Morgunblaðið - 19.06.2012, Qupperneq 23
✝ Hjalti Guð-mundsson
fæddist í Klauf,
Öngulsstaðahreppi,
Eyjafirði, 24. októ-
ber 1947. Hann lést
7. júní 2012.
Foreldrar Hjalta
voru hjónin Guð-
mundur Kristján
Sigurgeirsson
bóndi, f. 30. mars
1918, d. 28. desem-
ber 1996, og Ingibjörg Jóhanns-
dóttir, f. 30. september 1916.
Systkini Hjalta eru: Geir, f. 1942,
Hólmfríður, f. 1946, Leifur, f.
1952, og Anna Sigríður, f. 1959.
Hjalti kvæntist 4. nóvember
1972, Sólveigu Sigtryggsdóttur,
kennara á Húsavík, f. 3. ágúst
börn: Guðný Ósk, Sævar Veigar,
Jónína Rún og Rafnar Berg,
barnabörn þeirra eru 4. ii) Sig-
urlaug Sævarsdóttir, eiginmaður
Hilmar Þór Ívarsson, börn
þeirra: Hilma Ósk, Agnar Þór,
Hrannar Már og Sævar Leó.
Hjalti var í barnaskóla á
Syðra-Laugalandi, Eyjafirði.
Hann fór ungur á vertíð í Grinda-
vík, fluttist til Húsavíkur og
starfaði lengst af þar hjá Vega-
gerðinni sem hefilstjóri. Einnig
starfaði hann hjá Fiskiðju-
samlagi Húsavíkur og Mjólk-
urstöð KÞ. Hjalti fluttist ásamt
seinni konu sinni og dætrum til
Akureyrar 1984. Fyrstu tvö árin
þar starfaði hann sem flutn-
ingabílstjóri hjá Dreka. Hann
starfaði hjá Mjólkursamlagi KEA
næstu fjórtán árin. Árið 1998 hóf
hann störf sem meindýraeyðir og
varð það hans aðalstarf árið 2000
og allt til dauðadags.
Hjalti verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju í dag, 19. júní
2012, kl. 13.30.
1950, d. 8. október
1982. Dætur þeirra
eru: 1) Heiður, f. 14.
nóvember 1973, eig-
inmaður Arnar Már
Sigurðsson, f. 4. maí
1968. Börn: a) Hjalti
Þór Ísleifsson, f. 12.
júlí 1996, faðir: Ís-
leifur Heiðar Karls-
son, f. 26. júlí 1972,
d. 21. júlí 1996. b)
Sólveig Arnars-
dóttir, f. 4. desember 2005. 2)
Gígja, f. 26. apríl 1977.
Hjalti hóf sambúð árið 1984
með Guðnýju Ósk Agnarsdóttur,
f. 30. nóvember 1944, þau giftu
sig 8. júní 2007. Börn Guðnýjar
eru: i) Agnar Kári Sævarsson,
eiginkona Heiðrún Georgsdóttir,
Að sitja hér og skrifa minning-
argrein um þig elsku pabbi minn
er ekki það sem ég átti von á fyrir
fjórum mánuðum. Þú ekki nema
tæplega 65 ára og ættir að eiga
mörg ár eftir. Mamma farin fyrir
rétt tæpum 30 árum, aðeins 32
ára, og þú núna. Af hverju?
Þú hefur alltaf staðið sem klett-
ur í mínu lífi, í þeim áföllum sem á
mér hafa dunið. Ég reyndi mitt
besta nú þegar þú greindist í mars
sl. að standa við hlið þér. Þú varst
ekki sáttur við þann dóm sem þú
hlaust og varst mjög dapur og
fjarrænn síðustu vikurnar. Þú
kláraðir samt að ganga frá þeim
endum sem þú taldir að þyrfti að
ljúka áður en þú kveddir þótt þú
værir fárveikur. Þitt síðasta verk
var að fara vestur á Krók og taka
út húsið sem Didda og Hilmar
ætla að flytja í eftir nokkra daga.
Þegar því var lokið kvaddir þú
þennan heim mjög hratt eins og
þín var von, í fanginu á Guðnýju
þinni.
Ég á þér margt að þakka, þú
stóðst við hlið mér eins og klettur
og lagðir áherslu á að ég menntaði
mig, þú sást alltaf eftir því að hafa
ekki gengið menntaveginn. Þú
hefðir eflaust gert það ef þú hefðir
ekki veikst alvarlega sem ungur
drengur af heilahimnubólgu sem
olli því að þú þurftir að læra allt
upp á nýtt. Eins stóðstu þétt við
hlið mér þegar ég lenti í bílslysinu,
og þegar ég missti Ísleif með
Hjalta minn níu daga gamlan.
Takk, pabbi, fyrir allt sem þú
gerðir fyrir mig. Mikið varstu
glaður þegar ég kynnti Arnar
minn fyrir ykkur Guðnýju og ég
tala nú ekki um þegar Hjalti Þór
tilkynnti að von væri á systkini. Þú
varst alltaf mikill barnakall og
hændust börn mjög að þér, ekki
bara þín afabörn heldur einnig
annarra börn. Afabörnin hafa nú
misst mikið og sakna þín sárt. Sól-
veig skilur ekki af hverju afi þurfti
að fara, þú varst ekki einu sinni
orðinn gamall.
Við vorum ekkert alltaf sam-
mála um hlutina, stundum fannst
mér þú stjórnast um of, en þú vild-
ir bara vel. Mér fannst stundum
eins og þú áttaðir þig ekki á að ég
væri orðin fullorðin og fær um að
gera hlutina sjálf, í þínum huga
var ég jú alltaf stelpan þín.
Undanfarna daga höfum við
börnin þín, tengdabörnin, Guðný
og afabörnin verið á fullu að rifja
upp góðar og hlýjar minningar
tengdar þér og höfum hlegið mik-
ið, við vitum að þú hefur fylgst
með okkur og glott. Það var þinn
stíll, að glotta að eigin fyndni,
enda hafðir þú alveg húmor fyrir
sjálfum þér.
Amma Ingibjörg á um sárt að
binda núna. Við gerum okkar
besta til að halda utan um hana, ég
veit þér þótti svo óendanlega vænt
um hana.
Ég ætla að láta þetta nægja
núna, minningarnar um þig geymi
ég í hjarta mínu og kem til með að
kveikja ljós hjá myndinni af þér
sem verður komið fyrir í stofunni
á mínu heimili.
Takk fyrir allt og allt elsku
pabbi minn, ég ætla að gera þín
kveðjuorð til mín að mínum: „Guð
veri með þér.“
Þín dóttir,
Heiður.
Æi… elsku pabbi minn, mikið
svakalega sakna ég þín, nú sit ég í
gráa hægindastólnum þínum og
læt hugann reika. Ég hef oft sagt
það áður og segi það enn: Þú ert
besti pabbinn í öllum heiminum og
þú ert minn!
Vissulega varstu ekki gallalaus,
ekki frekar en ég, en gallar þínir
voru flestir ef ekki allir broslegir
og þú meintir alltaf vel, stundum
eiginlega aðeins of vel. Mér er til
dæmis mjög minnisstætt þegar þú
sendir mér litla ferðagasgrillið
suður svo ég gæti nú grillað á
pínulitlu svölunum mínum. Til að
gæta fyllsta öryggis festirðu nýja
gasslöngu á græjuna og var hún
heilir þrír metrar að lengd, enda á
gaskúturinn ekki að vera nálægt
grillinu! Enn í dag er heljarinnar
slönguhrúga á svölunum hjá mér á
sumrin.
Þú hefur alltaf verið fyrsti mað-
urinn sem ég hringi í þegar ég
lendi í vandræðum. Skiptir þá
ekki máli hvort bíllinn hefur drep-
ið á sér í Borgarfirði eða vatnslás-
inn í druslunni gefið upp öndina í
Hrútafirðinum. Gætirðu ekki leið-
beint mér í gegnum síma þá mætt-
irðu bara á svæðið og bjargaðir
stelpunni þinni.
Þér þótti líka ótækt að senda
stelpuna í ökunám án þess að ég
kynni nokkuð til verka í akstri, því
brástu á það ráð að keyra í skafl
uppi í fjalli og sagðir að við færum
ekki heim fyrr en ég væri búin að
losa. Þú kenndir mér líka að mað-
ur á ekki að loka augunum og ríg-
halda í stýrið þegar maður nálgast
einbreiða brú, það er víst betra að
hafa þau opin.
Að eiga og nota tölvu fannst þér
líka mikilvægt. Bölvaðar vélarnar
geta þó hæglega verið til mikils
ama, sérstaklega ef maður er ekki
mjög tæknilega þenkjandi og tal-
ar ekki útlensku eins og innfædd-
ur útlendingur. Átti ég þónokkur
símtölin við þig landshorna á milli
þar sem reynt var að leysa úr
tæknimálum, með misjöfnum ár-
angri. Mér er sérlega minnisstætt
eitt fjörutíu og fimm mínútna, ár-
angurslaust, símtal sem kom í
kjölfar þess að þú heyrðir ekkert í
Álftagerðisbræðrum, þó þú værir
búinn að ýta á „play“!
Frá því ég man eftir mér hefur
alltaf verið nóg af frystikistum og
skápum á heimilinu, jafnvel voru
leigð frystihólf úti í bæ, enda þú al-
inn upp í sveit þar sem mikið var
lagt upp úr því að eiga nóg að bíta
og brenna. Þér þótti enda ómögu-
legt þegar ég flutti í stúdentaíbúð í
Reykjavík að ég hefði bara frysti
sem rúmaði eins og eitt brauð. Að
morgni flutningsdags laumaðist
þú út í búð og keyptir lítinn frysti-
skáp handa stelpunni þinni í
snemmbúna afmælisgjöf. Ég man
líka hvað þú varðst hamingjusam-
ur þegar ég sagðist eitt haustið
vera til í að fá kannski smá kjöt í
frystinn, þá sagðir þú að ég væri
loksins að verða fullorðin.
Ferðirnar í mjólkurbílnum,
tímarnir okkar í garðaúðuninni,
slagurinn við geitungabúin, mein-
dýrarúntarnir um sveitirnar,
þekking þín á bæjarnöfnum, ám
og lækjarsprænum, broslegu tal-
hólfskveðjurnar frá þér, ósvikin
gleðitárin sem brutust út þegar
við gáfum þér sixpensarann eftir
að þú veiktist… Ég gæti haldið
endalaust áfram enda minning-
arnar ótalmargar.
Ég veit að ég er eigingjörn en
ég vildi óska að þú værir hér enn,
ég er ekki tilbúin til að hafa þig
ekki lengur hjá mér. Um leið og ég
bið fyrir kveðju til mömmu þá
kveð ég með orðunum sem þú
laukst símtölum okkar gjarnan á
Bæ, bæ, bless.
Gígja.
Með þessum fátæklegu orðum
langar mig að minnast tengdaföð-
ur míns, Hjalta Guðmundssonar
frá Klauf í Eyjafirði.
Leiðir okkar Hjalta lágu saman
á Akureyri á haustmánuðum 2003
þegar ég felldi hug til Heiðar dótt-
ur hans. Allt frá fyrstu kynnum
tók Hjalti mér vel og var upp frá
því boðinn og búinn til allrar að-
stoðar. Hjalti var einstaklega bón-
góður maður og á tíðum of hjálp-
samur. Átti hann erfitt með að
vera aðgerðalaus og vildi helst
vera á ferðinni að erindast. Kom
það fyrir að hann var farin að
grennslast fyrir um hluti sem eng-
inn vissi til að hann hefði verið
beðinn um að athuga. Er hann var
spurður út í það svaraði hann því
til að við gætum haft gott og gam-
an af því að vita þetta. Eftir að
fjölskylda mín flutti suður yfir
heiðar var Hjalti sérlegur fulltrúi
okkar við öflun vetrarforða en
Hjalti var sérlega áhugasamur um
mat og ekki síst kjötmeti. Enda
höfðu þau hjónin frystipláss sem
hvaða stórfjölskylda sem er gæti
verið stolt af. Hjalti hafði miklar
skoðanir á því hvernig kjöt ætti að
vera en þar vorum við ekki alveg
sammála um skiptingu fitu og
vöðva í kjötinu en Hjalti vildi hafa
mikið af fitu.
Með eftirfarandi ljóði Ingi-
bjargar Sigurðardóttur vil ég
minnast Hjalta Guðmundssonar.
Hver minning dýrmæt perla að
liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
Að endingu vil ég gera hans síð-
ustu orð við mig að mínum er hann
sagði „vertu blessaður kallinn
minn“.
Arnar Már Sigurðsson.
Elsku Hjalti okkar, þrátt fyrir
að hafa vitað í hvað stefndi er
mjög erfitt að trúa því að þú sért
farinn. Við huggum okkur við það
að þú þurftir ekki að liggja á
sjúkrahúsi heldur fékkstu að njóta
þess að vera með mömmu og fjöl-
skyldunni þessa síðustu daga.
Það er svo margs að minnast og
margar dýrmætar stundir sem við
geymum í hjörtum okkar. Það
sem stendur upp úr hjá okkur er
hvað þú tókst okkur vel og vildir
allt fyrir okkur gera, aldrei stóð á
þér að veita okkur aðstoð eða
hjálp þegar við þurftum á að halda
og oft varstu búinn að redda mál-
unum áður en við vissum af. Við
þökkum fyrir þann stuðning sem
þú veittir okkur systkinunum þeg-
ar Agnar Kári lá lamaður á
sjúkrahúsi í marga mánuði og eins
fyrir þann stuðning sem þú veittir
Diddu þegar krabbameinið bank-
aði upp á, ekki stóð á þér að koma
og sitja hjá Agnari Kára nánast á
hverjum degi og eins keyrðir þú
með mömmu okkar suður til
Diddu til að vera hjá henni fyrst
eftir aðgerðina. Þessum stundum
gleymum við aldrei og minnumst
þeirra með hlýju í hjarta. Börnin
Hjalti
Guðmundsson
SJÁ SÍÐU 24
HINSTA KVEÐJA
Ég tala til þín, elskuleg-
ur Hjalti minn, besti vinur,
kletturinn í lífi mínu.
Sársaukinn er orðinn
að ótal hvítum rósum
sem ilmandi fylla
minninganna bát.
Mér finnst hann alsettur
lifandi ljósum
sem blessa hvert bros
og sefa allan grát.
Einstakur er orð sem
best lýsir þér.
Takk fyrir að hafa verið
til.
Þín,
Guðný Ósk.
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012
legri framkomu að sinna sínu
starfi svo sómi var að. Á aðal-
fundi SJÓR 1992 var Biggi kjör-
inn formaður SJÓR og gegndi
því starfi allt til ársins 2001 með
miklum sóma og röggsemi.
SJÓR sæmdi þau hjónin gull-
merki sínu fyrir þeirra störf í
þágu félagsins Biggi hafði
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum, vildi afgreiða mál á
sem stystum tíma og þegar minn
maður hafði komist að niður-
stöðu þá voru rök hans oft á tíð-
um stutt en gagnyrt eða „þetta
er bara svona“, málinu lokið af
hans hálfu.
Biggi var í föstu viðskipta-
sambandi við Blóðbankann og
var einn af þeim sem hafa gefið
blóð oftar en hundrað sinnum.
Við fráfall Rósu sl. sumar var
klippt á streng sem þau höfðu of-
ið óvenjusterkum böndum í sínu
hjónabandi, en Biggi var afar
háður sinni konu sem af snyrti-
mennsku og alúð sá um sinn
mann og sína fjölskyldu. Þau
hjónin voru með afbrigðum gest-
risin og ævinlega var fullt hús
gesta hjá þeim af ýmsum tilefn-
um. Nú í lok maí komum við
heim frá Ítalíu tuttugu bræður
úr Hallveigu ásamt eiginkonum
okkar en tuttugasti bróðirinn
var Biggi sem sýndi mikinn
kjark í að ferðast og gleðjast
með okkur bræðrum og eigin-
konum okkar svo stuttu eftir frá-
fall Rósu. Að venju var hann
miðdepill ferðarinnar og naut
hennar vel og var afar ánægður
með að hafa drifið sig með.
Bigga varð sjaldan eða aldrei
misdægurt og læknar og hjúkr-
unarlið var fyrir aðra, en í þess-
ari ferð tjáði hann sig við okkur
Ágústu um að hann væri auðvit-
að í vissum áhættuhópi þar sem
hann ólíkt okkur hefði aldrei far-
ið í neina skoðun og vissi í raun
lítið um ástand sitt, en í ferðinni
hafði hann tekið þátt í m.a. nokk-
uð erfiðri fjallgöngu. En þrátt
fyrir hreysti sína og líkamlegt
ástand varð hann eins og aðrir
að taka því að hans tímaklukka
væri út gengin þótt engan óraði
fyrir að svo væri komið, en vinur
minn fékk hjartaáfall laugardag-
inn 9. júní og kvaddi þetta jarð-
neska líf og gekk á fund feðra
sinna.
Kæri vinur, þín verður sárt
saknað, nú mun síminn ekki oft-
ar hringja og sterk rödd þín
spyrja „er ég að trufla“, upphaf
skemmtilegra skoðanaskipta
milli okkar um menn og málefni,
þökk fyrir allt og megir þú hvíla í
friði.
Anton Örn Kærnested.
Látinn er sómamaðurinn
Birkir Þ. Gunnarsson. Birkir var
mikill velgjörðarmaður Borð-
tennissambands Íslands um
langa tíð og meðal frumkvöðla
borðtenniss á Íslandi. Í 40 ára
sögu félagsins kom hann víða
við.
Birkir var alla tíð ötull í starfi
borðtennishreyfingarinnar en
hann var meðal stofnfélaga
Borðtennissambandsins þann
12. nóvember 1972 og sat í
fjöldamörg ár í stjórn sambands-
ins, m.a. sem formaður. Einnig
var hann meðal stofnenda borð-
tennisdeildar Arnarins og sat
þar einnig lengi í stjórn.
Á fyrstu árum sambandsins
ríkti mikil gróska og sinnti Birk-
ir öflugu uppbyggingarstarfi á
sama tíma og hann var í landslið-
inu og æfði af kappi. Varð hann
meðal annars tvisvar Íslands-
meistari í tvíliðaleik ásamt fé-
laga sínum Ólafi H. Ólafssyni á
áttunda áratug síðustu aldar.
Fór hann í fyrstu ferð landsliðs-
ins í borðtennis í nóvember 1974
til Færeyja ásamt þeim Ólafi H.
Ólafssyni, Hjálmari Aðalsteins-
syni, Ragnari Jóhannessyni og
Jóni Sigurðssyni í A-landsliði Ís-
lands þar sem þeir unnu fyrsta
landsleik Íslendinga í borðtennis
25-3. Seinna fór hann oft með
hópa til útlanda sem fararstjóri.
Síðari árin æfði Birkir alltaf
reglulega með gömlum félögum
sínum í Old Boys í Víkingi og tók
virkan þátt í starfi hreyfingar-
innar. Hann var jarðbundinn,
lífsglaður og alltaf tilbúinn að
leggja sitt af mörkum. Varð hann
nú síðast Íslandsmeistari með fé-
laga sínum Ólafi H. Ólafssyni í
tvíliðaleik í flokki 70 ára og eldri í
mars sl. auk þess að verða í 3.
sæti í einliðaleik í sama flokki.
Stjórn BTÍ sendir fjölskyldu
og aðstandendum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Borðtennishreyfingin á Ís-
landi kveður höfðingja og þakkar
honum leiðsögnina.
Hafðu þökk fyrir allt og allt,
kæri vinur.
Hvíl í friði.
Stjórn BTÍ,
Sigurður Valur Sverrisson,
Ingimar Ari Jensson,
Ingimar Ingimarsson,
Ársæll Aðalsteinsson
og Bjarni Gunnarsson.
Birkir Þór Gunnarsson, kær
veiðifélagi og vinur, er fallinn frá.
Birkir Þór gekk í Sjóstanga-
veiðifélag Reykjavíkur (eða
SJÓR eins og við félagsmenn og
-konur köllum félagið) árið 1990
ásamt Róshildi Stefánsdóttur
eiginkonu sinni en hún lést á síð-
asta ári og var það mikill missir.
Birkir var hrókur alls fagnað-
ar og mátti heyra hlátur hans
langar leiðir þegar honum var
skemmt og alltaf var hann hress
og kátur og lá aldrei á skoðunum
sínum og kom til dyranna eins og
hann var klæddur. Til hans var
alltaf gott að leita með hin ýmsu
mál sem upp koma í stórum og
mannmörgum félagsskap, enda
var Birkir Þór öllum hnútum
kunnugur varðandi félagið sem
hann stjórnaði með mikilli rögg-
semi og glæsibrag sem formaður
frá 1992 til ársins 2001. Í apríl sl.
mætti Birkir Þór með sonum sín-
um á innanfélagsmót SJÓR sem
haldið var í Grundarfirði og átt-
um við þar einstaklega skemmti-
lega helgi, hann kom okkur veiði-
félögunum sem vorum að veiða á
Hvítasunnumóti Sjóstanga-
veiðifélags Vestmannaeyja, mjög
á óvart þegar hann birtist öllum
að óvörum á lokahófið með alla
sína gleði og kátínu í farteskinu.
Hann hafði komið frá Ítalíu deg-
inum áður og sagði okkur að
hann hefði fundið svo mikla þörf
fyrir að koma til Eyja þar sem
Sjóstangaveiðifélag Vestmanna-
eyja fagnaði 50 ára afmæli sínu
og þarna hefðu hann og Rósa
hans byrjað að veiða. Hann sagði
mér að þetta hefði verið svo
skrítin tilfinning en þetta fannst
honum hann þurfa að gera, ég
skildi hvað hann meinti þá en ég
skil hann enn betur núna.
Ekki óraði okkur félaga þína,
kæri vinur, fyrir því að þarna
myndum við kveðja þig, við mun-
um ávallt minnast þín með mikilli
hlýju og væntumþykju og viljum
þakka þér fyrir það mikla og
góða starf sem þú inntir af hendi
fyrir SJÓR öll þessi ár. Mig lang-
ar líka sérstaklega til að þakka
þér fyrir alla þá hvatningu sem
ég fékk frá þér og hlý og góð orð
í minn garð, kæri vinur. Þín verð-
ur sárt saknað. Fjölskyldu þinni
viljum færa okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur og biðjum Guð að
styrkja þau á þessari sorgar-
stundu því missir þeirra er mikill
á einu ári .
Fyrir hönd veiðifélaga þinna í
Sjóstangaveiðifélagi Reykjavík-
ur,
Elín Snorradóttir,
formaður.