Kjarninn - 26.06.2014, Síða 30

Kjarninn - 26.06.2014, Síða 30
23/23 efnahagsmáL ósammála gagnrýni Alþjóðasamtök starfsfólks í almannaþjónustu (PSI) hafa gagnrýnt TISA-viðræðurnar harðlega. Í skýrslu sem þau gáfu út vegna þeirra í lok apríl síðastliðins segir meðal annars að viðræðurnar séu vísvitandi tilraun til að auka hagnað stærstu og ríkustu fyrirtækja og þjóðríkja heims á kostnað þeirra sem verst hafa það. Verði samkomulagið að veruleika muni það auka ójöfnuð gríðarlega. Utanríkisráðuneytið deilir ekki þessu mati heldur segir sjónarmiðið sýna fram á mikilvægi þess að eiga breitt samráð um framgang málsins, en ráðuneytið hefur staðið fyrir upplýsingafundum með atvinnulífinu og hagsmunaaðilum um ferlið og stöðu viðræðna. „Hér hefur hópur ríkja (50 þátttökuríki í dag) tekið sig saman um að reyna á að liðka fyrir viðskiptum sín á milli á sviði þjónustu og draga úr hindrunum í slíkum viðskiptum. Hvert og eitt ríki ákveður hvaða markaðsaðgang það veitir byggt á gildandi innlendri löggjöf.“ Sigldu í strand Ástæða þess að ráðist var í TISA-viðræðurnar var sú að sambærilegar viðræður á vettvangi Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar (WTO) sigldu í strand. Hér sést Roberto Azevêdo, framkvæmdastjóri WTO, ásamt Ban Ki-moon, aðal ritara SÞ, Christine La garde, yfirmanni AGS og Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Mynd: AFP

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.