Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 31.07.2012, Qupperneq 18
J afnrétti kynjanna er eilíft umræðuefni, eldheitt og mikilvægt. Jafnréttisbar- áttan hefur að miklu leyti beinst að vinnumarkaðinum, að karlar og konur hafi þar jöfn tækifæri. Virðist það mjakast í rétta átt þó að óútskýrður launamunur kynjanna sé enn 7% hér á landi, konum í óhag. En það er annar vettvangur sem einnig er vert að beina sjónum að í jafnréttisbaráttunni; hinn óútskýrði munur á hlutverkum kynjanna inni á heimilunum. Eitt sinn skáru konur upp herör gegn hlut- verkaskiptingunni á heimilinu, það breytti nokkru í jafnréttisbaráttunni. Mér finnst sú bar- átta kvenna hafa staðnað. Kannski er það vegna þess að hlutverkaskipting kynjanna inni á heim- ilunum fer ekki hátt og er oft þögguð niður ef um hana er rætt, því enginn vill viðurkenna að á bak við luktar dyr heimilisins eigi óréttlætið sér enn stað. Vissulega eru til þær fjölskyldur þar sem báðir aðilar sinna heimilinu og börnunum til jafns, en ef ég lít í kring- um mig er ljóst að konan hefur heimilisstörfin oftar á herðum sér. Báðir aðilar eru í jafn mikilvægu starfi, en karlinn virðist oft ná að telja maka sínum trú um að starf hans sé mikilvægara en starf konunnar. Hann virðist hafa meiri „rétt“ til að vinna frameftir, en þegar málið er skoð- að kemur í ljós að hann afrekaði ekki endilega meira á sín- um tíu tíma vinnudegi en konan á sínum átta tímum. Hennar vinnudagur er miklu skilvirkari því hún hefur síð- ur völ á því að slæpast. Daglega vinnur konan fullan vinnudag, sinnir börnunum að stærstum hluta, sér til þess að almennilegur matur er á borðum og sér einnig um þvott og þrifnað. Þetta er gert án mikillar hugsunar, bara gangur lífsins, rútína dagsins. Þegar konan er spurð að því hver sér um að halda heimilinu gangandi, við- urkennir hún nú að það sé oftast hún en bætir svo við í léttum tón: „En Jón gerir bara eitt- hvað annað á heimilinu í staðinn og svo eldar hann nú stundum.“ Þegar nánar er að gáð er eldamennska Jóns ekki meiri en svo að hann grillar á sumardögum, ber á pallinn einu sinni á ári og hengir upp myndir í þau skipti sem það þarf. Karlinn heldur oft friðinn með því að gera „eitthvað“ á heimilinu en vinnuframlag hans er því miður allt of oft ekki nema brot af því sem konan gerir. Það mætti líta á þetta sem ómeðvitað ójafnrétti, konurnar vinna heimilisstörfin ósjálfrátt en átta sig ekki á því mikla álagi sem þær eru undir með bæði fulla vinnu og heimili. Hin daglega rútína á heimilinu er nefnilega nokkuð mikil og það dugar ekki að karlarnir taki bara til hendinni á álagstoppum. Það heyrist stundum að karlinn sé duglegur að „hjálpa til“ en það er jafn fáránlegt tal og þegar talað er um að pabbinn „passi“ börnin sín. Karlinn á að vera fullur þátttakandi í heimilis- haldinu og taka jafn mikla ábyrgð á því og konan. Heimilið virðist vera sá staður sem seint vinnst í jafnréttis- baráttunni á meðan það er sá staður sem hefði kannski átt að vinnast fyrst. ingveldur@mbl.is Með heimilisstörfin á herðum sér Ingveldur Geirsdóttir Pistill BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Skiptar skoðanir eru meðalkaupmanna og rekstraraðilaí miðborg Reykjavíkur umþá ákvörðun Bílastæðasjóðs að hækka stöðumælagjöld um allt að 50% á þremur gjaldsvæðum af fjórum og lengja gjaldskyldu á laugardögum. Við bætist óánægja margra fyrir- tækja með lokun fyrir bílaumferð á neðri hluta Laugavegarins. Er þetta talið geta dregið verulega úr ferðum fólks í miðbæinn og þar með dregið úr viðskiptum. Eru borgaryfirvöld einn- ig gagnrýnd fyrir skort á samráði við kaupmenn og rekstraraðila í mið- bænum um þessar ákvarðanir. Samtök kaupmanna og fasteigna- eigenda við Laugaveg sendu þannig frá sér ályktun þar sem gjaldskrár- hækkuninni er harðlega mótmælt. Umræddar hækkanir hefðu verið ákveðnar án samráðs við verslunar- eigendur og aðra hagsmunaaðila á svæðinu. Samtökin voru stofnuð fyrr í sumar en í þeim eru aðallega kaup- menn nokkurra rótgróinna verslana og fyrirtækja við Laugaveg. Samráð virðist hins vegar hafa ver- ið haft við Miðborgina okkar, sem er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborg Reykjavíkur og jafnframt samráðsvettvangur milli borgarinnar og fyrirtækja í miðbænum. Jakob Frímann Magnússon, fram- kvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar, segir hækkun Bílastæðasjóðs hafa verið borna undir stjórn Miðborgar- innar. Stjórnin hafi fjallað um áform- in og óskað eftir því að fyrirhugðum hækkunum sjóðsins yrði haldið í lág- marki. „Það var tekið tillit til þeirra óska að einhverju leyti en hækkunin er engu að síður meiri en við hefðum óskað okkur,“ segir Jakob, en telur nokkurn hluta rekstraraðila skilja og virða þau sjónarmið að ástæða sé til að auka hreyfingu á bílastæðunum. Mjög lág bílastæðagjöld geti vissu- lega leitt til kyrrstöðu og þess að íbú- ar og starfsmenn verslana freistist til að hafa eigin bíla í stæðum sem ann- ars væru opin viðskiptavinum. „En við hefðum talið heppilegra að gera þetta í smærri skrefum.“ Jakob bendir á að það sé mikill áhugi fyrir því í borgarstjórn að hreyfa við bílavæðingunni, þannig að hún verði ekki eins ráðandi í mið- bænum og verið hefur. Íslendingar hafi reyndar vanist því að geta ekið bílum sínum nánast inn í verslanir og séu t.d. ekki að nota bílastæðahúsin mjög vel. Ástæða hafi verið talin til að auka hreyfingu á bílastæðunum en ekki sé sama hvernig það sé gert. Tekjuáætlun skot í myrkri Bílastæðasjóður hefur ekki reikn- að út hvað þessi hækkun stöðumæla- gjalda kemur til með að skila í kass- ann. Tekjur sjóðsins af gjöldunum hafa numið um 275 milljónum króna á ári og telur Bjarki R. Kristjánsson, rekstrarstjóri Bílastæðasjóðs, ómögulegt að segja til um hvað þess- ar hækkanir muni hafa í för með sér. Þær geti jafnvel átt eftir að þýða minni tekjur þar sem búast megi við að nýting á stæðunum dragist saman fyrst í stað. „Að reyna að áætla ein- hvern tekjuauka væri algjört skot út í myrkrið,“ segir Bjarki. Hann segir málið ekki snúast um að auka tekjur Bílastæðasjóðs heldur að losa um bílastæðin. Eina leiðin til þess hafi verið að hækka gjaldið. Síð- asta breyting á gjaldinu var árið 2000 og Bjarki segir það ekki gott að láta svo langt líða á milli hækkana. Ekki hafi verið vilji til þess hjá borginni að hækka fyrr en nú. Bjarki segist jafn- framt skilja áhyggjur kaupmanna yf- ir því að missa viðskipti. Hins vegar megi reikna með aukinni umferð og greiðari aðgangi að bílastæðum í miðborginni en verið hefur. Meiri hækkun en Miðborgin okkar vildi Morgunblaðið/Árni Sæberg Laugavegurinn Ekki eru allir á eitt sáttir um hækkun bílastæðagjalda og lokun neðri hluta Laugavegarins, og áhrif þess á umferðina á svæðið. 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Færri og dýr-ari bíla-stæði eru sú leið sem borg- aryfirvöld hafa valið að fara til að styrkja miðborg- ina. Þessu til viðbótar er helstu götum lokað fyrir bíla- umferð. Hugmyndin er með öðrum orðum sú að þeim mun erfiðara sem aðgengi að versl- unum og þjónustu í miðborg- inni er, því meiri verði við- skiptin. Einn kaupmannanna við Laugaveginn, Frank Michel- sen úrsmiður, er undrandi á ákvörðunum borgaryfirvalda um miðborgina og sagði í sam- tali við Morgunblaðið: „Á hvaða plánetu lifa þessir menn? Ég get ekki ímyndað mér það að 50% hækkun bíla- stæðagjalda um leið og stæð- um fer fækkandi eigi eftir að styrkja miðbæinn.“ Frank segir að áður hafi mikil umferð verið framhjá versluninni hans á morgnana, en nú sé hún horfin, sem rekja megi til erf- iðs aðgangs bíla í miðborginni. Ákvarðanir á borð við þær að loka aðgengi að verslunum og þjónustufyrirtækjum hljóta að teljast meðal þeirra veigameiri sem hægt er að taka um hagsmuni þessara fyrirtækja. Þess vegna mætti ætla að ríkulegt samráð væri haft við fyrirtækin áður en ráðist er í breytingar. Um samráð borgaryfirvalda segir Frank: „Þeir hafa ekkert sam- ráð við okkur. Samráð í þeirra huga eru einhliða ákvarðanir og tilkynningar.“ Eflaust kannast margir við þessa gagnrýni því að hún er ekki að koma upp í fyrsta sinn. Núverandi yfirvöld í borginni ákváðu að ráðast í miklar sam- einingar skóla og hafa keyrt þær í gegn af nokkru kappi en takmarkaðri forsjá. For- eldrum og félögum þeirra hef- ur til að mynda reynst afar erfitt að ná fundum forystu- manna meirihlutans til að lýsa áhyggjum af einstökum þátt- um sameininganna og reyna að ná fram breytingum. Ítrek- að hafa komið fram kvartanir um að borgaryfirvöld neiti að eiga samráð og mörg dæmi eru til sem styðja þessar kvartanir og staðfesta rétt- mæti þeirra. En hvernig stendur á því að borgaryfirvöld ganga fram með þessum hætti? Hvers vegna kjósa þau frekar að þvinga ákvarðanir sínar upp á borgarbúa, ekki síst þá sem mestra hagsmuna eiga að gæta, en að ræða málin og reyna að ná sæmilegri sátt um viðamiklar breytingar sem snerta ríka hagsmuni? Hvað er það sem borgaryf- irvöld óttast í þessu sam- bandi? Eru rökin fyrir breyt- ingunum það veik að þau þoli ekki að vera rædd fyrir opnum tjöldum? Byggjast ákvarð- anirnar á kreddum og mein- lokum sem fáir utan borgar- stjórnarmeirihlutans myndu sætta sig við ef þær væru ræddar og útskýrðar í þaula? „Samráð í þeirra huga eru einhliða ákvarðanir og til- kynningar.“} Á hvaða plánetu? Rithöfundurinnog dýrafræð- ingurinn Matt Ridley er bjart- sýnni en gengur og gerist. Og hann er ekki bjartsýnn að ástæðulausu, bjartsýni hans er jákvæð niðurstaða rannsókna og reynslu liðinna ára. Hann hefur komist að þeirri niðurstöðu að staða mannsins fer sífellt batnandi og að fyrir því eru skynsam- lega ástæður. Ridley hefur ritað bók um þetta efni og ræddi það einn- ig á fundi Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt fyr- ir helgi. Áhugavert er og lær- dómsríkt fyrir þá sem sjá óleysanleg vandamál í hverju horni að kynnast viðhorfum Ridleys sem bendir ekki að- eins á fjölmörg dæmi um batnandi hag mannkynsins í gegnum árin og árþúsundin, heldur líka á skýr- ingarnar á þess- um batnandi hag. Ridley færir rök fyrir því að það sem hafi skilið manninn frá öðr- um dýrum – og hér kemur námsgráða í dýrafræðum sennilega til góða – sé geta mannsins til að eiga skipti á vörum og hugmyndum. Þetta hafi ýtt undir framfarir og það hversu gott maðurinn hafi það nú miðað við fyrri tíð. Helsti dragbíturinn séu miklar hömlur sem ríkis- valdið hafi sett og nefnir hann löng tímabil í sögu Kína sem dæmi. Viðhorf Matts Ridleys eru í senn hressilegt og jákvætt innleg í umræðuna – og í anda kenningarinnar dæmi um skoðanaskipti sem án efa munu hafa jákvæð áhrif á þá sem þeim kynnast. Maðurinn þarf að fá að njóta sín til að framfarir haldi áfram óáreittar} Jákvæð bjartsýni STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Nýju hliði, í formi reiðhjóls, var komið upp fyrir helgi til að loka fyrir umferð um neðri hluta Laugavegar. Til að opna hliðið þarf lykil og gleymdist að láta Slökkvilið höfuðborgarsvæðis- ins hafa slíkan lykil. Höskuldur Einarsson, deildarstjóri SHS, sendi erindi á borgaryfirvöld í síðustu viku til að minna á að þeir þyrftu að hafa greiðan að- gang að Laugaveginum fyrir slökkvi- og sjúkrabíla. Var því ekki svarað fyrr en í gær en þegar Morgunblaðið ræddi þá við Höskuld átti hann von á að fá lykla senda þann daginn. Slökkviliðið gleymdist NÝTT HLIÐ TIL AÐ LOKA Hliðið Ferðamaður bregður á leik á nýja hliðinu sem lokar Laugavegi. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.