Kjarninn - 26.06.2014, Page 54
02/06 áLit
tíma og tók síðan prófin með glans. Musk er nefnilega þeim
hæfilæka gæddur að hann gleymir nánast engu. Á þessum
tíma hugleiddi hann stundum hvað myndi hafa meiriháttar
jákvæð áhrif fyrir mannkynið. Niðurstaðan var internetið,
sjálfbær orka og að byggja aðrar plánetur. Gervigreind og
endurritun DNA voru tveir aðrir hlutir sem hann vonaði að
myndu einnig hafa jákvæð áhrif.
Árið 1995, þegar Musk var við það að hefja nám við
Stanford-háskóla, langaði hann að taka þátt í uppbyggingu
internetsins. Hann bað því um leyfi til að snúa aftur til náms
ef fyrirtækið hans færi á hausinn. Því næst fékk hann Kimbal
bróður sinn með sér í lið. Þeir leigðu sér skrifstofu þar sem
þeir unnu og sváfu til að spara peninga
og fóru í sturtu í ræktinni. Í upphafi voru
einungis til peningar fyrir einni tölvu og
á daginn hýsti hún síðuna en á nóttunni
notaði Elon hana til að forrita. Fyrirtækið
hét Zip2, en það gerði m.a. samninga við
Chicago Tribune og New York Times og
kom þeim á kortið. Árið 1999 keypti Compaq Zip2 á um 35
milljarða króna og varð það í framhaldinu hluti af AltaVista.
Næst stofnaði Musk x.com sem síðan sameinaðist PayPal og
eBay keypti árið 2002 á 170 milljarða. Hlutur hans af þeirri
sölu var um 18 milljarðar.
Hér hefði margur sest í helgan stein og var Elon spurður
af hverju hann keypti sér ekki eyju og drykki kokkteila á
ströndinni það sem eftir væri. Svarið var: „Fyrir mig væru
það kvalir, skelfilegt líf.“
Eftir söluna á PayPal kíkti Musk á heimasíðu NASA til
þess að forvitnast um hvenær stæði til að fara mannaðar
ferðir til Mars. Þar var ekkert að finna um slíkt og eftir
frekari eftirgrennslan fékk hann það staðfest að engin slík
plön væru til. Það var þá sem hann ákvað að setja um 11,5
milljarða í að stofna SpaceX. Markmið SpaceX er að koma á
fót nýlendu á Mars, þúsunda eða tugþúsunda manna. Slíkt
myndi verða til þess að mannkynið myndi þróa tæknina til
geimferðalaga áfram og tryggja þannig framgang mannkyns
„Í upphafi voru
einungis til
peningar fyrir
einni tölvu.“