Helgafell - 01.03.1942, Page 60

Helgafell - 01.03.1942, Page 60
46 HELGAFELL um á löngum, en að vísu nokkuð slitróttum, skáldferli. Það vill ltka svo vel til, að höfundur- inn hefur sjálfur gert sérstakar ráðstafanir til að létta lesendum sínum þetta ferðalag, með því að láta skýringar fylgja hverju kvæði og greina frá sköpunarsögu þess. En bókinni er, að því er frá er skýrt í forspjalli hennar, ætlað að vera kennslubók í skáldskap, með líkum hætti og Edda Snorra var íslenzkum skáldum það um langan aldur, og í annan stað miðast þessi út- gáfuaðferð við þá kenningu höfundarins, að ,,sérhvert IjóS er aScins stutiur þáttur í langri \eÓju atburða, og verSur aldrei sl^ilió til hlítar, nema jrásagnir af atburSinum fylgi á bók.". Er kenning þessi í formi algildrar reglu baga- lega seint fram komin, og hörmulegt til þess að vita, hversu mörg ljóðskáld, fyrir daga Þór- bergs, hafa orðið að gera sér að góðu að yrkja tiltölulega ,,ódauðleg" ljóð, án þess að geta fært sér hana í nyt. En jafnvel þótt reglan hafi margt til síns ágætis, og eigi vonandi eftir að endast mörgu kvæði til langlífis, freistast mað- ur samt til þess við lestur Eddu Þórbergs að efast um, að hún megi teljast einhlít. Lesand- anum finnst ósjálfrátt, að þau kvæði, sem hann telur máli skipta, mundu alveg eins lifa af án allra skýringa og sagnfræði, og hvorki virðist honum að önnur kvæði bókarinnar valdi skýr- ingunum né skýringarnar geti bjargað kvæðun- um, og hann telur það jafnvel litlu varða, með hverjum hætti slík kvæði eru til orðin, eða hvar bærinn hafði höfundinn á hornum sér, þegar þau voru ort. En hvað var það þá, sem höfundurinn ætlað- ist fyrir? Það er varla sanngjarnt að álykta, að hann hafi hugað bók sinni sæti meðal þess, sem venjulega er talið til bókmennta í þröngri merk- ingu. Að vísu eru til kvæði í bókinni, sem bent gætu í þessa átt, en þau mega þó fremur telj- ast stælingar en frumort ljóð. Flest eru þau til orðin fyrir bein áhrif eldri skálda, einkum Hein- es og Jónasar Hallgrímssonar, án þess þó að þau bæti nokkru við það, sem áður er vitað um Heine, Jónas eða höfundinn. — Hins vegar er bókin allt of dauf, og formin fyrir fyndni henn- ar slitnari en svo, að hún megi duga sem „skemmtilegt slúður" til hvíldarlesturs, og það hefði höfundurinn sjálfur mátt sjá. Það mun líka sönnu nær, að bókin sé aðeins einn þáttur í þeirri viðleitni höfundarins, að bjarga hugsun- um sínum og líferni frá glötun og tryggja þeim um leið þann svip og það innihald, sem hann telur æskilegt. En um ekkert af þessu verður fullyrt. Bókin segir sjálf ekkert til um tilgang sinn, fremur en aðrar þær bækur, sem ekki ná tilgangi sínum. Það má öllum vera mikið hryggðarefni, ef hæfileikar Þórbergs Þórðarsonar eiga ekki eftir að duga honum til meiri endurnýjunar í hugsun og vali viðfangsefna, en bók þessi gefur til kynna. Því enda þótt margt í hinu óbundna máli bókarinnar beri, eins og vænta mátti, stíl- fimi höfundarins trútt vitni, fer ekki hjá því, að lesandinn sakni þar þeirrar eldlegu hrifni, andagiftar og fyndni, sem lýsti af í Bréfi til Láru og sumum öðrum bókum hans. Jafnvel sjálfhygli hans er horfin öllum sannfæringar- krafti og verkar nánast sem innihaldslaust form. Það er engu líkara en höfundurinn sé í bili orðinn þreyttur á Þórbergi Þórðarsyni, þótt hug- urinn snúist enn í kringum hann af gömlum vana. T. G. Draumur og jörð Þórunn Magnúsdóttir: DRAUMUR UM LJÓSALAND I. — Víkingsútgáfan, Reykjavík 1941. 289 bls. 8vo. Verð: kr. 13,50 ób., kr. 16,50 og 18,00 innb. GuÓmundur Daníelsson frá Guttorms- haga: AF JÖRÐU ERTU KOMINN I. Eldur. — Þorsteinn M. Jónsson, Ak- ureyri. 281 bls. 8vo. Verð ób. kr. 12,00, kr. 16,00 og 20,00 innb. Tveir ungir rithöfundar, þau Þórunn Magn- úsdóttir og Guðmundur Daníelsson, hafa sent frá sér fyrra og fyrsta bindi hvort af framhalds- sögum. Skáldsaga Þórunnar, Draumur um Ljósaland, mun verða í tveim bindum, en Guð- mundar, Af jörðu ertu kpminn, í þremur, að því er sagt er, og ber þetta fyrsta bindi sérheitið Eldur. Vitanlega er hvorki rétt né faert að leggja neinn endanlegan dóm á þessi bindi af fram- haldssögum hinna ungu og mikilvirku rithöf- unda enn sem komið er. Þó er óhætt að full- yrða, að þau beri bæði vott um aukna stíltækni höfunda sinna, einkum þó bók Þórunnar. Stíll hennar getur að vísu ekki talizt persónulegur enn þá, en hann er einkar viðfelldinn, hrukku- laus og mjúkur án allrar væmni, og sama máli gegnir um orðaval. Eins og nafnið á bók hennar bendir nokkuð til, má telja Draum um Ljósaland, enn sem komið er, ,,rómantíska“ skáldsögu í þeirri merk-

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.