Helgafell - 01.01.1943, Síða 157
BÓKMENNTIR
143
ur Freysteinn Gunnarsson tekið saman og þýtt
— Frágangur allur á þessari bók er hinn falleg-
asti, og sérstaklega er prentun hennar til fyrir-
myndar, en auk þess er bókin prýdd fjölda
skemmtilegra mynda eftir frú B. Morray Wil-
liams, sem er smekkvís og menntuð listakona.
— Allar eru dæmisögur Esóps stuttar, eins og
kunnugt er, og láta ekki mikið yfir sér, en engu
að síður hafa þær staðið af sér straum margra
alda og jafnvej árþúsunda, og enn munu þær
reynast börnum og unglingum góður skemmti-
lestur. —
r. g.
BENDINGAR UM BÓKAVAL
Helgafell flytur nú og eftirleiðis lesendum sínum nokkrar bendingar um
val á bóbum, einkum erlendum. Eins og nú er háttað samgöngum, verða leið-
beiningar um bækur á erlendum málum þó að mestu miðaðar við hið álit-
legasta úr þeim útlenda bókakosti, sem fáanlegur er hér í bókaverzlunum eða
unnt er að afla án mikilla erfiðleika. Þótt umsagnir séu lítt rökstuddar sökum
rúmleysis, verða lesendur að treysta því, að Helgafell muni ekki benda þeim á
aðrar bækur í þessum bálki en ritstjórar þess mundu sjálfir heldur kjósa að
hafa en missa. Þegar ótvíræðar ástæður þykja til, mun einnig bent á nýjar
bœ\ur íslenzkar í sama skyni, en ekki fela slíkar leiðbeiningar í sér neina
dóma, beina né óbeina, um aðrar bækur, sem ekk* eru til nefndar, enda
munu skoðanir Helgafells á nýjum innlendum bókmenntum koma fram í
ritdómum þess með ljósari hætti. Nánari kynning enskra og amerískra bók-
mennta mun hefjast í næstu heftum.
ÚRVALSSÖFN. MERKAR STRÍÐSBÆKUR, SKÁLDSÖGUR
THIS IS MY BEST. Útg. Whit Burnett. 150
sýniahorn amerískra bókmennta allra tegunda,
eftir fraegustu nútímahöfunda. Höfundarnir hafa
allir ráðið efni sínu sjálfir, valið það sem sýnis-
horn hins bezta, er þeir hafa ritað, og greina
ástæður fyrir valinu. Dial Press. 1942. 1180 bls.
AMERICAN HARVEST. Úrval í lausu máli
°g bundnu eftir flesta fremstu höfunda Ameríku
20 síðustu árin. L. B. Fischer N. Y. 1942. 544 bls.
AN ANTHOLOGY OF AMERICAN POET-
RY 1639—1941. 600 ljóð eftir helztu amerisk
skáld frá þremur öldum. Skáldið Aljred Kreym-
borg valdi kvæðin. Tudor Publishing Co. 1941.
676 b[s.
READING I HAVE LIKED. Clijton Fadiman,
kunnur og snjall gagnrýnandi, ,,mesti bóka-
béus Ameríku" valdi, úr öllum hugsanlegum
bókmenntagreinum, einnig eftir erlenda höf-
unda, án allra sjónarmiða nema eigin geðþótta.
Einstætt safn og skemmtilega persónulegt. —
Merkilegur inngangur og greinargerð fyrir hverj-
um höfundi. Simson & Schuster 1942. 904 bls.
ONLY THE STARS ARE NEUTRAL eftir
Quenfin Rcynolda, fræg an blaðamann. Hann
rekur hér sögu sína frá Moskvu og Kuibysjef
veturinn 1941—42 og önnur stórfengleg styrj-
aldarævintýri. Random House. 1942. 300 bls.
ASSIGNMENT TO BERLIN eftir Harry
Flannery blaðamann, sem tók við starfi Shirers,
hins alkunna höfundar að Berlin Diary, er hann
varð að víkja úr Þýzkalandi. Þessi bók tekur því
við af Berlin Diary. Alfred A. Knopf. 1942.
439 bls.
THE LAST TIME I SAW PARIS eftir Eliot
Paul. Ritdómarar segja, að höfundur ,,reisi París
frá dauðum" í þessari bók. Random House.
421 bls.
THE SEVENTH CROSS eftir Anna Seghers
og HOSTAGES eftir Stejan Heym, ungan þýzk-
an flóttamann, eru skáldsögur, sem lýsa á ó-
venjulega áhrifamikinn hátt sigurvissu og frelsis-
trú hinna þjáðu þjóða. Little Brown og Puthan,
1942. 338 Og 332 bls.
ISLANDIA, skáldsaga eftir Austin T. Wright,
frumlegt, fjölbreytt og mikilfenglegt skáldverk,
sem merkir bókmenntadómarar virðast ekki geta
lofað nógsamlega. Farrar & Rinehart. 1012 bls.
HELGAFELLI er það sérstök ánægja að
benda lesendum sínum á þessar nýútkomnu
íslenz\u bœhur:
ÍSLAND í MYNDUM,
FAGRAR HEYRÐl EG RADDIRNAR,
SÖGUNA AF DIMMA-LIMM,
FERÐINA Á HEIMSENDA.