SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Side 45

SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Side 45
3. júní 2012 45 LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar [I]NDEPENDENT PEOPLE / „SJÁLFSTÆTT FÓLK“ 19.5.–2.9. 2012 ÖLVUÐ AF ÍSLANDI / INSPIRED BY ICELAND 19.5.–4.11. 2012 DÁLEIDD AF ÍSLANDI / HYPNOTIZED BY ICELAND 19.5.–4.11. 2012 HÆTTUMÖRK / ENDANGERED 19.5.–31.12. 2012 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14 um sýningar safnsins, „Að hætta sér inn á land“ í fylgd Halldórs Björns Runólfssonar safnstjóra. SAFNBÚÐ, Útskriftartilboð á útgáfum safnsins. SÚPUBARINN, 2. hæð. Hollt og gott allan daginn! Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is Listasafn Reykjanesbæjar MILLILANDAMYNDIR 45 verk eftir ýmsa listamenn 2. júní – 19. ágúst Bátasafn Gríms Karlssonar 100 bátalíkön og ýmsar sjóminjar Byggðasafn Reykjanesbæjar VERTÍÐIN - Ný sýning um sögu svæðisins til 1940 Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Sunnudagsleiðsögn 3. júní kl. 14:00: Ágúst Ó. Georgsson leiðir gesti um sýninguna Björgunarafrekið við Látrabjarg Kvikmyndasýning sunnudaginn 3. júní kl. 15:00: Björgunarafrekið við Látrabjarg Fjölbreyttar sýningar: Björgunarafrekið við Látrabjarg – ljósmyndir Óskars Gíslasonar TÍZKA – kjólar og korselett Aðventa á Fjöllum – Ferðalangar á Fjöllum Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky – 40 ár Spennandi safnbúð og Kaffitár Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið alla daga kl. 10-17. Laugardaginn 2. júní kl. 15 Ný sýning verður opnuð Síðasta abstraktsjónin Eiríkur Smith 1964 - 1968 2. júní - 19. ágúst Hús Hreinn Friðfinnsson 12. maí - 19. ágúst Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis NÝ SÝNING VERÐUR OPNUÐ FIMMTUDAGINN 7. JÚNÍ KL. 17: SAGA TIL NÆSTA BÆJAR (7.6.-14.10.2012) Opið alla daga nema mán. kl. 12-17. Verslunin KRAUM í anddyri. Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is HORIZONIC rými og víðáttur í hljóðlist Listamenn frá útjaðri Norðurlanda Kaffistofa – Leskró – Barnakró Opið fim.-sun. Kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði B ækur sjálfhverfra rit- höfunda hafa notið talsverðra vinsælda síðustu árin og sumir þeirra hafa auðgast mjög á bók- um handa einmana sálum í leit að tilgangi lífsins, sjálfum sér og lífshamingju. Þótt Kristian Lundberg sé ákaflega sjálf- hverfur í nýrri bók sinni, Allt er ást, sker hann sig úr að ýmsu leyti. Eins og sönnum Svía sæm- ir blandar hann sjálfhverfuna samfélagslegum vandamálum á borð við áfengis- og eitur- lyfjafíkn og ömurlegar aðstæður barna sem alast upp við geð- sjúkdóma, auk mannréttinda- brota gegn „pappírslausu“ fólki eins og Lundberg kallar „ólög- lega innflytjendur“. Lundberg veitir nokkra innsýn í skugga- hliðar sænska velferðarsam- félagsins og heim fólks sem er utangarðs. Slíkar bækur eru ekki líklegar til vinsælda, alltént utan Sví- þjóðar. Sænskir bókmenntavitar eru þó veikir fyrir utangarðs- mönnum og Lundberg fékk bókmenntaverðlaun sænska ríkisútvarpsins í ár fyrir bókina. Kristian Lundberg er 46 ára og hefur skrifað á þriðja tug bóka, m.a. margar ljóðabækur. Hann hefur einnig skrifað ritdóma fyrir sænsk blöð og einn þeirra vakti talsverða at- hygli þegar hann var birtur í des- ember 2006. Lundberg gagn- rýndi þá krimmann „Fruktans Makt“ (Vald óttans) eftir blaða- manninn og rithöfundinn Britt- Marie Mattsson. Hann komst að þeirri niðurstöðu að fléttan væri „fyrirsjáanleg“ og persónurnar flatar. Hængur var þó á, að margra mati. Hann var sá að bókin var ekki til. Sænskt forlag hafði kynnt bókina í bæklingi um vænt- anlegar bækur en ekki varð af útgáfu hennar. Helsingborgs Dagblad ákvað að birta ekki fleiri ritdóma eftir Lundberg og atvikið mun hafa orðið til þess að hann hóf störf sem dag- launamaður hjá mönnunar- fyrirtæki í heimaborg sinni, Malmö. Þá opnaðist nýr heimur fyrir Lundberg sem skrifaði bókina Yarden (útg. 2009) um reynslu sína sem daglaunamaður á Planinu í höfn Malmö þar sem glænýir bílar eru geymdir. Nýja bókin, Allt er ást, fjallar einnig um þessa reynslu, í bland við bernskuminningar höfundar og ást hans á konu sem hann hafði misst vegna fíkniefnaneyslu sinnar og síðan endurheimt, um sinn að minnsta kosti. Líkt og í óbirtri bók Mattsson fer ekki mikið fyrir persónu- sköpun í bók Lundbergs. Les- andinn fær t.a.m. nánast ekkert að vita um konuna, sem er elsk- uð, og líklega á hún að vera ein- hvers konar tákn. Bókin fjallar fyrst og fremst um innri baráttu höfundarins, meðal annars skömm og sektarkennd hans, auk uppgjörs hans við foreldr- ana, vænisjúka móður og grimman föður sem yfirgaf fjöl- skylduna og hafði ekkert sam- band við börnin sín. Þótt ang- istin sé stundum mikil fellur höfundurinn ekki í sjálfs- vorkunn. Þýðing Þórdísar Gísladóttur á bókinni er mjög góð. Að öllu samanlögðu má segja að bók Lundbergs sé áhugaverð lesning fyrir fólk sem hefur unun af ljóðrænni naflaskoðun miðaldra rithöfunda. Naflaskoðun og samfélagsmein Bækur Allt er ást bbbmn Skáldsaga Eftir Kristian Lundberg. Þórdís Gísla- dóttir íslenskaði. Bjartur, 2012. Kilja, 159 bls. Bogi Þór Arason - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Það er alltaf erfitt þegarmaður þarf að geraupp á milli hluta einsog ég þarf að gera núna þegar ég var beðin um að segja frá uppáhaldsbókinni minni. Margar bækur koma upp í hugann en fyrst vil ég nefna ævisögu Einars Benediktssonar eftir Guðjón Friðriksson en það tók mig meira en eitt ár að kom- ast í gegnum öll bindin. Saga Einars er fjölskyldusaga sem margt er hægt að læra af. Í sög- unni koma fyrir margar merki- legar persónur sem tóku þátt í að móta sjálfstæði og sjálfsmynd Íslendinga, t.d. Þorbjörg Sveins- dóttir, föðursystir Einars, og svo að sjálfsögðu Benedikt Sveins- son, faðir Einars. Ég byrjaði að lesa ævisögu Einars í byrjun árs 2008 og lauk henni nokkrum mánuðum eftir efnahagshrunið. Það eru margar samlíkingar með ævi Einars og margra svokallaðra útrásar- víkinga og stundum fannst mér ég vera að lesa Séð og heyrt í nú- tímanum en ekki fjölskyldusögu frá því um aldamótin 1900. Texti Guðjóns í þessari sögu blandast skemmtilega saman við texta Einars og Guðjóni tekst vel að setja mann inn í aðstæðurnar sem voru á Íslandi um aldamót- in. Eftir lestur þessarar sögu hef ég enn frekar heillast af þessum mótunarárum íslensku þjóðar- innar og lesið margar bækur um þetta tímabil um aldamótin 1900 eftir þetta. Ég vil líka nefna Gyrði Elías- son en ég las bókina hans Bréf- bátarigningin sem unglingur og heillaðist af dulúð og drauga- gangi í sögunum hans. Finnst hann alltaf jafn skemmtilegur höfundur. Kannski hefur það haft áhrif á mig á sínum tíma að við Gyrðir erum bæði uppalin á Sauðárkróki og oftar en ekki gerast sögurnar hans á Króknum þótt ég hafi nú aldrei mætt gangandi íkorna þar. Annars er ég alæta á lesefni og les yfirleitt eitthvað á hverju kvöldi. Við hjónin höfum lesið fyrir börnin okkar og er það veganesti sem ég tel að sé afar gott til framtíðar. Ég las líka mikið sjálf þegar ég var krakki og þegar ég var í sveitinni á sumrin var stundum lesið fyrir okkur krakkana. Sérstaklega er mér það minnisstætt að hafa hlustað á lestur á þjóðsögum Jóns Árnasonar. Ég sagði afa mínum það einu sinni að ég ætl- aði að verða rithöfundur, og er enn að velta því fyrir mér. Lesarinn Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri Líkindi með Einari Ben. og útrásarvíkingunum Gyrðir Elíasson Guðjón Friðriksson

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.