Kjarninn - 17.07.2014, Page 15
05/06 Efnahagsmál
argentína
En Elliott-sjóðurinn er fyrst og fremst þekktur fyrir aðfarir
sínar í Argentínu. Landið gaf út ýmiss konar skuldabréf í
aðdraganda þess að það fór í greiðsluþrot árið 2002. Til að
auðvelda sölu þeirra bréfa var meðal annars samið um að
ágreiningsmál sem upp kæmu ætti að leysa fyrir dómstóli í
New York.
Eftir langar viðræður við kröfuhafa eftir greiðsluþrotið
tókst að ná samkomulagi við 92 prósent þeirra, sem gerði ráð
fyrir að Argentína myndi greiða rúmlega 30 prósent krafna
til baka. Elliott, sem átti argentínsk skuldabréf að nafnvirði
832 milljónir dala í gegnum dótturfélagið NML Capital, neit-
aði hins vegar að kvitta upp á samkomulagið og fór með það
fyrir dómstóla. Talið er að Elliott hafi borgað um sex prósent
af nafnvirði bréfanna fyrir þau, tæplega 49 milljónir dala.
Þess í stað stefndi sjóðurinn landinu fyrir dómstóla í
Bandaríkjunum og reyndi samhliða, stundum með góðum
árangri, að kyrrsetja eignir Argentínu víðs vegar um heim-
inn. Á meðal þess sem sjóðnum tókst að fá kyrrsett var skipið
Libertad, sem þá var í Gana í Afríku. Þessi barátta hefur
staðið yfir í rúman áratug.
Bandarískur undirdómstóll úrskurðaði fyrir nokkru að
Argentína ætti að greiða NML skuldabréfin að fullu. Það
paul elliott singer
Eigandi Elliott Management
vogunarsjóðsins þykir harður í
horn að taka. Sjóðurinn hefur
gert sig gildandi í Argentínu,
þar sem umsvif hans hafa
vakið athygli.