Helgafell - 01.12.1943, Síða 32
354
HELGAFELL
En er þá einginn eðlismunur á list og skrautlist ?
Jú, náttúrustefnan ann því mjög að ímynda sér djúp staðfest milli þessa
tvenns. Ef natúralistar hefðu ekki tvo mælikvarða yrðu þeir að dæma mest-
alla list heimsins ógilda, svokallaða skrautlist afsaka þeir sem annars flokks
list, er eigi sæti á óæðra bekk. En ég veit ekki til að enn hafi tekist að fá
landamerkin viðurkend milli listar og skrautlistar, og þótt maður hugsaði
sér þau einhversstaðar mundi það síst hafa hagnýta þýðíngu til betri skilníngs
á list. Er hið geómetriska múrmálverk Beuron-múnkanna, fult heimsafneitun-
ar og guðfræði, list eða skrautlist ? Eða freskur Mexikó-jötnanna de Riviera
og Orozco ? — svo tekin séu tvö alþekt dæmi úr nútímanum, bæði um mynd-
list til veggjaskreytingar. Voru myndirnar á þilviðinum og ræfrinu í Hjarðar-
holti list eða skrautlist ? Og hvað eru freskur Michelangelos innan á hvolfi
sistínsku kapellunnar, eða myndin sem Leonardo skreytti veggina á matsal
svartmúnkanna í klaustrinu Santa Maria delle Grazie, og nefnd hefur verið
hin heilaga kvöldmáltíð ?
Mundi hitt ekki sönnu nær að skrautlistin sé upphaí og eðli allrar listar.
Halldór Kiljan Laxness
BÓKAMERI
RITHÖFUNDA-
FÉLAGS
ÍSLANDS
Rithöfundafélag jslands hefur tekið sér merki það, sem hér er sýnt, í því skyni aS fá þaS
orentað eftirleiðis á örfá (7—9) eintök nýrra bóka, sem út koma eftir félagsmenn, eftir sam-
komulagi við þá og útgefendur. Ætlazt er til, að þessi eintök verði einnig árituð af höfundunum.
Ekki er gert ráð fyrir, að merkið verði prentað á fleiri en 5—6 bækur árlega.
Rithöfundafélagið hyggst að selja bækurnar til ágóða fyrir sjóð sinn, á þann hátt, að þær
verði boðnar upp á árshátíð Bandalags íslenz\ra listamanna eða félagsins sjálfs.
Merkið hefur gert BaJdvin Björnsson gullsmiður eftir galdrastaf þeim, er hólastafur var
nefndur til forna. Hann var þeirrar náttúru, að væri hann ristur með blóði undan tungurótum,
lauk hann upp steinum, hólum og öðrum huliðsheimum.