Morgunblaðið - 19.06.2012, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012
✝ Guðrún Sig-urðardóttir
fæddist í Reykjavík
4. maí 1944. Hún
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 11. júní 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurður Ó.
Sigurðsson, f. 11.
janúar 1911 að Mó-
um á Skagaströnd
og Vilhelmína D.
Guðmundsdóttir, f. 7. september
1906 að Seli í Rangárvallasýslu.
Guðrún giftist 12. desember
1964 Hrafni Antonssyni. Þau
skildu. Dætur þeirra eru: 1)
Díana Margrét Hrafnsdóttir, f.
12. júlí 1964, maki Steinar
Hólmsteinsson, f. 9. september
1960. Synir þeirra: a) Ari Hrafn,
f. 14. júní 1986, b)
Sindri Örn, f. 25.
ágúst 1990. 2)
Harpa Lind, f. 24
september 1973,
maki Ketill Árni
Ketilsson, f. 25.
mars 1979. Börn
þeirra: a) Ketill
Orri, f. 16. júlí
2008, b) Guðrún
Embla, f. 21. októ-
ber 2010.
Guðrún bjó í Hafnarfirði alla
ævi. Hún lauk gagnfræðaprófi
frá Flensborgarskóla og vann
við skrifstofu- og versl-
unarstörf.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 19.
júní 2012, og hefst athöfnin kl.
13.
Elsku Gógó mín, eftir öll þín
ferðalög er komið að því síðasta.
Ferðin hafði átt langan aðdrag-
anda, en kallið kom fyrr en vænst
var.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega, óháð því, sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki –.
(Tómas Guðmundsson)
Steinar.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald. Briem)
Í dag kveð ég systur mína og
góðan vin sem ávallt var til staðar
ef ég þurfti á að halda. Gógó, en
svo var hún alltaf kölluð, var ein-
staklega hlý og traust manneskja
sem gott var að umgangast. Það
fór ekki mikið fyrir henni, enginn
asi þar á bæ, allt gert með stakri ró
og yfirvegun.
Ég, litla systir, leitaði oft til þín
hvort heldur ég þurfti að létta að-
eins á hjarta mínu eða fá leiðbein-
ingar með saumaskapinn eða
prjónana, allt leystir þú af ein-
stakri snilld og vissir nákvæmlega
hvernig allt átti að vera. Dáðist ég
oft að hvernig þú fórst að þessu,
enda bara snillingar sem gera
slíkt.
Við vorum afskaplega ólíkar
systur bæði í útliti og innræti, þú,
þessi yfirvegaða, ráðagóða en
dula, ég, þessi fljótfæra, eirðar-
lausa og hressa og allt átti helst að
gerast strax enda við ekkert alltaf
sammála um alla hluti en þá var
það bara þannig. Við vorum ekk-
ert að fara í fýlu hvor við aðra,
alltaf systur og vinir. En röð og
reglu vildum við hafa á hlutunum
enda aldar þannig upp. Höfðum
gaman af fallegum hlutum, punta
okkur upp, fara á listasöfn, í leik-
hús, rölta um bæinn og kíkja á
kaffihús
Eftir níu ára hetjulega baráttu
við erfiðan sjúkdóm sem hefur
lagt svo margan manninn að velli
varðst þú einnig að lúta í lægra
haldi. Elsku Gógó mín, þú fórst
alltof snemma frá okkur, ég vil
þakka þér fyrir öll árin sem við
fengum saman. Dauðinn kemur
manni alltaf á óvart þótt við viss-
um í hvað stefndi, þetta verður
erfitt en fallegar og góðar minn-
ingar um góða systur mun ég
geyma í hjarta mér alla tíð.
Hún Sigrún, vinkona þín, Gógó
mín, mun örugglega fagna þér
innilega þegar þið hittist á ný. Það
varð ekki langt á milli ykkar vin-
kvennanna en hún lést hinn 18.
maí. Þú munt hvíla við hlið for-
eldra okkar og veit ég að þau
verða mikið glöð að fá þig sér við
hlið.
Elsku Díana og Harpa, þetta er
búinn að vera erfiður tími fyrir
ykkur og ykkar nánustu en þið
hafið staðið ykkur eins og hetjur.
Guð varðveiti ykkur og styrki.
Þín systir,
Svanhildur.
Guðrún
Sigurðardóttirokkar voru þín afabörn, það fórekki á milli mála, alltaf svo ljúfur
og góður við þau og ekki skemmdi
fyrir að fá smá nammipening eða
laun eins og þú sagðir svo oft og
gaukaðir pening að þeim. Kjötið,
harðfiskurinn, saltkjötið og það
sem þú settir í kistuna hjá okkur
þökkum við fyrir, alltaf vildir þú
að kistan væri vel full af mat. Við
þökkum innilega fyrir samveruna
með þér, elsku Hjalti okkar, öll
þessi ár og fyrir allt og allt því það
er ógjörningur að telja allt upp
sem þú hefur gert fyrir okkur, það
er svo margt.
Þú kvaddir okkur á heimili
Diddu og Hilmars fimmtudaginn
7. júní, þú vildir ólmur koma og
skoða nýja heimilið okkar og taka
það út, kanna hvort bílskúrinn
væri í lagi og þótti miður að bíllinn
kæmist ekki inn. Fyrir þessa
heimsókn þökkum við þér og er-
um afar þakklát fyrir að hafa feng-
ið að vera með þér þessar síðustu
stundir elsku Hjalti okkar.
Með kærleik þig við kveðja viljum
og kærum þökkum fyrir oss.
Vegi Guðs nú varla skiljum
vanmáttugur hinsti koss.
En ekki skal í dimmu dvalið
því dofnar þá í sálu flest.
Í huga heldur upp er talið
og hjarta sem þú gerðir best.
(Leifur S. Garðarsson)
Hvíldu í friði elsku Hjalti okk-
ar.
Blessuð sé minning þín.
Stjúpbörnin þín og tengdabörn
Agnar Kári Sævarsson
og Heiðrún Georgsdóttir,
Sigurlaug Sævarsdóttir
og Hilmar Þór Ívarsson.
Elsku afi, að hugsa sér að þú
sért látinn svona ungur. Þú sem
áttir eftir að upplifa, sjá og gera
svo margt. Sorgin er mikil sem og
ósættið sem fyllir huga minn þeg-
ar ég hugsa til þess að þú ert lát-
inn og að elliár þín sem nota átti til
vellystinga, sem full innistæða var
fyrir eftir áralangt erfiði, séu nú
orðin tóm. Ég trúi því ekki að
svona eigi lífsins gangur að vera.
Þegar hryggðin yfirtekur mann
er ótrúlegt hvað hugsun til ein-
hverra af öllum yndislegu minn-
ingunum um þig, sem ég óska að
hefðu orðið miklu fleiri, getur
glatt mig mikið og yljað um
hjartarætur. Öll skiptin sem þú
sóttir mig í leikskólann, passaðir
mig, útilegurnar, vinnuferðirnar,
jólin, dvalir mínar hjá ykkur
ömmu í kringum skíðaæfingar,
allar heimsóknirnar hvert til ann-
ars og svo mætti lengi telja eru
allt minningar sem ég mun geyma
ævilangt. Einnig mun ég minnast,
taka til fyrirmyndar og sakna
hjálpsemi þinnar og trúmennsku.
Það var ómetanlegt að geta ætíð
treyst á útrétta hjálparhönd þína
ef eitthvað bjátaði á.
Ég mun sakna þín afskaplega
mikið en get þó huggað mig við að
hvar sem þú ert nú staddur veit ég
að þú hefur það gott. Ég óska að
þannig muni það vera um ókomna
tíð og þú fáir að hvíla í friði og ró.
Vertu sæll elsku afi.
Hjalti Þór Ísleifsson.
Minningarnar um hann afa eru
vissulega margar og góðar. Öll
sumur, jól, páskar og allur sá tími
sem við gátum eytt hjá honum og
ömmu á Akureyri, útilegurnar,
ferðirnar á mjólkurbílnum, rúnt-
arnir um sveitirnar og margt
fleira.
Ég á margar góðar minningar
um afa. Þar er mér efst í huga
þegar hann fór með mig til að láta
gata eyrun sem var mjög flott,
hann fór með mér og var mér mik-
ill stuðningur. Afi leyfði mér alltaf
að dýfa sykurmolum í kaffið sitt,
sem mér þótti einstaklega bragð-
gott. Þegar ég kveiki á kertinu
sem þau amma gáfu mér hugsa ég
til hans eins og hann bað mig að
gera. Og í framtíðinni mun ég
minnast hans með loga þessa kert-
is.
Leiðinlegt hversu fljótt þú
varst tekinn frá okkur, en minn-
ingin lifir.
Takk fyrir góðar minningar
elsku afi.
Hilma Ósk Hilmarsdóttir.
Fyrsta minning mín af afa
Hjalta er þegar fjölskyldan fór til
Mallorca fyrir nokkrum árum, þar
sá hann til þess að ég ætti alltaf
nóg af leikföngum og allskonar
dóti og er þar efst í huga þegar
hann keypti páfagaukinn sem ap-
aði allt eftir því sem maður sagði
og hefur hann vakið mikla kátínu í
fjölskyldunni síðan þá. Einnig
eyddi ég mörgum sumarfríum á
Akureyri þar sem mér þótti rosa-
lega gaman að fá að vera aðstoð-
arvinnumaður hjá afa í meindýra-
eyðingunum, þá gat ég komið
heim og sagt félögunum að ég
væri að vinna í sumarfríinu. Ég
mun alltaf hugsa til afa og þakka
honum allar þær stundir sem við
vinirnir eyddum saman.
Blessuð sé minning þín, elsku
afi.
Agnar Þór Hilmarsson.
Það er skrítið að sitja hér og
skrifa minningargrein um þig
elsku afi okkar. Við héldum öll að
við fengjum lengri tíma með þér
en svo ertu allt í einu farinn frá
okkur. Þó svo að okkur hafi verið
sagt að það gæti verið stutt eftir
er erfitt að sætta sig við þetta.
Þegar við kveðjum þig viljum
við minnast æsku okkar þegar við
komum í Eikarlundinn, og svo
seinna Huldugilið, til ykkar
ömmu. Alltaf þegar við komum til
ykkar tókstu vel á móti okkur,
tókst okkur upp og kitlaðir okkur í
hálsinn með skegginu þínu þegar
þú varst að kyssa okkur. Þú kall-
aðir barnabörnin þín alltaf litla
ponta og litli kútur eða sperðill.
Amma minnir okkur reglulega
á það þegar Guðný var með vin-
konu sinni á gæsluvellinum og þú
varst að koma heim úr mjólkur-
ferð og Guðný kallaði á þig „afi,
afi, afi“ og vinkona hennar hermdi
eftir henni og kallaði með henni.
Daginn eftir þegar þú komst heim
voru svo einhver önnur börn á
gæsluvellinum og höfðu heyrt í
vinkonunum daginn áður og köll-
uðu á þig „afi, afi, afi“.
Guðný Ósk og Sævar Veigar
fengu oft að fara í mjólkurferðir
með þér á mjólkurbílnum. Einu
sinni fóru þau með þér á mysu-
bílnum á svínabú, þar fengu þau
að skoða litla grísi. Einnig vildir
þú sýna þeim hvað svínin væru
svöng, þú hentir strigapoka til
þeirra sem hvarf um leið. Svo
tókstu húfuna af Sævari og spurð-
ir hann hvort þú ættir að kasta
henni líka, en hlóst svo bara. Þú
varst nú stundum pínu stríðinn.
Þetta er minnisstæðasta ferðin
þeirra með þér.
Sævar og Guðný muna líka vel
þegar þið fóruð í bústaðaferð og
þau fengu að sitja aftur í skottinu
á Bronconum að leika. Þú keyrðir
síðan á stein og Sævar rak haus-
inn upp í loftið en þú sagðir Sæv-
ari bara að pissa á steininn og
hann gerði það.
Guðný mun seint gleyma hvað
þú gerðir þegar hún fór í fýlu. Þá
settir þú hana alltaf upp á frysti-
skápinn þangað til að hún hætti í
fýlu. Fýlan var fljót að renna af
henni þar því að hún komst ekki
hjálparlaust niður.
Einu sinni þegar þú varst í út-
löndum keyptirðu dótapáfagauk
sem hermdi eftir því sem maður
sagði við hann. Þér fannst þessi
páfagaukur ótrúlega fyndinn,
yngstu barnabörnin muna vel eftir
þessum páfagauk og fannst hann
skemmtilegur. Guðný var á gelgj-
unni þá og fannst þetta ekkert
mjög fyndið en það mun enginn
gleyma þessum páfagauk sem er
enn til.
Jónína og Rafnar, tvö yngri
systkinin, muna eftir útilegum
með ykkur ömmu, oftar en ekki í
Vaglaskógi. Jónína var dugleg að
heimsækja ömmu og afa í Huldu-
gilið á sumrin og Agnar Þór
frændi var oftast með henni þar.
Þar fannst þeim, og finnst enn,
gott að vera og þið amma gerðu
allt fyrir þau. Jónína og Agnar
léku sér mikið í Lego og reyndu að
gera bíla sem voru eins og vinnu-
bíllinn þinn.
Við systkinin hugsum til þín
með hlýhug og hugsum um þess-
ar, og margar aðrar minningar,
sem við geymum í hjörtum okkar
er við kveðjum þig elsku afi Hjalti.
Guðný Ósk, Sævar Veigar,
Jónína Rún og Rafnar Berg
Agnarsbörn.
Hjalti bróðir okkar kvaddi
mjög snögglega þó vissulega væri
vitað að hverju stefndi. Alla ævi
okkar systkina hefur það verið
hluti af sjálfsmyndinni að segjast
vera fimm. Það er vond og óraun-
veruleg tilhugsun að vera nú
skyndilega bara fjögur. En við
getum glaðst yfir ótal góðum
minningum um okkur öll fimm
áfram, því má ekki gleyma.
Hjalti var glaðsinna strákur, al-
gjör hvellur sem drengur, stríðinn
og glaðvær. Prakkarastrikin
koma fljótt upp í hugann og þau
voru ófá. Meðal hans megin-per-
sónueinkenna voru þó hjálpsemin,
fyrirhyggjan og umhyggjan. Vak-
inn og sofinn að spila úr þeim spil-
um sem hann hafði, ekki síst fyrir
fólkið sitt. Hann var maður
lausna, leysti vandamálið áður en
það kom upp. Þannig vissi hann
alltaf af ferðinni sem mátti nýta ef
einhver þurfti að komast eða
koma einhverju milli landshluta.
Einnig gat fléttan verið: „Ef þú
þarft að losna við þetta þá veit ég
um mann sem vantar einmitt
svona.“ Dæmi um umhyggju hans,
í bland við matarást reyndar, var
þegar yngri systirin var að tilreiða
nautakjöt í frystinn. Hjalti hringdi
að minnsta kosti tvisvar til að
minna hana á að hakka nú næga
fitu saman við nautahakkið. Ann-
ars yrði það alveg óætt. Þegar
önnur systranna eignaðist íbúð á
Akureyri leit hann eftir henni
samviskusamlega, ásamt Geira
bróður okkar og kvittaði í gesta-
bókina: „Húsvörður kom, allt í lagi
hér, Hjalti.“
Hjalti hafði alla tíð einlægan
áhuga á vélknúnum ökutækjum.
Hann átti t.d. Chevrolet fólksbíl,
með plötuspilara fyrir 45 snúninga
plötur. Þetta var á brilljantín- og
Kvennaskólapíuárunum. Hjalti,
ásamt bræðrum sínum, þeim
Geira og Leifi, gerði upp fyrsta
traktorinn sem kom í Klauf, Far-
mall A sem var orðinn lúinn og illa
farinn. Hann vann að því verki af
alúð og vandvirkni og var stoltur
af enda varð gamli Farmall eins
og nýr.
Hjalti fór ekki varhluta af áföll-
um í lífinu. Hann missti Sólveigu,
fyrri konu sína, aðeins 32 ára
gamla frá tveimur ungum dætr-
um. Hann sagði kannski ekki
margt en mætti því stóra áfalli
eins og öðrum, af einurð og æðru-
leysi, réð fram úr málum en var
um leið styrkur fyrir aðra í fjöl-
skyldunni. Leiðir Hjalta og Guð-
nýjar lágu saman á Húsavík, hún
hafði einnig misst maka sinn alltof
snemma. Þau hófu sambúð á Ak-
ureyri og studdu hvort annað. Það
er ekki einfalt að sameina tvær
fjölskyldur en með tímanum eru
þær orðnar að einni stórri fjöl-
skyldu. Börn hændust alltaf auð-
veldlega að Hjalta og ömmubörn-
in hennar Guðnýjar áttu öll sinn
afa í Hjalta, rétt eins og barna-
börnin hans eiga Guðnýju fyrir
ömmu. Hjalti og Guðný hlökkuðu
til rólegri daga, hún var nýhætt að
vinna og hann hugðist gera það
fljótlega. Mæt kona sagði eitt sinn
að það væri hámark tilgangsleys-
isins að missa barn og víst er að
við biðjum ekki alltaf um alla þá
reynslu sem að okkur er rétt.
Mamma saknar sonar síns sárt og
við systkinin bróður okkar. Elsku
Heiður, Gígja, Guðný og öll hin,
Guð styrki ykkur og ekki gleyma
að við erum með ykkur áfram.
Geir, Hólmfríður,
Leifur og Anna.
Hjalti Guðmundsson
Fleiri minningargreinar
um Hjalta Guðmundsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi minn, ég vildi að
þú værir enn hjá mér. Ég
sakna þín mjög mikið. Ég
skal vera dugleg að passa
ömmu fyrir þig. Knúsaðu
ömmu Sollu fyrir mig.
Þín ponta,
Sólveig.
Þegar við krakkarnir lék-
um okkur saman í Huldugili
var mikið um gleði og læti,
það er mér efst í huga þegar
allir reyndu að lækka í okk-
ur þá gaf afi okkur alltaf
ástæðu til þess að hlæja
meira og skemmta okkur.
Afi var alltaf þolinmóður og
honum fannst gott að hafa
okkur krakkana hjá sér.
Mér leið svo vel þegar ég
var með afa.
Hvíldu í friði, elsku afi.
Hrannar Már Hilmarsson.
Afi og amma gáfu mér
bangsa sem heitir Teitur í
afmælisgjöf. Það er uppá-
haldsbangsinn minn sem fer
með mér hvert sem ég fer
og ég sef alltaf með hann.
Það var alltaf gott að vera
hjá afa, ég á eftir að sakna
hans mikið.
Bless afi.
Sævar Leó Hilmarsson.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Húsnæði íboði
Einbýlishús í Grafarvogi fæst
leigt á meðan á Landsmóti hesta-
manna stendur. Svefnpláss fyrir 6+
í uppbúnum rúmum, nægt gólfrými
og nokkurra mínútna gangur í sund-
laug og heita potta . Verð: tilboð.
Uppl. í síma 820 9815.
Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi
fannar@fannar.is - s. 551-6488
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Neðst á for-
síðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsending-
armáta og skilafrest. Einnig má
smella á Morgunblaðslógóið efst
í hægra horninu og velja viðeig-
andi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir
birtingu á útfarardegi þarf
greinin að hafa borist á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, jafnvel
þótt grein hafi borist innan
skilafrests.
Minningargreinar