SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Blaðsíða 16

SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Blaðsíða 16
16 3. júní 2012 Það er svo margt vinur,“ segirÓli Ólason útgerðarmaður fráGrímsey föðurlega, spurðurhvað heilli við hafið. „Eiginlega er ekki hægt að segja frá því. Það er spenna, maður ræður sér sjálfur, stjórnar sjálfur, er ekki á tímakaupi, er bara …“ – Einn með náttúrunni? „Nei, maður var nú með menn með sér,“ svarar hann og hristir höfuðið. – En þessu fylgir spenna? „Heilmikil spenna! Maður verður spenntur yfir að veiða og reikna út hvernig á að gera þetta. Það er mikil kúnst að sökkva línu niður á 160 til 180 faðma dýpi og reikna út strauminn, hún getur borist 1 til 2 sjómílur ef straum- urinn er sterkur. Það er kúnst að koma henni niður á réttan stað.“ Níu ára á sjóinn Elín Þóra Sigurbjörnsdóttir, móðir Óla, fæddist á Sveinsstöðum í Grímsey, en faðir hans Óli Bjarnason, er uppalinn í Fjörðum – á Hóli í Þorgeirsfirði. Þegar hann var níu ára missti hann pabba sinn, móðir hans giftist aftur og flutti út í Grímsey. „Það var gott að alast hér upp,“ segir Óli með glampa í augum. „Það þætti ekki sniðugt núna, en við fórum níu og tíu ára, fengum lánaðan árabát og rerum eitt sumar. Við máttum ekki fara austur fyrir eyna, þar sem björgin eru, því þá vorum við komnir í hvarf og vorum ósyndir. Þetta er gáfulegt núna,“ segir hann og hlær. „Við fiskuðum mikið. Það var frystihús þarna og við höfðum heilmikið upp úr þessu guttarnir. Þetta þótti rosalega flott og var fyrsta sjómennska mín. Síðan er ég búinn að vera í 70 ár á sjó.“ Upp úr þessu fór hann á bát með pabba sínum og afa, þar til hann gerði út sjálf- stætt. „Ég fór á vertíð suður, bæði til Vestmannaeyja og Grindavíkur, því það voru léleg hafnarskilyrði heima. Svo fengum við góða höfn og gátum róið allt árið.“ – Þetta er lítið samfélag? „Það er bara gott. Menn þekkjast vel og ef eitthvað kemur fyrir, eru allir boðnir og búnir að hjálpa.“ Hjálmurinn brotnaði Óli seig í björgin í fjörutíu ár. „Það byrj- aði þegar ég var fjórtán ára. Þá fékk pabbi stein í höfuðið og hætti – og ég tók við. Þetta segi ég alltaf,“ segir hann og brosir. „Það kom aldrei neitt fyrir mig, nema einu sinni braut ég mig aðeins á fæti og einu sinni fékk ég stein í hausinn. En þá var ég kominn með plasthjálm, hann brotnaði og skar mig, þannig að ég var alblóðugur þegar ég kom upp. Það hefur ekki verið sjón að sjá mig. En þetta var ekki neitt. Það hættulegasta við að síga var ef smásteinn hrundi úr hundrað metra hæð; maður þurfti stöðugt að gá að grjóthruni, eiginlega að vera með annað augað uppi.“ – En þú varst ekki lofthræddur? „Nei, það var ég ekki. Ég hafði klifrað mikið áður en ég fór að síga. En þá hætti ég því. Ég sá hvað það er vitlaust. Það er mikið betra að vera í vaðnum.“ – Þú hefur byrjað snemma? „Þá var ég strákur, bara að fíflast og ná í egg. Stundum komst ég í svo mikla sjálfheldu, að ég hét því að gera þetta aldrei aftur ef ég kæmist upp eða niður. En svo gleymdi maður því strax.“ – Hvernig var að eiga við fýlinn? „Það var ógeðslegt,“ segir Óli og ljóm- ar. „Þá var fýlunginn veiddur í bjarginu, það þurfti að síga á hann, svo var maður með prik og snöru á endanum, setti hana á hausinn á þeim. Ég kom einu sinni að fjórum, fimm inni í skúta, vissi að þeir myndu fljúga ef ég ætlaði að taka þá með prikinu, tók bara sprang eins og í Vest- mannaeyjum og stökk fyrir. Þá kom ælan framan í mig – ég ældi bara á móti, því ég fékk upp í mig. Ég fékk hana í augun líka og sá illa, en hélt þeim öllum. Þeir verja sig með þessu og það er ægilegur óþverri, enda varð að henda fötunum. Svo fórum við að taka þá af sjónum. Fýllinn verður svo feitur að hann rétt kemst úr bjarginu í sjóinn og getur ekki flogið fyrstu dagana á meðan hann er að megra sig, þannig að við tókum hann bara með háf.“ – Og gömlu mennirnir náðu fuglinum án þess að vera með byssu? „Það var kallað að hlaupa undir,“ segir Óli . „Fuglinn sat í urðunum, en var ekki hátt í bjarginu. Þá hlupu þeir fyrir og örguðu, fuglinn missti við það flugið og hafði sig ekki fram í sjóinn. Og þeir tóku hann bara í fjörunni. Það voru ekki nema örfáir sem áttu byssu.“ Í brjáluðum veðrum Grímsey er mikil matarkista, en ekki er alltaf á vísan að róa. „Þegar hafísinn kemur versnar í því – þegar allt lokast. Afi gamli sagði mér frá því, að rétt fyrir jólin 1880 var matarlaust og menn ætluðu að ná í hveiti og nauðsynjar. Það gerði grenjandi stórhríð í heila viku og þegar birti upp var allt orðið fullt af ís, engin talstöð og enginn sími. Sjö eða átta fóru róandi á árabát og fólkið í Grímsey vissi ekkert um afdrif þeirra. Þeir komust ekki til baka fyrr en eftir þrjá eða fjóra mánuði og það var víst ægileg gleði þegar þeir komu með kaffið!“ Óli hefur alltaf unnið mikið, yfirleitt á sjónum. „Ég tók þriggja mánaða tarnir, svo smáhvíld, fór kannski í sumarfrí. Þá var maður að drepast úr vöðvabólgu og svínaríi, því ég stóð í sömu sporum allan daginn. Það var einhæf vinna að gogga fisk. Ég keypti lítinn dekkbát, 11 tonn, gerði hann út frá Grindavík eina vertíð og síðan frá Grímsey. Síðustu árin var ég með harða báta. Ég er búinn að fiska svo mikið að ég þori ekki að taka það saman – það er svo mikið. Ég fór aldrei niður fyrir 500 tonn þessi ár.“ – Lentirðu í sjávarháska? „Já, nokkrum sinnum, ekkert alvarlegt samt. Ég lenti bara í brjáluðum veðrum og lenti í að bjarga mönnum líka. Einu sinni strandaði Bergfoss austan við Grímsey, hann var að koma með grjót úr landi í höfnina. Þeir höfðu farið í var þeg- ar það kom norðaustanhvellur. Þá bilaði og þá rak upp í fjöru. Tvær gjár voru í berginu, við fórum niður aðra, þá fljót- farnari, og þeir voru komnir upp í fjör- una þegar við komum, blautir og kaldir í stórhríð. Ég og pabbi fórum með þá tvo og hálfan kílómetra eftir fjörunni og upp aðra gjá. Það þótti gott að koma þeim þessa leið.“ Það urðu nokkur hjónabönd Óli spilaði á harmóníku á böllum í gamla daga en segist hættur því. „Það voru allt- af böll, enda síldin í kring og mikið af skipum sem lögðu upp að. Svo varð allt vitlaust á dansgólfinu!“ – Áttuð þið fullt í fangi með að verja konurnar? „Ekki man ég eftir því. En það var verra með ungu stúlkurnar. Þær voru gómaðar nokkrar. Það urðu nokkur hjónabönd úr þessu. Þetta voru ungir strákar og myndarlegir sem komu og stúlkurnar úr Grímsey voru fallegar yf- irleitt.“ – Hvenær var blómlegast í Grímsey? „Ætli það hafi ekki verið frá 1990 og „Ég ældi bara á móti“ Óli Ólason hefur gert út í sjötíu ár og upplifað tímana tvenna og þrenna í harðbýlinu við heim- skautsbaug. Hann seig í björgin í Grímsey frá 14 ára aldri, tók við þegar pabbi hans fékk stein í höfuðið og hefur sínar skoðanir á veiðum á fisk- um og fuglum. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Prófasturinn í Grímsey. Lundapar á bjargbrúninni. Grímseyingar kunna að meta eggin. Morgunblaðið/Einar Falur

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.