Morgunblaðið - 14.09.2012, Side 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Hlutafé Latabæjar hefur verið auk-
ið um 912 milljónir króna. Pen-
ingana á að nýta til að framleiða
nýja sjónvarpsþætti. Tökur á þátt-
unum eru hafnar og stefnt er að því
að þeim ljúki eftir tvær vikur, en þá
tekur eftirvinnsla við. Þetta er sam-
kvæmt áætlun sem lagt var upp
með þegar bandaríska fyrirtækið
Turner Broadcasting keypti fyrir-
tækið fyrir um ári, samkvæmt upp-
lýsingum frá fjármálastjóra fyrir-
tækisins. Þættirnir eru teknir upp á
Íslandi.
Turner Broadcasting á sjónvarps-
stöðvar eins og CNN og Cartoon
Network. Hlutafé dótturfélags Tur-
ner, Turner Broadcasting System
Iceland, var aukið, samkvæmt til-
kynningu til Fyrirtækjaskrár.
Áttu 40% hlut við söluna
Endurskipuleggja þurfti fjármál
Latabæjar eftir bankahrun. Við
endurskipulagningu eignuðust
kröfuhafar 60% hlutafjár í félaginu.
Magnús Scheving, stofnandi félags-
ins, og eiginkona hans Ragnheiður
Melsteð áttu um 40% hlut, að því er
fram kom í frétt á Vísir.is, þegar
salan var tilkynnt. Það voru því
þessir hluthafar sem seldu bréf sín
til Turner. Fram hefur komið í fjöl-
miðlum að fjárfesting Turner nemi
um 2,5 milljörðum króna. Magnús
heldur enn í stjórntaumana þrátt
fyrir að hafa selt fyrirtækið. Hann
er forstjóri, leikstýrir þáttunum,
skrifar handritið og leikur eitt af að-
alhlutverkum þáttanna, Íþróttaálf-
inn.
Latibær hefur verið sýndur í 170
löndum og nær til barna á 500 millj-
ón heimilum. Fyrirtækið er með um
300 virka samninga á hverjum tíma,
bæði við sjónvarpsstöðvar og margs
konar framleiðendur sem hafa gert
samning um að nýta vörumerkið, að
því er fram kom í Morgunblaðinu í
maí.
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Prímusmótorinn Magnús Scheving
er allt í öllu í Latabæ.
Hlutafé aukið
um 912 milljónir
Nýtt til að framleiða Latabæjarþætti
Skápar
Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Skólaskápar
Munaskápar
Sundstaðaskápar
Vinnustaðaskápar
Starfsmannaskápar
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Steikarhlaðborð
Kaffihlaðborð
Tertu og tapas borð
Pinnamatur
Smáréttaborð
Kalt borð / kjöt
Kalt borð / fiskur
o.fl. ofl.
Frekari upplýsingar á veislulist.is
Bjóðum einnig upp á veislusal til leigu
Hafðu samband og fáðu tilboð í veitingarnar þínar
Veitingaþjónusta í 35 ár
Framúrskarandi
matreiðsla og
góð þjónusta
GÓÐ VEISLA LIFIR LENGI