Helgafell - 02.12.1943, Blaðsíða 6
388
HELGAFELL
boðið minningarsjóði Jónasar Hallgrims-
sonar. Það er samning og útgáfa vand-
aðrar og alþýðlegrar íslenzkrsar al-
fræðiorðabókar, verk, sem hlýtur að
krefjast starfskrafta margra manna í mörg
ár og kosta hundruð þúsunda. Þessu máli
hefur áður verið hreyft í Helgafelli, og enn
lítur það svo á, að hér sé um eitt hið
merkasta þjóðemis- og menningarmál vort
að ræða. Að engu dregur það úrþörfinniá
slíkri bók, þótt von kunni að vera á næstu
áratugum íslenzks ævisagnasafns og ís-
landslýsingar, en hins vegar mundi verða
hagræði að samvinnu um undirbúning þess-
ara verka. Sú skoðun á og mikinn rétt
á sér, að slíka alfræðiorðabók beri ekki
að takmarka við þjóðleg fræði, heldur
eigi hún að vera jafnframt mikilsvert
hjálpargagn til þess að temja íslenzka
hugsun og tungu við samþjóðleg viðfangs-
efni. Vonir um slikt réttlætast ekki sizt af
því, að víst má telja, að aðgengilegt rit
þessarar tegundar yrði hið vinsælasta
lestrarefni allflestra greindra unglinga, en
slíkum heyrir framtíðin til.
Eftirrit þessarar greinar Iiefur verið
sent formanni Bóksalafélagsins og verð-
lagsstjóra.
BORN BRÆÐRA-
ÞJÓÐANNA OG
ÍSLENZKUR HJÁLP-
ARHUGUR
Tillagan um heim-
boð og hjálp til
norskra og danskra
barna, í næstsíð-
asta hefti, hefur
fengið góðar undirtektir, þótt ekki hafi
enn orðið af verulegum undirbúningi og
hið gullna tækifæri jólamánaðarins þann-
ig verið látið hjá líða að sinni. Dag-
blöð höfuðstaðarins tóku hugmyndinni
vinsamlega, og er verðugt að geta þess,
að Valtýr Stefánsson, ritstj. Mgbl.,
varð fyrstur til að leggja henni liðsyrði.
Hann fann ástæðu til þess að brýna fyr-
ir mönnum að láta engan meíing um
frumkvæði í málinu draga úr skjótum
framkvæmdum. Helgafell vill taka und-
ir þau ummæli og styðja þau með þeirri
yfirlýsingu, að ritstjórum þess hefur aldr-
ei dottið í hug að ætlast til neins orðstírs né
forustuframa fyrir það eitt að koma laus-
lega orðum að hugmynd, sem án efa
hefur vakað fyrir ýmsum öðrum um sama
leyti og ef til vill áður en fitjað var upp
á henni hér í Helgafelli. Því síður telja
þeir sér misgert, þótt framkvæmdum
verði hagað með nokkuð öðrum hætti en
þar var Iagt til. Hitt skiptir öllu x aug-
um okkar þriggja, sem reifuðum málið,
að sem skjótast verði hafizt handa af
góðum liug um nauðsynlegan undirbún-
ing. í greinum okkar var engin dul á það
dregin, að við teldum aðra aðilja sjálf-
sagða til forustunnar, þótt við vildum og
viljum enn vinna málinu allt það gagn,
er við megum, sem óbreyttir liðsmenn.
Við litum þó þannig á, að okkur bæri
að fylgja greinum okkar svo langt eftir,
að við stuðluðum að því, að málinu væri
tryggð forganga. Við fengum á fund með
okkur þremur í þessu skyni fulltrúa frá
flestum blöðum í Reykjavík, þ. á. m. frá
Nýju kvennablaði, formenn Rauða-
krossins og Norræna félagsins og
herra biskupinn. Allir tóku blaðamennirn-
ir málinu vel og hétu því fyllsta stuðningi,
þegar er það væri komið á hinn fyrsta
rekspöl. Sama er að segja um formenn
R. K. í. og N. F. Þó töldu þeir, að félög
sín væru því naumast viðbúin að beita
sér fyrir slíkri hjálparstarfsemi að svo
stöddu. Mun cinkum hafa um valdið, að
Noregssöfnuninni var þá ekki enn lokið,
en það liafði lengi vcrið aðstandendum
hennar eðlilegt metnaðarmál að þoka
samskotafénu upp í eina milljón króna
áður. Niðurstaðan varð því sú, að ekki
varð úr, að formleg samtök mynduðu mál-
inu forustu að sinni, en allir voru fund-
armenn á eitt sáttir um að láta það
ekki niður falla.
Nú hefur verið tilkynnt, að Noregssöfn-
uninni verði lokið 1. febr. Þá hefur hr.
Sigurður Sigurðsson, berklayfirlækn-
ir, formaður R. K. í., látið í ljós, að hann
muni taka málið til velviljaðrar athugun-
ar að nýju. Nýtt kvennablað hefur lýst
eindregnu fylgi sínu við hugmyndina.
Má því vænta, að hinir heppilegustu að-
iljar sameinist um að bera málið fram
til sigurs.
Mikil hvatning mætti það verða í þessu
efni, að skólabörn á Akureyri hafa þeg-
ar hafizt lianda um fjársöfnun til frænd-
systkina sinna í Danmörku og Noregi.
Þá er það vert athygli og eftirbreytni,
að færeysk börn hafa safnað í sama
skyni 35 þúsundum króna, að því er blað-
inu Norsk Tidend í London segist frá _ný-
lega. M. Á.