Helgafell - 02.12.1943, Blaðsíða 53
BERTEL THORVALDSEN
435
blindni er ríkjandi gagnvart form-
bundnu samræmi, hlýtur jafnframt að
vera í eðli sínu fjandsamleg bróun
sanngildrar og fullkominnar högg-
myndalistar. 1 kirkjunni Santa María
della Vittorio í Róm getur enn að líta
marmarahópmynd, sem talin er frá-
bærust allra verka Berninis, — en
ber þó framansögðu ótvírætt vitni.
Hópmynd þessi sýnir hina frægu
spönsku nunnu, ,,heilaga“ Theresu,
helgifjálga á svip, en næsta holdlega
í sniðum, þrátt fyrir hin þungu og
fellingamörgu klausturklæði, sem
hjúpa hana frá hvirfli til ilja. Yfir
henni stendur hálfglottandi engill og
heldur á gullinni ör, sem hann miðar
á hjarta hinnar krjúpandi nunnu.
Margir dást enn að þessari högg-
mynd fyrir undursamlega sviptján-
ingu, rétt eins og hin fíngerðu blæ-
brigði andlitsfallsins væru raunveru-
legt aðal og takmark allrar höggmynda-
listar. — Sannleikurinn er sá, að ein-
mitt þessi fjálglegi höggmyndastíll á
aðeins gervilistarnafn skilið, hvað sem
allri leikni og tækni líður. Undir lok
18. aldar voru þó uppi í Frakklandi,
Ítalíu og Þýzkalandi rithöfundar og
fornfræðingar, sem bentu samtíðar-
mönnum sínum á hinn sanna tilgang
og markmið höggmyndalistarinnar, en
enn sem komið var hafði samt ekki
um langt skeið bólað á nokkrum lista-
manni innan Evrópu, sem gæddur var
í senn listgáfu og sköpunarorku til
þess að meitla í marmara hinar göf-
ugu hugsjónir fornaldarinnar og end-
urreisa höggmyndarlistina úr öskustó
niðurlægingarinnar.
Einmitt á þessu aðfaraskeiði hins
nýja tíma, á fyrsta tugi 19. aldar, kom
ungur danskur listnemi til Borgarinnar
eilífu til þess að kynnast gömlu meist-
urum. Hann eyddi þar mörgum ár-
um í námunda við fjársjóðu listar-
innar án sýnilegs árangurs, var að lok-
um að því kominn að missa móðinn
og orðinn sjálfum sér ráðgáta. Dval-
artími hans í Róm var senn úti, far-
arefnin þrotin, og fyrir honum lá ekki
nema annað af tvennu : að ljúka miklu
listaverki eða hverfa hið bráðasta
heim til Kaupmannahafnar. Við svo
þjakandi aðstæður, andlega sem efna-
lega, mótaði Thorvaldsen styttuna af
Jason. Slíkt er sönnun þess, að þar