SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Blaðsíða 18
18 3. júní 2012
Hljómalindarreiturinn af-markast af Laugavegi,Smiðjustíg, Hverfisgötu ogKlapparstíg. Fyrri eigendur
stefndu að stórum byggingum og bíla-
kjallara á reitnum en núverandi eig-
endur hafa fallið að hluta frá þeim
áformum. Laugavegsreitir hafa þess í
stað gert skipulagslýsingu fyrir svæðið
sem unnin er í nánu samráði við hags-
munaaðila, s.s. verslunar- og veitinga-
húsaeigendur, húseigendur, íbúa-
samtök og hverfaráð miðborgar auk
skipulagsyfirvalda.
Leitað til samfélagsins frá upphafi
„Við veltum því fyrir okkur hvernig
best væri að nálgast þetta verkefni sem
hefur verið í nokkurri óvissu í tölu-
verðan tíma. Borgin og fyrri eigendur
náðu ekki samkomulagi svo við
ákváðum að taka þann pól í hæðina að
ræða við samfélagið, íbúasamtök,
hverfaráð og fleiri til að komast til
botns í væntingum þeirra til svæðisins.
Við fórum af stað án þess að móta
okkur nokkrar hugmyndir og ákváðum
að byrja upp á nýtt í samvinnu við áð-
urnefnda aðila,“ segir Hannes Frímann
Sigurðsson, verkefnastjóri hjá Lauga-
vegsreitum ehf.
Að sögn Hannesar vann síðan starfs-
hópur sem samanstóð af hags-
munaaðilum auk fulltrúa Laugavegs-
reita úr niðurstöðum samráðsferilsins.
Sú vinna fólst í að gera svokallaða
skipulagslýsingu fyrir svæðið sem var
send skipulagsráði borgarinnar til um-
fjöllunar. Undirtektir við lýsinguna
voru jákvæðar og jafnframt var breytt-
um vinnubrögðum með aukinni sam-
vinnu við hagsmunaaðila fagnað.
Þessi nálgun forsvarsmanna er ný-
stárleg enda ekki sjaldgæft að tölu-
verðar deilur skapist um skipulagsmál,
sérstaklega í miðborginni. „Vegferð
fyrri eigenda hafði ekki skilað viðhlít-
andi árangri. Aðilar málsins, skipu-
lagsyfirvöld, borgararnir og fyrri eig-
endur, náðu ekki sátt um skipulag á
svæðinu. Við hugsuðum með okkur
hvort ekki ætti að snúa taflinu við,
reyna að ná samkomulagi við sam-
félagið og alla þá sem láta sig málið
varða. Því vildum við fara í samráðs-
ferli, kalla saman rýnihópa og kanna
væntingar hlutaðeigandi aðila til svæð-
isins. Ef við höfum náð sátt við fólkið
þá hlýtur það að auka líkurnar á því að
úr verði skipulag sem flestir geti sætt
sig við.“
Samræmist nánasta umhverfi
Hannes segir umræðuna í rýnihóp-
unum hafa einkennst af áherslum á
sól, skjól, íbúðir og fjölskyldufólk. Auk
þess hafi margir aðilar sem hafa kynnt
sér miðborgir annars staðar sagt að
nauðsynlegt væri að fá fólk til að búa
þar til að viðhalda mannlífi í mið-
borgum. „Meginstefið var að fólk vildi
fá íbúðir, þjónustu, verslanir og mögu-
leika á litlum rýmum svo á reitunum
gætu meðal annarra einyrkjar, frum-
kvöðlar og listamenn fundið sér farveg.
Við einsettum okkur að viðhalda þeim
anda sem fyrir ríkir og viðhalda álíka
andrúmslofti og Reykjavík býður upp
á,“ segir Hannes og tekur fram að
stefnt sé að því að uppbyggingin sé í
samræmi við nánasta umhverfi. Hann
bætir við að fólk sé ánægt að verið sé
að tóna niður þær stóru og miklu
byggingar sem áður voru fyrirhugaðar
á svæðinu.
Hannes segir að væntingar til arð-
semi hafi strax frá byrjun verið hóf-
stilltar. „Fyrir okkur og í raun alla er
það miklu nær að ná samkomulagi um
skipulag svæðisins, það var fyrri eig-
endum mjög kostnaðarsamt að ná
aldrei samkomulagi. Ávinningur okkar
felst í að ná samkomulagi við sam-
félagið og hagsmunaaðila svo allir geti
notið góðs af metnaðarfullu skipulagi,“
segir Hannes.
„Mjög faglega var staðið að sam-
ráðinu, tveggja mánaða vinna fór í að
kanna vonir, væntingar og skoðanir
hinna ýmsu hópa sem að málinu koma.
Við gerum þær kröfur til arkitektanna
sem ráðnir hafa verið til verksins að
þeir finni andann í verkefninu og þeir
fjölmörgu aðilar sem tóku þátt í sam-
ráðsferlinu finni að lokum að þeirra
aðkoma hafi áhrif á lokaniðurstöðuna.“
Hannes tekur fram að reynt verði að
halda mjög í götumynd Laugavegarins
en hinsvegar sé staðreynd að nokkur
hús á Hverfisgötu hafi verið dæmd
ónýt. Hann ítrekar að því verði mætt
með fallegri borgarmynd, þar komi
vissulega nýjar byggingar í staðinn en
þó þannig að fólki upplifi anda mið-
borgarinnar í umræddum byggingum.
Á Hljómalindarreitnum er í dag opið
svæði þar sem oft myndast lifandi og
fjölskrúðugt andrúmsloft, Hannes segir
að hugmyndir samráðsaðila geri ráð
fyrir einhverskonar torgi eða opnu
rými á svæðinu. „Þar yrði vettvangur
skapaður, miðpunktur fyrir fólk til að
koma á eigin forsendum og eiga
skemmtilega stund.“
Viðbót við miðbæjarflóruna
Að sögn Hannesar er stefnt að því að
búa til nýjan sælureit, spennandi við-
bót við miðbæjarflóruna. „Við gerum
jafnvel ráð fyrir því að þetta verði torg
með takmörkuðum afgreiðslutíma og
íbúarnir gætu því fundið frið og næði á
sínum heimilum. Við hugsum jafnvel
til þess að setja í skipulagsskilmála að
ekki sé gert ráð fyrir næturklúbbum á
reitnum þó erfitt geti verið að stýra
Samsett mynd tekin ofan af
húsi við Klapparstíg.
Samfélagið
taki þátt
í mótun
Hljómalindar-
reitsins
Nú standa fyrir dyrum áætlanir um uppbyggingu
á Hljómalindarreitnum. Laugavegsreitir ehf.
keyptu í lok síðasta ár flestar eignir á svæðinu.
Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is
Á kortinu má sjá svæðið sem Laugvegsreitir ehf eiga.
Hljómalindarreiturinn frá Hverfisgötu.