Helgafell - 01.12.1943, Blaðsíða 68

Helgafell - 01.12.1943, Blaðsíða 68
384 HELGAFELL völdin tilkynningu um ofsóknirnar, og var þar komizt svo að orði, að Gyð- ingar hefðu æst menn gegn Þjóðverj- um og stuðlað mjög að skemmdar- verkum, svo að Þjóðverjar hefðu orð- ið að taka lil sinna ráða og koma í veg fyrir, að þeir gætu eitrað andrúms- loftið, en samtímis yrðu danskir her- menn, í haldi hjá Þjóðverjum, látnir lausir. Dönum þótti nú skörin fara að fær- ast upp í bekkinn, þegar Þjóðverjar ætluðu að múta þeim til þess að taka Gyðingaofsóknunum með þögn og þolinmæði með því að láta lausa danska hermenn, og danski yfirhers- höfðinginn mótmælti óðara. Mótmæl- um rigndi yfir þýzku yfirvöldin frá óteljandi félögum í Danmörku. Kristj- án konungur mótmælti harðlega, og sunnudaginn 3. október var lesið í öllum dönskum kirkjum hirðisbréf frá biskupum Danmerkur, þar sem meðal annars var komizt svo að orði, að það sé skylda kristinna safnaða að mót- mæla alls staðar Gyðingaofsóknum. Þjóðverjar höfðu þessi mótmæli að engu og héldu áfram að ofsækja sak- laust fólk. Þeim hafði þó brugðizt bogalistin að því leyti, að danskri lögreglu var falið að gæta Eyrar- sundsstrandarinnar, og þaðan komust mörg hundruð danskra Gyðinga yfir til Svíþjóðar, enda má segja, að Dan- ir hafi allir verið samtaka um að hjálpa flóttamönnunum eftir beztu getu, og tugir sjómanna lögðu lífið í sölurnar fyrir þessa hrjáðu landa sína. Svíar buðu Þjóðverjum að taka við dönskum Gyðingum, en því boði var ekki svarað. Sænska stjórnin mótmælti aðförunum, sænsk blöð og meira að segja finnsk fordæmdu athæfi Þjóð- verja, en ekkert stoðaði. Hatur Dana og andstyggð á þýzka nazismanum fékk útrás í sífjölgandi skemmdarverkum, einkum á Jótlandi, þar sem Þjóðverjum er mest nauðsyn, að samgöngur séu í góðu lagi, enda er svo komið, að von Hanneken hefur neyðst til þess að setja herlög. 1 stað þess að kveða niður öll spellvirki, með herlögunum 29. ágúst og Gyð- ingaofsóknunum síðar, hafa Þjóðverj- ar hellt olíu í eldinn og eiga nú enga leið framar til þess að ná sáttum og samkomulagi við Dani. Þeir hafa sjálf- ir skapað sér þau vandkvæði, og mega sjálfum sér um kenna. Eins og áður er getið er loku fyrir það skotið, að Þjóðverjar geti myndað löglega stjórn í Danmörku, af því að konungur hefur neitað að taka lausn- arbeiðni gömlu stjórnarinnar til greina og heldur fast við þá ákvörðun sína. Hins vegar er landið ekki með öllu stjórnlaust, þótt með öðrum hætti sé en dr. Werner Best mun telja æski- legt. Þegar eftir 29. ágúst var stofn- að svonefnt frelsisráð, en í því eiga sæti fulltrúar allra þeirra flokka og félaga, sem ákveðið hafa að berjast gegn Þjóðverjum, þar til Danir hafa endurheimt frelsi sitt. Ráð þetta hef- ur nefnt frjálsan Dana, sem dvelst er- lendis, til þess að vera fulltrúi sinn hjá frjálsum Dönum í Englandi og tengiliður þeirra, sem heima berjast, og hinna, sem vinna fyrir Danmörku erlendis. Það verður ekki dregið í efa, að vel verði unnið á báðum þessum vígstöðvum, og afstöðu Dana lýsa þessi orð Christmas Möllers: „Danir eiga nú um sárt að binda og oss er þungur harmur kveðinn, en samtímis fögnum vér því, að þjóð vor er kom- in í fylkingu hinna frjálsu, stríðandi þjóða, og Norðurlöndin eru miklu, miklu nær hvert öðru en þau áður voru“. ]6n Magnússon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.