Helgafell - 01.01.1943, Blaðsíða 158
FRÁ RITSTJÓRNINNI
Næstu tvö hefti Helgafells (apríl- og maí-hefti) koma út saman
í einu lagi. Meðal efnis þar má vænta að verði: Ytarleg grein um
myndlistarsýninguna, er nú stendur yfir í Reykjavík, eftir HjörVarS
Árnason listfræðing, með myndum af málverkum þaðan, framhald
greinaflokks Barða GuSmundssonar, Uppruni Islenzkrar skáldmennt-
ar, grein um bókasöfnun og bókamenn, eftir Þorstein Þorsteinsson
sýslumann, grein um Hrafnkötlu, eftir dr. Björn ÞórSarson forsætis-
ráðherra, inngangur og niSurlag úr nýrri bák eftir Þórberg ÞórSarson.
Islenzki fáninn, eftir Júlíus Havsteen sýslumann og Saga um sögu, eftir
Kristmann GuSmundsson. í Umhorfum verður rætt um listamanna-
laun, stjórnarskrárbreytingar o. fl. Ritdómar verða m. a. um bækur
ungra IjóSskálda. KvœSa er von, eftir GuSmund BöSvarsson, Tómas
GuSmundsson, Nordahl Grieg og fleiri.
Helgafell mun ætla völdum IjóSum yngstu skáldanna sérstakt rúm
í sumarheftinu, og mælist til þess, að þau skáld, er vilja nota sér
það, sendi því Ijóð sín ásamt mynd og nokkrum upplýsingum um
æviatriði fyrir 15 júní n. k- Skáld, sem eiga óbirt ljóð í handriti hjá
Helgafelli, eru því beðin að taka á þolinmæðinni enn um stund, unz
séð er, hvað úr þessari fyrirætlun verður. Aðrir höfundar, sem dreg-
izt hefur að endursenda handrit, eru beðnir velvirðingar á því og
mega vænta skila innan skamms. Við viljum taka fram í þessu sam-
bandi, oð Helgafell getur þó ekk> tekiS ábyrgS á stíkum endursend-
ingum Jramvegis, og ættu höfundar, sem senda þvf handrit óum-
beðnir, ávallt aS halda eftirriti. Loks viljum við vekja athygli lesend-
anna á því, að eftirleiðis áskilur Helgafell sér rétt til að stytta bréf,
sem því berast til birtingar, fari þau fram úr einum smáletursdálki.
Heilsíðuteikningin í Listum er úr svonefndum Passiumynd-
um Albrecht Diirers. Er nú í undirbúningi hjá Helgafellsútgáfunni
vegleg útgáfa af Passíusálmum Hallgríms Péturssonar, er prýdd verð-
ur myndum úr þessum flokki. — Myndin neðan við grein Sig. GuS-
mundssonar er tréskurðarmynd eftir Aimée Smith, frá kórbyggingu
Notre Dame-kirkjunnar í París. — Grein Bjöms GuSfinnssonar var
sett í Gutenberg, þar sem hljóðritunarletur var þá ókomið í Víkings-
prent.
LEIÐRÉTTINGAR. Bls. 108, 2. d., háskólagripur, les: háskagrip-
ur. — Bls. 110. { skýringargrein undir fyrirsögninni „Gereyðing
rússneska hersins" hefur fallið niður nafn bókarinnar, sem greinin
er tekin úr: The Last Train From Berlin.
HEIMASÍMI Magnúsar Ásgeirssonar er 9270, og geta þeir, sem er-
indi eiga við ritstjórnina, snúið sér þangað.