Morgunblaðið - 19.06.2012, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2012
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
Hrafnkell Sigurðsson myndlistar-
maður opnar sýningu á Galtarvita
á Vestfjörðum á sumarsólstöðum,
20. júní næstkomandi. Hrafnkell
hefur undanfarnar vikur dvalið á
Galtarvita og unnið þar sýninguna
en hluti af henni er að óvissa á að
ríkja um hvað kemur út þeirri
dvöl.
Sýningarhald á Galtarvita er
nýtt af nálinni en listamenn slógu í
fyrsta sinn upp sýningu þar síð-
asta sumar. Tilefnið var þá að tíu
ár voru liðin frá því að Galtarviti
var sóttur í fyrsta sinn heim af
listamönnum.
Gestir sem hafa áhuga á að
komast á sýninguna eiga hægast
með að komast þaðan úr Skálavík
gangandi. Farið er frá Bolung-
arvík, ekið í Skálavík og gengið
þaðan um Bakkadal og um Bakka-
skarð en reikna má með að það
taki hátt í fjóra tíma að ganga
þangað en það ætti að vera flest-
um viðráðanlegt. Á staðnum er
svo boðið upp á tjaldstæði eða
svefnpokapláss.
Sýningin stendur til 7. ágúst en
á opnunardegi verður boðið upp á
súpu og varðeld.
Sýning í einveru
á Galtarvita
Þriggja til fjögurra
klukkutíma ganga á
sýningu Hrafnkels
Sigurðssonar
Einvera Hrafnkell Sigurðsson dvel-
ur nú á Galtarvita á Vestfjörðum.
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
Hljóðlistamenn frá Grænlandi, Fær-
eyjum, Svalbarða, Norður-Noregi og
Íslandi eiga verk á farandsýningunni
Horizonic sem stendur yfir í Lista-
safni Árnesinga. Sýningin er hluti af
dagskrá Listahátíðar í Reykjavík en
skipulögð af tímaritinu ARTnord
sem kemur út í París. Sérhefti tíma-
ritsins, tileinkað verkefninu, hefur
þá verið gefið út.
„Á þessari sýningu erum við búin
að safna saman listamönnum frá út-
jaðri Norðurlandanna og þetta er dá-
lítið úrtak af því sem er að gerast á
þessu landsvæði í hljóðlist,“ segir
Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur og
annar sýningastjóra Horizonic en
auk hennar hefur Emeline Eudes
umsjón með sýningunni.
„Það má segja að þetta sé sýning
sem allir geta haft gaman af og ekki
síður börn.“ Ásdís segir listgreinina
vera í mikilli uppsveiflu og segir
hvert verkið öðru forvitnilegra. „Má
nefna verk sænsku listakvennanna
Åsu Stjerna og Catrin Anderson en
sú síðarnefnda hefur tekið myndir af
frosinni jörð á Svalbarða og sett upp
þannig að þær minna á stjörnuþok-
ur. Um leið eru spiluð hljóð sem tek-
in eru upp á rannsóknarstöð á Sval-
barða og Anderson vann frekar
með.“
Gengið inn í verk
Frá Noregi koma Amund Sjølie
Sveen og Elin Øyen Vister með verk
sín en Elin vinnur með hljóð sjó-
fuglsins ritunnar og með því að
hreyfa hendur sínar og líkama fyrir
framan stafi sem Vister hefur útbúið
geta gestir sjálfir leikið sér með
hljóðin. Þá er færeyska tónskáldið
Goodiepal með hljóðverk en hann
hefur vakið mikla athygli fyrir
óvenjuleg verk sín og frá Grænlandi
koma Iben Mondrup og Jessie
Kleemann en þær eru brautryðj-
endur í notkun hljóðs í grænlenskri
sjónlist.
Íslensku listamennirnir á sýning-
unni eru þrír. Dodda Maggý er
yngsti listamaður allrar sýningar-
innar en verk hennar byggja jafnt á
hljóði sem og hljóðlausum myndum
sem minna ekki síður á tónlist.
„Verk Doddu Maggýjar er sér-
stakt að því leyti að þetta er hljóð-
laust hljóðverk en hún tók ljós-
myndir sem hún raðaði saman.
Hljóðlistamenn taka stundum upp
hljóð úr náttúrunni en hún tók
myndir í staðinn og raðaði þeim svip-
að upp og hún væri að setja saman
hljóðverk og myndirnar gefa til
kynna hrynjandi, liti og alls kyns
blæbrigði. Verkinu er varpað á gegn-
sætt tjald og hægt er að ganga á bak
við það og hálftýnast inni í því.“
Spilað fyrir hnúfubaka
Íslensku listamennirnir Halldór
Úlfarsson og Kira Kira, Kristín
Björk Kristjánsdóttir, eiga verk á
sýningunni sem eru einnig for-
vitnileg. Halldór hefur unnið að því
að þróa hljóðfæri, svokallaðan dóró-
fón, hljóðfæri sem minnir um margt
á selló og hefur verið aðlagað að eig-
inleikum þess en hljómur þess fæst
með því að enduróma strengina á
stýrðan máta.
„Hildur Guðnadóttir sellóleikari
samdi tónverk fyrir dórófón og við
sýnum myndband af því verki. Hall-
dór fór á sjó til að kanna möguleika á
samtali milli dýrategunda og hann
spilaði tónlist dórófónsins fyrir
hnúfubaka en dórófónninn hljómar
stundum eins og söngur hnúfubaka
en þeir eru mjög söngelskir. Það er
því spennandi að sjá hvort laglínan
sem Halldór spilaði fyrir þá smelli
inn hjá þeim á næsta ári, en þetta er
því verk í vinnslu. Við sýnum einnig
hljóðfærið sjálft þarna og myndband
af því þegar Halldór fer út á sjó sem
og ýmislegt er tengist verkefninu.“
Kira Kira hefur spreytt sig á ýmsu
og fyrir sýninguna hélt hún í rústir
Eden í Hveragerði sem brann á síð-
asta ári. Þar gerði listakonan hljóð-
innsetningu þar sem hljóð og ljós
voru látin blása lífi í yfirgefnar rústir
veitingastaðarins. Verkið er sér-
staklega tileinkað minningu þeirra
fugla sem urðu eldinum að bráð.
Sýningunni lýkur 1. júlí og Bryndís
segir sýninguna tilvalinn áfangastað
fyrir fjölskylduna í smá bíltúr út fyr-
ir borgarmörkin.
Fremstu hljóðlistamenn norðurslóða
Verk í minningu fuglanna sem brunnu í Eden og laglína spiluð fyrir hnúfubaka af dórófón
Samruni Dodda Maggý inni í verki sínu sem er eins konar hljóðlaust myndband sem minnir þó á tónlist.
Aðstandendur Sýningarstjórar Horizonic eru Emeline Eudes og Ásdís Ólafsdóttir listfræðingar en hér eru þær
með sýningarhönnuðinum Dorothée Nourisson. Ásdís segir verk listamannanna höfða til ungra sem aldinna.
Draghálsi 4 - 110 Reykajvík
Sími: 535 1300 - Fax: 535 1305 - verslun@verslun.is
T
A
K
T
IK
_
a
p
r1
2
_
3
8
0
5
Kæli- og frystitæki
Pöntunarsími: 535 1300
OFC 250
B: 685 D: 610 H: 1700 Kæling 2/12°C
199.000.+vsk
2 stærðir
sama verð
XS 600 Stærð (bxhxd)
1475x837x757mm Kæling -12/ -24°C
129.000.+vsk
Kæling +2/+12°C - Innbyggð lýsing -
Stærð b:682 d:450 h:675
Frystir
99.000.+vsk
KK 420
B: 615 D: 590 H: 1945
- 350 L innanmál -
Kæling +2/+10°C - 8
hillur - Læsing
KK 415
B: 606 D: 575 H:
1980 - 360 L
innanmál - Kæling
+2/+10°C - 8 hillur
- Læsing
109.000.+vsk SD 155 Stærð (bxdxh)
564x695x905mm Kæling
-12/ -22°C
SD 305 Stærð (bxdxh)
950x695x905mm
Kæling -12/ -22°C
79.000.+vsk 99.000.+vsk
199.000.+vsk
109.000.+vsk
Til á lager
KK 520 B: 650 D:
705 H: 1970 -
488 L innanmál -
Kæling -12/-22°C
- 8 hillur - Læsing
Frystir