Morgunblaðið - 19.06.2012, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ástvinir þínir eru þurftafrekir um
þessar mundir. Deginum fylgir aukin heppni,
velgengni og hamingja og því er svo sann-
arlega kominn tími til að fagna.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er einhver spenna á heimilinu og
því hefðirðu gott af því að verja tíma með
vini þínum. Vertu tilbúin/n að aðstoða vin
þurfi hann á stuðningi þínum að halda.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Með réttri skipulagningu vinnst
þér svo vel að það er engu líkara en verkin
fljúgi hjá. Ef þú fylgist ekki með hlutunum
áttu á hættu að sitja eftir og missa af öllu
saman.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú stendur þig betur þegar þú hefur
of mikið að gera. Skrifaðu niður hugmyndir
þínar og saltaðu þær svo í nokkra daga.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Líf þitt verður mun meira spennandi
þegar þú ert nálægt ákveðinni manneskju.
Gerðu þér far um að kynna þér alla mála-
vexti áður en þú kveður upp þinn dóm.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert heppin/n. Ef þú veist að þú
getur staðið við þitt, áttu ekki í vandræðum
með að sannfæra aðra. Sýndu fyrirhyggju í
innkaupum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Verkefnin hrannast upp svo þér finnst
þú ekki sjá fram úr hlutunum. Taktu eftir
persónunni sem glóir í návist þinni – og
taktu eitt skref í áttina til hennar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dagurinn er upplagður til þess
að ná sambandi við aðra, hvort sem um er
að ræða yfirborðshjal eða samræður um
fréttir og samfélagsmál.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú átt svo auðvelt með að fara
þínu fram, að þú þarft að gæta þess að
ganga ekki of nærri öðrum. Allt er auðveld-
ara, þegar hver hlutur er á sínum stað.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er mikið að gera á heimilinu,
sem hugsanlega veldur spennu milli fjöl-
skyldumeðlima. Leggðu hugmyndir þínar í
dóm trausts vinar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú býrð þig undir að vinna hörð-
um höndum að því sem þú þráir. Kannaðu
ókunna stigu svo þú getir svalað þörfinni
fyrir að læra eitthvað nýtt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er komið að þér að undirbúa
næstu samveru félaganna og hafðu ekki
óþarfa áhyggjur. Einnig getur þú notað dag-
inn til þess að gera heimili þitt að notaleg-
um og öruggum dvalarstað.
Hjálmar Freysteinsson var úti aðdunda þegar kvennahlaupslið
fór hjá. Ekki þarf meira til að vekja
hagyrðingum andagift:
Það kvenna lið ég lofa vil
og lasta ekki í neinu,
sem hefur slíka tækni til
að tala og hlaupa í einu.
„Mér gengur betur að hlaupa
þegjandi,“ bætti hann við, en svo
rann upp fyrir honum ljós:
Ef kona hleypur mest sem má
myndi hún kannski deyja,
þegar bættist ofan á
áreynslan að þegja.
Ólafur Stefánsson sér þetta fyrir
sér og yrkir:
Var hann úti í garði að gá,
gafst þar vel til fanga
er læraskellur liðu hjá,
og létu túlann ganga.
Sigrún Haraldsdóttir var ekkert
að kippa sér upp við tíðindin:
Skynsamlegt það væri vart
að við færum að þegja
því við höfum mjög svo margt
merkilegt að segja.
Arnþór Helgason bætti við í létt-
um dúr:
Konur stunda kvennahlaup
og keppast við að hlaupa.
Halir víni hella í staup,
sig hamast við að staupa.
Loks orti Friðrik Steingrímsson,
en þá höfðu um þrjátíu íslenskar
konur komið í lónið – með rútu!
Ekki sprett úr spori var,
það sprundum var í haginn.
Þær komu í rútu konurnar
á kvennahlaupárdaginn.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af kvennahlaupinu,
rútu og hagyrðingum
G
æ
sa
m
am
m
a
o
g
G
rí
m
ur
G
re
tt
ir
S
m
áf
ól
k
H
ró
lf
ur
hr
æ
ði
le
gi
F
er
di
n
an
d
ÆTLI ÉG FARI
EKKI OG SLÁI
BLETTINN
UM LEIÐ OG ÉG ER BÚINN AÐ SKRÚFA
SLÁTTUVÉLINA AFTUR SAMAN!
SKIPTILYKILL
EKKI ALVEG ÞAÐ
SEM ÉG SAGÐI
ÉG
ER MEÐ
SÖGU-
SPURNINGU
VAR BEETHOVEN MEÐ FALLEGT
KVENFÓLK Í KRINGUM SIG
ÞEGAR HANN VAR AÐ SPILA?
ÉG HELD AÐ HANN HAFI VERIÐ
LAUS VIÐ ÞAÐ AÐ HAFA
ALLTAF KLIKKAÐA STELPU
HANGANDI YFIR SÉR
STUNDUM ÞEGAR
ÉG GET EKKI SOFIÐ... ...SPYR ÉG
MIG
ÞESSARAR
SPURNINGAR...
„HVAÐ VÆRI ÉG AÐ GERA EF
ÉG VÆRI EKKI Í ÞESSARI
STREITUVALDANDI VINNU?”
...OG
SVARIÐ ER
ALLTAF ÞAÐ
SAMA...
„ÉG VEIT ÞAÐ EKKI, EN
ÉG SVÆFI ALLAVEGANA
BETUR”
FLUG-
VÖLLUR
ÉG ER KOMINN HINGAÐ TIL AÐ
HEIMSÆKJA GRÍM VIN MINN SEM
VINNUR Í ÖRYGGISGÆSLUNNI
HÉRNA Á FLUGVELLINUM
HVAÐ ERTU MEÐ
ÞARNA?
ÞETTA ER
EFTIRMYND AF
FRUMSTÆÐU
KÍNVERSKU SEGLSKIPI
SEM VAR AÐ MESTU
LEITI NOTAÐ TIL ÞESS
AÐ FLYTJA VÖRUR
MÁ ÉG
AÐEINS
SJÁ?
EKKI
ÞUKLA Á
FLEYINU
MÍNU!!
Adolf Hitler ofsækir Víkverjaþessa dagana. Hann er á vappi í
garðinum við sveitasetur hans að
degi sem nóttu og lætur eins og
hann sé heima hjá sér. Hafa þessar
heimsóknir styggt hund Víkverja
svo um munar og þráir sá ferfætti
ekkert heitar en taka Hitler til
bæna. Rúðan á gólfsíðum stofu-
glugganum hefur hingað til komið í
veg fyrir það. Hvað sem síðar verð-
ur. Hermt er að hundar séu afar
næmir fyrir illsku og fátt kvikt hef-
ur gegnum árin farið verr í bless-
aðan hund Víkverja en einmitt Hit-
ler.
Áður en áhugamenn um aftur-
göngur og sálarrannsóknir æða af
stað til fundar við Víkverja og téðan
garðgest skal tekið fram að ekki er
um leiðtoga Þriðja ríkisins sjálfan að
ræða heldur lifandi eftirmynd hans,
bíræfinn ferfætling með mjálm í
kverkum. Líkindin með þeim kump-
ánum eru með ólíkindum, alltént er
skeggið á efri vörinni nákvæmlega
eins. Ekkert skal fullyrt um eðlið.
x x x
Víkverji hefur fylgst grannt meðEvrópumótinu í knattspyrnu
sem fram fer í Póllandi og Úkraínu
og hefur mótið verið prýðileg
skemmtun fram að þessu. Ekkert
hefur komið eins mikið á óvart og
slök frammistaða Hollendinga, liðs-
ins sem lék til úrslita um sjálfan
heimsbikarinn fyrir aðeins tveimur
árum. Sveitin er stríðmönnuð og
bjóst Víkverji ekki við öðru en að
hún kæmist upp úr sínum riðli enda
þótt um svonefndan „dauðariðil“
hafi verið að ræða. Það var eitthvað
annað. Hollendingar sáu aldrei til
sólar og töpuðu öllum sínum leikj-
um. Appelsínuguli herinn hlýtur að
þurfa á ærlegri naflaskoðun að
halda í kjölfarið.
Riðlakeppninni á EM lýkur í
kvöld og býður Víkverji spenntur
eftir að vita hver örlög hans manna,
Englendinga, verða. Víkverji var
rétt sofnaður yfir fyrsta leik Eng-
lendinga gegn Frökkum en sá næsti,
gegn Svíum, var líklega fjörugasti
leikurinn í keppninni til þessa. Fyrir
vikið er ómögulegt að sjá fyrir
hvernig lokaleikurinn gegn Úkraínu
kemur til með að þróast. Vonandi
fer hann þó vel. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð
ALLT FYRIR SKRIFSTOFUNA