Morgunblaðið - 14.09.2012, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2012
Dúnn nefnist verk sem frumsýnt verður í
kvöld kl. 21 í Tjarnarbíói. Verkinu er lýst
sem dansverki, gjörningi, tónverki, ljós-
verki og leikriti og síðast en ekki síst sjón-
arspili. Höfundar og flytjendur verksins
eru þær Ásrún Magnúsdóttir og Berglind
Pétursdóttir en um hljóð og leikmuni sá
Áki Ásgeirsson og Ása Dýradóttir um útlit
og sviðsmynd.
„Umfjöllunarefnið stendur okkur mjög
nærri en við ákváðum að þessu sinni að
fjalla um tilvist mannsins og sólarinnar,“
segir í tilkynningu frá höfundum um verk-
ið. „Þetta tvennt tengist traustum böndum,
þegar við byrjuðum að fjalla um tilvistina
gátum við ekki látið sólina óafskipta. Til-
vistarstefnunni helguðum við sjö daga af
lífi okkar. Síðan byrjuðum við að misnota
hana. Sólin fékk 20 mínútur en við vissum
líka í grunninn hvað hún snýst um.
Þegar maður er að fjalla um stór mál-
efni verður maður að tengjast þeim vel.
Við urðum að gæta þess að vera almenni-
lega til staðar á þessu opna sári, plán-
etunni jörð og stara framan í sólina dag-
langt. Vonandi getið þið tengt. Þetta snýst
allt um það,“ segir ennfremur.
Ásrún og Berglind mynda tvíeykið Litl-
ar og Nettar en þær hafa fylgst að frá því
að þær kynntust í inntökuprófi í Listdans-
skólanum árið 2004, að því er fram kemur
á vefsíðu helgaðri Dúni. Þær stöllur hlutu
BA-gráður í samtímadansi frá Listahá-
skóla Íslands árið 2011 og hafa ákveðið að
vinna saman alla ævi, eins og segir á vefn-
um.
Dúnn Litlar og nettar, þær Ásrún Magnúsdóttir og Berglind
Pétursdóttir, flytja verkið Dún í Tjarnarbíói í kvöld.
Tilvist manns og sólar
Dansverk, gjörningur, tónverk, ljósverk, leikrit og sjón-
arspil í Tjarnarbíói Litlar og nettar höfundar verksins
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það eru mikil forréttindi fyrir leik-
ara að koma aftur að verki sem
þessu og fá að setja það aftur á
svið,“ segir Stefán Karl Stefánsson
sem ásamt Hilmi Snæ Guðnasyni
leikur í sýningunni Með fulla vasa af
grjóti eftir Marie Jones í leikstjórn
Ian McElhinney sem frumsýnd
verður á stóra sviði Þjóðleikhússins
annað kvöld kl. 20:30. Verkið var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í árslok
2000 og sýnt alls 180 sinnum fyrir
40 þúsund áhorfendur.
„Síðan eru liðin tíu ár og við
Hilmir höfum ekkert breyst,“ segir
Stefán Karl kíminn og áréttar svo
að vissulega sé sýningin nú nokkuð
breytt. „Við erum m.a. búnir að
stytta sýninguna um hálftíma og
slípa hana vel til með leikstjóranum
okkar honum Ian og Selmu Björns-
dóttur [aðstoðarleikstjóra], auk þess
sem gerðar hafa verið bæði áherslu-
og tempóbreytingar. En karakter-
arnir eru allir á sínum stað og öll
skemmtilegu atriðin sem fólk sá á
sínum tíma sem og riverdansinn
vinsæli,“ segir Stefán Karl.
Íslenskur raunveruleiki
Spurður hvort hann kunni ein-
hverja skýringu á vinsældum upp-
færslunnar á sínum tíma segir Stef-
án Karl það sennilega skýrast af því
að sýningin hafi þótt óvenjuleg. „Að
því leytinu til að við erum aðeins
tveir leikarar að leika sextán hlut-
verk af báðum kynjum, það er nán-
ast engin leikmynd og við skiptum
um karaktera fyrir framan andlitin
á fólki án þess að skipta um bún-
inga. Þetta er mjög áhrifarík aðferð
sem virkar, því með þessu móti má
virkja ímyndunarafl áhorfenda með
áhrifaríkum hætti.“
Að mati Stefáns Karls á verkið
sér mjög sterka skírskotun til sam-
tímans og passar að mörgu leyti
betur inn í íslenskan veruleika nú en
um síðustu aldamót. „Í raun má
segja að verkið gæti verið að gerast
hérlendis í dag, því verkið fjallar um
tvo aukaleikara sem leika í amer-
ískri stórmynd sem mynda á í litlu
samfélagi á borð við t.d. Borgarnes,
Seyðisfjörð eða Stykkishólm, og þar
sem öllu er umturnað fyrir tök-
urnar,“ segir Stefán Karl og bendir
á að verkið skoði einnig þær sið-
ferðilegu spurningar sem komi upp
við slíkar aðstæður.
En á Stefán Karl von á því að
verkið falli jafnvel í kramið hjá
áhorfendum núna og fyrir tíu árum?
„Já, við höfum ekki ástæðu til að
halda annað og miðasalan hefur far-
ið mjög vel af stað. Það er því um að
gera að tryggja sér miða í tíma, því
við erum aðeins með fimmtán sýn-
ingar planaðar á næstu vikum. Við
Hilmir eru síðan báðir á leið til út-
landa í önnur verkefni,“ segir Stef-
án Karl sem að sýningartímanum
loknum heldur aftur til Bandaríkj-
anna þar sem hann hefur verið bú-
settur síðustu árin og starfar.
„Ég er aðeins í stuttu stoppi hér-
lendis og ætti í raun að vera kominn
út aftur. En þegar mér bauðst tæki-
færi til að stíga á svið hérna á mín-
um gamla vinnustað, þá fannst mér
ekki koma annað til greina en að
stökkva á það. Það er æðislegt að
sjá öll gömlu andlitin og ekki síður
ný.“
„Forréttindi að koma
aftur að verkinu“
Með fulla vasa af grjóti frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
Fjölhæfir Leikararnir Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson
deila með sér sextán hlutverkum af báðum kynjum í sýningunni.
Rómaborg ætlar að heiðra RIFF,
Alþjóðlega kvikmyndahátíð í
Reykjavík, með því að halda kvik-
myndahátíð tileinkaða henni og Ís-
landi í seinni hluta október. Hátíðin
mun standa í fimm daga og verða
fimmtán kvikmyndir sýndar, nýjar
og nýlegar íslenskar myndir og úr-
val af erlendum sem sýndar verða á
hátíðinni í Reykjavík í ár.
RIFF hefst 27. september og lýk-
ur 7. október. Í tilkynningu frá
RIFF segir að boð Rómar sé mikil
viðurkenning fyrir hátíðina og
landkynning fyrir Ísland. Hátíðin í
Róm er haldin fyrir milligöngu Ítal-
ans Giorgio Gosetti en hann er dag-
skrárstjóri hjá RIFF og stjórnandi
Venice Days í Feneyjum.
Hátíð tileinkuð
RIFF haldin í Róm
Róm Hrönn Marínósdóttir stýrir RIFF.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gulleyjan – frumsýning í kvöld kl 19
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 14/9 kl. 20:00 3.k Sun 23/9 kl. 20:00 8.k Fim 4/10 kl. 20:00 aukas
Lau 15/9 kl. 20:00 4.k Fim 27/9 kl. 20:00 9.k Fös 5/10 kl. 20:00 13.k
Fim 20/9 kl. 20:00 5.k Fös 28/9 kl. 20:00 10.k Lau 6/10 kl. 20:00 14.k
Fös 21/9 kl. 20:00 6.k Lau 29/9 kl. 20:00 11.k Sun 7/10 kl. 20:00 15.k
Lau 22/9 kl. 20:00 7.k Sun 30/9 kl. 20:00 12.k
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Fös 14/9 kl. 19:00 frums Sun 23/9 kl. 16:00 5.k Sun 30/9 kl. 19:00 8.k
Lau 15/9 kl. 19:00 2.k Sun 23/9 kl. 19:00 aukas Lau 6/10 kl. 14:00 9.k
Sun 16/9 kl. 16:00 3.k Lau 29/9 kl. 14:00 6.k Sun 7/10 kl. 14:00 10.k
Lau 22/9 kl. 14:00 4.k Sun 30/9 kl. 16:00 7.k
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið)
Fös 28/9 kl. 20:00 frums Lau 6/10 kl. 22:00 4.k Lau 13/10 kl. 19:00 7.k
Lau 29/9 kl. 20:00 2.k Sun 7/10 kl. 20:00 5.k Lau 20/10 kl. 19:00 8.k
Lau 6/10 kl. 19:00 3.k Fös 12/10 kl. 19:00 6.k
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur
Rautt (Litla sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 frums Mið 26/9 kl. 20:00 4.k Lau 29/9 kl. 20:00 7.k
Lau 22/9 kl. 20:00 2.k Fim 27/9 kl. 20:00 5.k Sun 30/9 kl. 20:00 8.k
Sun 23/9 kl. 20:00 3.k Fös 28/9 kl. 20:00 6.k Mið 3/10 kl. 20:00 9.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 7/10 kl. 13:00 1.k Sun 14/10 kl. 13:00 2.k Sun 21/10 kl. 13:00 3.k
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 16/9 kl. 14:00 3.sýn Lau 13/10 kl. 14:00 AUKAS. Sun 28/10 kl. 14:00 15.sýn
Sun 16/9 kl. 17:00 4.sýn Lau 13/10 kl. 17:00 AUKAS. Sun 28/10 kl. 17:00 16.sýn
Sun 23/9 kl. 14:00 5.sýn Sun 14/10 kl. 14:00 11.
sýn
Sun 4/11 kl. 14:00 17.sýn
Sun 23/9 kl. 17:00 6.sýn Sun 14/10 kl. 17:00 12.sýn Sun 4/11 kl. 17:00 18.sýn
Sun 30/9 kl. 14:00 7.sýn Lau 20/10 kl. 14:00 AUKAS. Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn
Sun 30/9 kl. 17:00
TÁKNMÁL
Lau 20/10 kl. 17:00 AUKAS. Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn
Sun 7/10 kl. 14:00 9.sýn Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn
Sun 7/10 kl. 17:00 10.sýn Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn
Sýningar í október komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Afmælisveislan (Kassinn)
Fös 14/9 kl. 19:30 Fös 21/9 kl. 19:30
Lau 15/9 kl. 19:30 Lau 22/9 kl. 19:30
Þrenn Grímuverðlaun! Sýningum lýkur í september!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Lau 15/9 kl. 20:30 Frums Fim 27/9 kl. 20:30 6.sýn Fös 5/10 kl. 20:30 10.sýn
Fim 20/9 kl. 20:30 2.sýn Fös 28/9 kl. 20:30 7.sýn Lau 6/10 kl. 20:30 12.sýn
Fös 21/9 kl. 20:30 3.sýn Sun 30/9 kl. 20:30 8.sýn Sun 7/10 kl. 20:30 13. sýn.
Lau 22/9 kl. 20:30 5.sýn Fim 4/10 kl. 20:30 9.sýn
Sýningin sem sló öll aðsóknarmet aftur á svið. Sýnd í september og október.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Mið 7/11 kl. 19:30 Fim 15/11 kl. 19:30
Fim 8/11 kl. 19:30 Fös 16/11 kl. 19:30
Miðasala hafin. Aðeins þessar fjórar sýningar í nóvember.