Morgunblaðið - 14.09.2012, Page 23

Morgunblaðið - 14.09.2012, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012 Flutningur Menn hreyfa ekki við óþekkta embættismanninum með handaflinu einu saman, en þá kemur borinn í góðar þarfir og nú er styttan ekki lengur við Jörundarstíg í bakgarði Hótel Borgar heldur við Iðnó. Styrmir Kári Á dögunum átti ég samtal við blaðamann Morgunblaðsins um atvinnumál í Reykja- vík þar sem ég orðaði það sem svo að „við hefðum ekki náð að skapa nógu mörg ný störf í borginni“. Í samtalinu gerði ég þau mistök að gleyma því að blaðamaðurinn væri að tala við mig sem borgarfulltrúa meirihlutans í borginni og hann skildi orð mín sem svo að ég ætti við að atvinnu- átök sem borgin hefur staðið fyrir hefðu ekki skilað viðunandi árangri. Það varð því að frétt að ég hefði viðrað þessa skoðun og leiðarahöf- undur blaðsins vitnaði síðan til þeirrar fréttar til þess að styðja þá skoðun sína að ríkisstjórnin og meirihluti Besta Flokksins og Sam- fylkingarinnar í Reykjavík væru ekki að standa sig í atvinnumálum. Ég vil taka það skýrt fram að þessi skilningur endurspeglar ekki skoðun mína. Atvinnuátaksverkefni hafa skilað prýðilegum árangri í Reykjavík en auðvitað má alltaf gera betur. Þegar ég notaði hug- takið „við“ var ég að hugsa um okkur öll sem samfélag en ekki bara meirihlutann eða einu sinni bara Reykjavík. Vissulega hefur at- vinnuleysi minnkað talsvert í Reykjavík og atvinnuátaksverkefni hafa hjálpað mörgum aftur inn á vinnumarkaðinn. Samt eru enn margir atvinnulausir og ískyggilega margir sem glíma við langtíma- atvinnuleysi. Í samtalinu vildi ég, og vil enn, vara við því að réttur til atvinnu- leysisbóta verði ekki framlengdur eins og hann var á síðasta ári. Sá sem missir bótarétt er ekki lengur virkur atvinnuleitandi og eitt af fáum úrræðum í boði er fjárhags- aðstoð sveitarfélaga. Fjárhags- aðstoð er neyðarúrræði og þar skortir leiðir til að hjálpa atvinnu- leitendum að komast aftur til vinnu. Auk þess hafa sveitarfélögin í landinu séð framlög til fjárhags- aðstoðar margfaldast ma. vegna langtíma-atvinnuleysis og þau út- gjöld þýða minni framlög til ann- arra verkefna og velferðaþjónustu. Haustið 2008 hrundi fleira á Ís- landi en bankarnir. Traust milli manna og stofnana hrundi ekkert síður. Traust til stjórnvalda og at- vinnulífs hrundi sem og traust milli atvinnu- lífs og stjórnvalda. Þegar traust hrynur er nauðsynlegt að allir leggist á árarnar til að endurvinna það. Það er meira en að segja það að endurvekja traust. Því miður er eins og reiðin og vonbrigðin geri það að verkum að okkur sem sam- félagi er orðið tamt að leita frekar að sökudólgum og ala á tortryggni til „hins liðsins“ en að leita sam- stöðu. Það þykir mér miður. Mér varð það á að hugsa og tala út frá heildinni frekar en bara fyrir hönd minna manna. Það olli mis- skilningi sem ég harma því sá sem starfar í stjórnmálum á að tala skýrt. Við Íslendingar erum lítil þjóð. Þótt við kunnum ágætlega að munnhöggvast og standa fast á skoðunum okkar, þá sést við það strax og ólíkir hópar hittast t.d. í sundlaugunum eða í ferming- arveislum, að við erum í grunninn ósköp lík. Ég fékk bragðgóðan Café Latte á Húsavík um daginn og súrt slátur í 101 daginn eftir. Það er fleira sem sameinar okkur en sundrar. Í grunninn deilum við að mestu leyti sýn og markmiðum þó við deilum kannski um leiðir. Þessu þurfum við að halda til haga, öll sem ein. Það að auka atvinnu og rétta þjóðfélag við eftir hrun er ekki af- markað verkefni stjórnvalda, eða atvinnulífsins, eða stóriðjunnar, stjórnmálaflokkanna eða makríls- ins. Slíkt átak þarf að vera sameig- inlegt verkefni og þar þurfa allir að taka þátt. Það á ekkert að vera svo erfitt enda held ég að okkur þyki innst inni vænt um hvert annað. Með ástarkveðju og von um betri tíð. Eftir Óttar Ólaf Proppé » Það olli misskilningi sem ég harma því sá sem starfar í stjórn- málum á að tala skýrt. Óttarr Ólafur Proppé Höfundur er borgarfulltrúi. Ástarkveðja til okkar Undirritaður hefur starfað að íslenskum flugmálum undanfarna rúma hálfa öld, þar af 18 ár sem fram- kvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn Ís- lands og 22 ár sem framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum. Í lok síð- ara tímabilsins er mér m.a. minnisstætt sím- tal frá þáverandi borgarfulltrúa R- lista, en nú alþingismanni Samfylk- ingar, sem spurði af hverju þyrfti endilega þrjár flugbrautir í Reykja- vík, þegar ein virtist duga ágætlega á Akureyri! Ég reyndi að útskýra að ástæða þessa væri svonefnd „vindrós“ Reykjavíkurflugvallar, en vindrós er grafísk útfærsla á lang- tíma-mælingum á vindhraða úr hverri stefnu, og gildir fyrir tiltek- inn stað. Alþjóðlegar reglur um hönnun og gerð flugvallar fyrir at- vinnuflug gera lágmarkskröfu um 95% nýtingu hans með hliðsjón af vindi, og miðað við tilgreind hámörk þess hliðarvinds, sem flugvélar þola við örugg flugtök og lendingar. Fyrir liggja mjög ít- arlegar upplýsingar um vindmælingar á Reykjavíkurflugvelli. Vindrós hans stað- festir, að til þess að umræddri 95% lág- marksnýtingu verði náð, þurfa þar í reynd að vera þrjár flug- brautir. Í þessu samhengi þarf að hafa í huga, að leyfilegur hliðarvindur fyrir örugga lendingu eða flugtak er háður mörgum þátt- um, m.a. mældum hemlunarskil- yrðum á flugbrautum, og er því oft mun minni að vetrarlagi, þegar úr- koma eða hálka á flugbrautum veld- ur lakari hemlun. Einnig þarf að taka tillit til þess að eðlilegt er að gera hærri kröfur um nýtingarhlut- fall þegar um er að ræða flugvöll, sem er miðpunktur allra áætl- unarleiða innanlands. Það, að Ak- ureyri kemst þokkalega af með að- eins eina flugbraut, ræðst auðvitað líka af vindrós þess staðar, en hún mótast að miklu leyti af sjálfum Eyjafirðinum. Sama gildir um aðra hérlenda flugvelli í dölum eða fjörð- um. Núgildandi aðalskipulag Reykja- víkur 2001-2024 er frá yfirráðatíma R-listans í borginni, sem taldi að gera ætti nýjan flugvöll í eða við borgina. Þar var gert ráð fyrir að Reykjavíkurflugvelli yrði lokað í tveimur áföngum. Árið 2016 yrði norður/suður flugbrautinni lokað, og síðan flugvellinum öllum árið 2024. Af hálfu þáverandi forsvars- manna flugsamgangna hafði ítrekað verið bent á, bæði munnlega og skriflega, að Reykjavíkurflugvöllur með eina flugbraut væri gjör- samlega ónothæfur fyrir reglubund- ið áætlunarflug. Það myndi því sjálfkrafa leggjast af um leið og norður/suður flugbrautinni yrði lok- að árið 2016. Aðalskipulagið var síð- an staðfest af þáverandi umhverf- isráðherra með þeim fyrirvara að „uppbygging í Vatnsmýri og tíma- setning hennar er háð flutningi á flugstarfsemi af svæðinu“, og gildir sá fyrirvari að sjálfsögðu enn. Sam- fylkingin, og áður Alþýðuflokk- urinn, dreifðu gjarnan rósum í að- draganda kosninga. Þar innanbúðar virðist hins vegar enn vera tak- markaður skilningur á þýðingu vindrósar, og slíkt skilningsleysi hefur bersýnilega gengið í erfðir til núverandi borgarfulltrúa flokksins. Í viðtali við Hjálmar Sveinsson, varaformann skipulagsráðs Reykja- víkurborgar, sem birt var í Morg- unblaðinu 8. sept., staðfestir hann að „ekki standi annað til en að tíma- setningar um lokun norður/suður flugbrautar Reykjavíkurflugvallar árið 2016 standi“. Einnig er þar að finna eftirfarandi heimspekikorn: „Ég minni á að flugvélar sem lenda í Reykjavík eru að lenda við erfiðar aðstæður t.d. á Ísafirði og Græn- landi. Því gætu þær eins lent áfram á austur/vesturbrautinni þar sem aðstæður eru mun betri en á áð- urnefndum stöðum,“ segir Hjálmar og bætir við að þróunin sé sú að innanlandsflug fari sífellt minnk- andi. Að lokum er haft eftir vara- formanninum „að hann líti svo á að framtíð Reykjavíkurflugvallar sé í höndum borgarinnar“. Varðandi meinta minnkun innan- landsflugs, mætti einfaldlega benda Hjálmari á vefsíðu Isavia ohf., en þar kemur fram að árið 2011 hafi verið skráðir samtals 781.357 innan- landsfarþegar um íslenska áætl- unarflugvelli, og hafi þeim fjölgað um 5,8% frá fyrra ári. Samtals 384.232 voru þá skráðir á Reykja- víkurflugvelli, og hafði fjölgað um 6,8%. Að lokum skal það rækilega áréttað að framtíð Reykjavík- urflugvallar er ekki aðeins „í hönd- um borgarinnar“, þ.e. 15 kjörinna borgarfulltrúa. Að því máli koma ekki síður hlutaðeigandi ráðuneyti, fyrst og fremst innanríkisráðuneyti og velferðarráðuneyti, Alþingi, og að sjálfsögðu öll þjóðin, – a.m.k. svo lengi sem Reykjavík er falið að gegna hlutverki höfuðborgar Ís- lands. Í því hlutverki felst m.a. ein- dregin kvöð um nútímalegar, hag- kvæmar og öruggar samgöngur. Af fréttum liðinnar viku að dæma virð- ist núverandi pólitísk forysta telja að þar skuli nú helst tefla fram nið- urgreiddum strætisvagnaferðum með standandi farþega. Eftir Leif Magnússon » Samfylkingin, og áð- ur Alþýðuflokk- urinn, dreifðu gjarnan rósum í aðdraganda kosninga. Þar virðist enn vera takmarkaður skilningur á þýðingu vindrósar. Leifur Magnússon Höfundur er verkfræðingur. Hliðarvindur í borgarstjórn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.