Morgunblaðið - 14.09.2012, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
Valgarður Lyngdal Jónsson, kennari við Grundarskóla á Akra-nesi, á von á kræsingum í morgunmat í dag, í tilefni af 40 áraafmælisdeginum. „Skonsur eru alltaf líklegar með smjöri og
osti og heimagerðri bláberjasultu sem toppar áleggið,“ segir Val-
garður. „Það er hefð hjá okkur í fjölskyldunni að dekrað er við af-
mælisbarnið í morgunverði og aftur í kvöldverði. Við förum út að
borða eða eldum eitthvað gott heima.“
Kona Valgarðs, Íris G. Sigurðardóttir, varð fertug fyrir hálfum
mánuði og ákváðu þau að halda sameiginlega upp á afmælið mitt á
milli. Settu þau upp veislutjald á bílastæðinu heima hjá sér og veittu
þar gestum sínum og skemmtu með tónlist.
Valgarður segist vera sveitamaður, alinn upp á Eystra-Miðfelli í
Hvalfjarðarsveit, og matarsmekkurinn ræðst ef til vill af því. Að
minnsta kosti er lambasteik efst á óskalistanum, ef farið verður út
að borða en lambahryggur ef eldað verður heima.
Valgarður er þekkt sjónvarpsandlit frá því hann hóf þátttöku í
spurningakeppni Sjónvarpsins, Útsvari. „Þetta er mjög skemmti-
legt. Stjórnendunum hefur tekist mjög vel til við að búa til spurn-
ingaþátt þar sem skemmtun og léttur andi er aðalatriðið.“ Hann við-
urkennir þó að það geti tekið allt upp undir viku að jafna sig eftir
tap í spennandi keppni. Reynir, bróðir Valgarðs, er hættur í liðinu
og í vetur svarar Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur spurning-
unum með þeim Þorkeli Steinssyni. helgi@mbl.is
Valgarður Lyngdal Jónsson fertugur
Skonsur og lamba-
kjöt á matseðlinum
Fjölskylda Valgarður Lyngdal, Hrafnkell Váli, Jón Hjörvar, Hlín
Guðný og Íris í lopapeysum sem Íris prjónaði á fjölskylduna.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Sigurður Anton
Hjalti Þorsteins-
son, skógarbóndi
á Melum í Hjalta-
dal, verður átt-
ræður mánudag-
inn 17. september
næstkomandi.
Sigurður verður heima sunnudaginn
16. september og býður gestum og
gangandi í bæinn.
Árnað heilla
80 ára
Reykjavík Borgþór Smári fæddist 10.
nóvember kl. 23.52. Hann vó 4.225 g
og var 54 cm langur. Foreldrar hans
eru Agnes Margrét Tómasdóttir og
Rúnar Ingi Sigurðsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Margrét Fjóla fæddist 18.
febrúar kl. 22.18. Hún vó 3.740 g og
var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru
Björg Pétursdóttir og Erlingur Pálma-
son.
J
ón Guðbjörn fæddist í
Litlu-Ávík í Trékyllisvík
og ólst þar upp við öll al-
menn sveitastörf og trillu-
útgerð föður síns. Fjöl-
skyldan var með mjólkurkýr til
heimilisnota og um 150 ær, auk
trilluútgerðar, einkum á grásleppu.
Þá hafa verið umtalsverð rekahlunn-
indi í Ávík um aldaraðir.
Jón Guðbjörn var í Barnaskól-
anum á Finnbogastöðum.
Hann flutti suður 1969, fór þá á
vertíð í Grindavík og var vélgæslu-
maður við Hraðfrystihús Þórkötlu-
staða til 1976. Hann var síðan með
eigin leigubifreið á BSR á árunum
1976-95.
Jón Guðbjörn flutti aftur norður í
Trékyllisvík 1995, varð þar veð-
urathugunarmaður 1995 og síðan
vitavörður við Gjögurvita skömmu
síðar og hefur gegnt þeim störfum
síðan. Auk þess er hann póstur í Ár-
Jón Guðbjörn Guðjónsson vitavörður - 60 ára
Ljósmynd/Mats Wibe Lund
Falleg sveit Mynd tekin í Trékyllisvík, Bæjarvík og Ávík fjær en Reykjaneshyrna gnæfir í baksýn.
„Bara aumingjaskapur
að láta sér leiðast“
Hlunnindi Rekaviður dreginn á land með dráttarvél í Ávík.
12-36 mánaða binditími
Engin útborgun
Ábyrgðar- og kaskótrygging
Bifreiðagjöld
20.000 km á ári
Sumar- og vetrardekk
Þjónustuskoðanir og smáviðhald
Leigð´ann
Eigð´ann
Nýlegir bílar
Allir í toppástandi
Fara í gegnum gæðaskoðun AVIS
Þriggja daga reynsluakstur
www.avisbilar.is
S. 5914000
... og krækja sér í bíl á frábæru verði!
til þess að fara inn á avisbilar.is
11ástæður
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem
hefur hafið göngu sína í Morgun-
blaðinu. Þar er meðal annars sagt
frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæð-
ingum eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón