Morgunblaðið - 14.09.2012, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
Frystiklefinn, litla atvinnuleikhúsið
á Rifi á Snæfellsnesi, sýnir sýn-
inguna Trúðleik eftir Hallgrím H.
Helgason í Gaflaraleikhúsinu í
Hafnarfirði í september. Aðeins
verða nokkrar sýningar í höf-
uðborginni, en sú fyrsta er á morg-
un kl. 14.
Með hlutverk trúðanna Skúla og
Spæla fara Benedikt Karl Gröndal
og Kári Viðarsson, en leikstjórn er í
höndum Halldórs Gylfasonar.
Allar nánari upplýsingar og
miðasala er á gaflaraleikhusid.is og
midi.is.
Trúðleikur
í Gaflara-
leikhúsinu
Trúðar Benedikt Karl og Kári
í hlutverkum Skúla og Spæla.
Jarðsamband nefnist málverkasýn-
ing Aðalheiðar Valgeirsdóttur sem
opnuð verður á morgun í Mjólk-
urbúðinni í Listagilinu á Akureyri.
„Málverkin vann Aðalheiður á
vinnustofu sinni í Biskupstungum. Í
nálægð við náttúruna og sí-
breytilega ásýnd hennar allan árs-
ins hring vakna spurningar um
tengsl manns og náttúru. Maður og
jörð eru samofin og mynda þannig
jarðsamband sem miðlar verkinu.
Maðurinn sem áhorfandi og hluti af
heild er upphafspunktur upplifunar
sem hverfist um hann,“ segir m.a. í
tilkynningu. Þess má geta að verkin
eru unnin í framhaldi af sýningu
sem Aðalheiður hélt í sal Íslenskrar
grafíkur í Reykjavík sl. vor og
nefndist Leitin að óskasteininum.
Jarðsamband
í Mjólkur-
búðinni
Sýnir Aðalheiður Valgeirsdóttir.
Boðið verður upp á sýning-
arstjóraspjall á sýningunni
Nautn og notagildi, myndlist
og hönnun á Íslandi í Lista-
safni Árnesinga nk. sunnudag
kl. 15. Leiðsögnin er í höndum
Elísabetar V. Ingvarsdóttur,
en hún er sýningarstjóri ásamt
Önnu Jóa. Elísabet mun leiða
gesti um sýninguna og svara
þeim spurningum sem vakna.
„Á sýningunni er efnt til
samræðu verka eftir á annað hundrað höfunda í
þeim tilgangi að kanna snertifleti milli myndlistar
og hönnunar á Íslandi,“ segir í tilkynningu. Sýn-
ingunni lýkur 30. september, en opið er daglega
milli kl. 12-18.
Myndlist
Leiðsögn um
Nautn og notagildi
Elísabet V.
Ingvarsdóttir
Myndlistarsýningin Ljós-
draugar verður opnuð á morg-
un kl. 14 í Höggmyndagarði
Myndhöggvarafélagsins í
Reykjavík á Nýlendugötu 17A.
„Eygló Harðardóttir myndlist-
arkona hefur málað í garðinum
undanfarnar vikur. Verkið
Ljósdraugar er litaskrásetning
sem endurspeglar og endur-
speglast í umhverfinu. Heiti
verksins vísar til huglægrar
upplifunar á litum og áhrifum sem litir geta fram-
kallað við vissar aðstæður,“ segir m.a. í tilkynningu.
Þar kemur einnig fram að Eygló muni bæta við og
breyta verkinu á sýningartímanum en sýningin
stendur til 15. apríl. Garðurinn er alltaf opinn.
Myndlist
Ljósdraugar í
Höggmyndagarði
Eygló
Harðardóttir
Nokkrir af gullmolum ís-
lenskrar dægurlagasögu verða
fluttir á tónleikum í Salnum
annað kvöl kl. 20.30. Um söng-
inn sjá Erla Dóra Vogler og
Bjarni Freyr Ágústsson, en
hljómsveitina skipa þeir Jón
Hilmar Kárason á gítar, Daníel
Arason á píanó, Þorlákur Ægir
Ágústsson á bassa og Marías
Ben Kristjánsson á trommur.
„Tónlist frá 5., 6. og 7. ára-
tug síðustu aldar verður leikin og tíðarandinn
fangaður með stæl. Flutt verða bæði þekktustu
lög þess tíma sem og lög sem ekki hafa fengið að
hljóma eins mikið og þau eiga skilið,“ segir m.a. í
tilkynningu.
Tónlist
Dægurlagaperlur
fluttar í Salnum
Erla Dóra
Vogler
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Brotabrot úr afrekssögu óeirða á Ís-
landi: Fyrsti hluti nefnist sýning
Unnars Arnar J. Auðarsonar sem
opnuð verður í Flóru í Hafnarstræt-
inu á Akureyri á morgun kl. 14.
„Í þessum fyrsta hluta verksins
fókusera ég á óeirðirnar á Austur-
velli sem urðu 30. mars 1949, þegar
Alþingi sam-
þykkti þings-
ályktunartillögu
um inngöngu Ís-
lands í Atlants-
hafsbandalagið,“
segir Unnar og
tekur fram að sér
finnist sérlega
áhugavert að
skoða orðræðuna
hérlendis í kring-
um mótmæli og óeirðir. „Mér finnst
forvitnilegt að skoða hvernig sumir
kjósa að skrifa ákveðna atburði út úr
sögunni meðan aðrir skrifa þá inn í
söguna. Þannig eru gæsalappir
óspart notaðar sem aðferðafræði og
talað um „svokölluð“ mótmæli eða
byltingu.“
Þurfum á óeirðum að halda
Aðspurður segist Unnar gera ráð
fyrir að verk hans verði þegar upp
verði staðið í þremur til fjórum hlut-
um. „Ég tel að óeirðir hafi verið stór
hluti af íslensku samfélagi í mjög
langan tíma. Stundum er litið á
óeirðir sem jákvæðan hlut, t.d. þeg-
ar verið er að berjast fyrir sjálfstæði
og andstaðan er gegn valdhöfum í
öðru landi árið 1912. Stundum er það
talað niður, t.d. þegar það snýr að
ríkjandi íslenskum valdhöfum árið
2008,“ segir Unnar og tekur fram að
hann kjósi að tala um óeirðir frekar
en mótmæli þar sem óeirðir vísi til
ástands en ekki einangraðs atburð-
ar. „Ég held að öll þroskuð samfélög
þurfi á óeirðum að halda, en þær
þurfa að hafa einhvern farveg,“ seg-
ir Unnar.
Spurður hvar hann hafi leitað
heimilda segist Unnar hafa leitað
fanga víða. „Það er mjög djúpt á
þessum heimildum. Mikið af efninu
fann ég í Þjóðskjalasafninu og Borg-
arskjalasafni, en einnig komu gögn
frá lögreglunni sem lögð voru fram
sem sönnunargögn í sakadómi,“ seg-
ir Unnar og bendir í því sambandi á
meðfylgjandi mynd. „Hún er hluti af
opinberum gögnum, því hún var not-
uð til þess að sakfella mótmælendur
á sínum tíma fyrir dómi. Mér finnst
mjög áhugavert að skoða hvað gerist
með þessi gögn í tímans rás. Þau
voru notuð til þess að sakfella borg-
ara, en með tímanum fá þau annað
gildi og verða heimild um að atburð-
urinn hafi átt sér stað. Og það er
kannski grunnurinn í minni rann-
sóknarvinnu, hvernig heimildir fá
nýtt vægi og nýtt gildi og hætta þá
að snúast um einstaklinga og fara að
snúast um atburði í minni þjóðar.“
Sýningin er öllum opin á Flóru
mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og
laugardaga kl. 12-16. Sýningin
stendur til 20. október.
Orðræða óeirða skoðuð
Fyrsti hluti rannsóknar Unnars Arnar J. Auðarsonar myndlistarmanns snýr að
mótmælum í tengslum við inngöngu Íslands í Atlantshafsbandalagið árið 1949
Rúðubrot Ljósmynd úr skjalasafni tæknideildar rannsóknarlögreglunnar í Reykjavík frá miðri síðustu öld. Kross-
arnir sýna hvaða rúður voru brotnar í Alþingishúsinu í mótmælunum árið 1949 út af inngöngu Íslands í NATÓ.
Unnar Örn J.
Auðarson
Söngvarinn og
útvarpsmað-
urinn Bjarni
Arason mun
senda frá sér
plötu í byrjun
október með titl-
inum Elvis Gosp-
el. Á henni syng-
ur Bjarni
gospel-lög úr
safni rokkkon-
ungsins Elvis Presley.
Á plötunni leikur Jóhann Ás-
mundsson á bassa, Pétur Valgarð
Pétursson á gítar, Erik Qvick á
trommur, Gunnar Gunnarsson á
hammond og Örn Arnarson, Skarp-
héðinn Þór Hjartarson og Haf-
steinn Þórólfsson sjá um bakraddir.
Þá leikur Bjarni Arason á trompet,
Sigurður Flosason á flautu og Matt-
hías Stefánsson og Bryndís Halla
Gylfadóttir á strengjahljóðfæri.
Þórir Úlfarsson stýrir upptökum og
hljómsveit.
Elvis Gospel
með Bjarna
Bjarni
Arason
einstakt
eitthvað alveg
Skipholt 50A • sími: 581 4020
www.gallerilist.is
úrval einstakra málverka og listmuna
eftir íslenska listamenn
1987-2012