Kjarninn - 17.07.2014, Blaðsíða 63

Kjarninn - 17.07.2014, Blaðsíða 63
07/09 áliT staðfest að lúpína hörfar úr landi fyrir öðrum gróðri þegar hún hefur búið til niturríkan jarðveg sem dugar til dæmis birki til vaxtar. Mikið er gert úr því að skógarkerfill taki sums staðar við af lúpínu en ekki er síður algengt að blágresi, brennisóley, sigurskúfur og hvönn geri það, tegundir sem kallaðar eru alíslenskar. Og ekki er heldur sjaldgæft að finna reynivið, víði og birki í lúpínubreiðum. Birki Bæjarstaða- skógar hefur nú breitt sig út þangað sem margir óttuðust að lúpínan hefði tekið völdin. Þegar land er friðað fyrir beit vex ekki upp hinn snögg- bitni mela- og móagróður sem mörgum finnst vera íslenskt gróðurfar heldur verður landið smám saman skógi vaxið með hávöxnum jurtum í skógarbotninum. Þetta á við víðast hvar á láglendi og gerist hraðar ef „stórkarlalegar“ aðferðir, svo sem lúpínusáning eða gróðursetning stórvaxinna trjáa, eru notaðar, hægar ef stólað er á sjálfsáningu. Vilji menn viðhalda mela- og móagróðri þarf að viðhalda sauðfjárbeit. Óvíst er að beit fari minnkandi á næstu árum og ekki eru horfur á að skipulagi beitar verði breytt þannig að betur sé farið með landið. Skógar, lúpínubreiður og annar „stórkarlalegur“ gróður verður því áfram takmarkaður við svæði sem sérstaklega eru friðuð fyrir beit og þau verða takmörkuð umfangs. Ótti við að melar og móar hverfi er því ástæðulaus. Í Danmörku er einum manni sérstaklega borgað fyrir að vera með fé til að viðhalda síðasta lyngmóanum á Jótlandi, að því er virðist svo fólk geti séð hversu rýrar jósku heiðarnar voru einu sinni. Annars myndi fólk ekki trúa því. Því miður er langt í að svo verði hér. maður og náttúra Náttúra Íslands er að langmestu leyti mörkuð búsetu mannsins hér í 1.100 ár. Meira að segja jöklarnir minnka þótt það sé mannkyni öllu að kenna, ekki Íslendingum einum. Markmið nytjaskógræktar eru margvísleg, ekki einungis að binda kolefni eða græða land. Markmiðið er ekki síst að skapa verðmæti. Þessi verðmæti sjáum við nú þegar í sölu grisjunar viðar til Elkem á Grundartanga, sem dregur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.