem Birkir var formað-
ur Sjór um árabil. Það er ekki
hægt að hugsa sér betri og
skemmtilegri félaga en þessi frá-
bæru hjón, sem nú eru bæði fall-
in frá á innan við ári.
Það er ótrúlega mikill missir
fyrir okkur Siggu mína að hafa
þau ekki lengur meðal okkar. Þó
er bót í máli að hafa Gunnar,
Stefán og þeirra fjölskyldur og
munum við treysta okkar sam-
bönd og samveru við þau enn
frekar.
Elsku kæri vinur, við Sigga
þökkum svo mikið fyrir allar
samverustundirnar í áratugi.
Elsku Gunni, Yoga, Stebbi,
Margrét, börn og tengdabörn.
Við vottum ykkur okkar dýpstu
samúð. Þið hafið misst mikið á
stuttum tíma, en eftir standa
ómetanlegar minningar um ykk-
ar ástkæru foreldra.
Sveinn og Sigríður
(Svenni og Sigga).
Í dag kveðjum við góðan
dreng og félaga. Kynni okkar
Bigga, eins og hann var ævinlega
kallaður, hófust fyrir meira en
þrjátíu árum er hann gekk til liðs
við st. nr. 3. Hallveigu IOOF.
Biggi var vel að manni, sterklega
vaxinn og samsvaraði sér vel.
Hann var sú manngerð sem erf-
itt átti með að vera kyrr og
dvelja lengi á sama stað án ein-
hverra athafna. Við fyrstu kynni
gat ég ekki áttað mig á starfsvali
hans í upphafi en hann var með
meistarabréf í rakaraiðn og hús-
gagnabólstrun, en bæði störfin
krefjast langrar viðveru á sama
stað. Síðustu áratugina söðlaði
hann um starfsvettvang og gerð-
ist verktaki hjá Sýslumannsemb-
ættinu í Reykjavík. Þar var minn
maður á réttum vettvangi, sífellt
á þönum, glaður og hress, að vísu
að hitta fólk sem alla jafna gladd-
ist ekki við komu hans en þar
sem annars staðar tókst honum
með léttleika sínum og hressi-
Birkir Þór
Gunnarsson
HINSTA KVEÐJA
Þegar ég horfi um öxl til oddamanns
og frúar hans Hildi Rósu,
minnist ég gleði, hláturs og gamans
með góðvinum í víkinni ljósu.
Fjölskylduna tókstu framar en allt,
fyrirmynd muntu vera.
Fyrir vinskapinn þakka ég þúsundfalt,
þín verður saknað, alveg ótrúlega.
Okkar góðu en alltof stuttu kynni
Voru ómetanleg, „það er bara þannig“.
Með söknuði kveð ég góðan vin að
sinni.
„Birkir heiti ég, hver vill tala við mig?“.
Steindór Hjartarson.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
LILJA GUNNLAUGSDÓTTIR
frá Áshildarholti,
andaðist á Dvalarheimilinu á Sauðárkróki
miðvikudaginn 13. júní.
Útförin verður gerð frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 23. júní kl.11.00.
Halldóra Elísa Vilhjálmsdóttir, Björn H. Jónsson,
Friðbjörg Vilhjálmsdóttir, Friðrik B. Guðmundsson,
Sigurður Vilhjálmsson, Erla Guðmundsdóttir,
Ingunn Vilhjálmsdóttir, Magnús Pálsson,
Gunnhildur Vilhjálmsdóttir, Stefán Friðriksson,
Gunnlaugur Vilhjálmsson, Sigrún Sigurðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Móðir okkar,
MARÍA SIGURLAUG ÞÓRA JÓNSDÓTTIR
frá Húnsstöðum,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
þriðjudaginn 12. júní.
Útförin verður frá Blönduóskirkju
föstudaginn 22. júní kl. 14.00.
Fyrir hönd allra aðstandenda,
Sigurbjörg Björnsdóttir,
Gréta Björnsdóttir,
Jón Björnsson.
✝
Elskulegur eiginmaður minn,
SVERRIR GUÐMUNDUR HESTNES,
Sundstræti 34,
Ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
föstudaginn 15. júní.
Útför fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 23. júní kl. 14.00.
Guðmundína Þorláksdóttir Hestnes
og aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, bróðir og mágur,
SIGURÐUR SIGURJÓNSSON
húsgagnasmíðameistari,
Suðurhlíð 38C,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut að kvöldi laugardagsins 16. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 22. júní kl. 11.00.
Áslaug Emilía Jónsdóttir,
Ingibjörg Bryndís Sigurðardóttir, Örn Halldórsson,
Sif Arnardóttir, Halldór Smári Arnarson,
Kjartan Sigurjónsson, Bergljót Svanhildur Sveinsdóttir,
Sigurjón Bolli Sigurjónsson, Jóhanna E.Vilhelmsdóttir,
Bryndís Sigurjónsdóttir, Guðmundur Þorgeirsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN JÓNA LÁRUSDÓTTIR,
Vogatungu 65,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
laugardaginn 16. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Lárus Einarsson, Sólveig Þórhallsdóttir,
Sigurvin Einarsson, Kristín Reimarsdóttir,
Magnús Geir Einarsson, Friðbjörg Einarsdóttir,
Kristján Einar Einarsson,
Auður Einarsdóttir, Kristján Guðbjörnsson,
Arnar Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar elskulegi
JAKOB TRYGGVASON
andaðist á Landakotsspítala sunnudaginn
17. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hallfríður, Birgir og Valgerður Jakobsbörn
og fjölskyldur,
Áslaug Stephensen,
Bjarney Tryggvadóttir.