Skinfaxi - 01.03.2013, Page 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Samningar undirritað
ir
í Vík og á Hornafirði
Þann 1. mars sl. voru
undirritaðir samning-
ar í Vík í Mýrdal vegna
3. Landsmóts UMFÍ 50+
á milli landsmóts-
nefndar og Mýrdals-
hrepps og Ungmenna-
félags Íslands og Ungmennasambands
Vestur-Skaftafellssýslu.
Aðstaða til að halda Landsmót UMFÍ
50+ í Vík í Mýrdal er mjög góð. Þar er
íþróttahús sem er sambyggt við sundlaug-
ina á staðnum. Góð frjálsíþróttaaðstaða er
þar einnig, með gerviefni, sem komið var
upp fyrir Unglingalandsmótið sem þar var
haldið 2005. Sparkvöllur er á staðnum
sem og tveir reiðvellir. Ennfremur er þar
glæsilegur 9 holu golfvöllur.
Keppnisgreinar á Landsmóti 50+ verða:
Almenningshlaup, frjálsar íþróttir, boccia,
golf, bridds, hestaíþróttir, hjólreiðar, leik-
fimi/dans, línudans, pútt, ringó, skák, sund,
starfsíþróttir, hringdansar, sýningar/leik-
fimi og þríþraut.
Vík í Mýrdal
Efri mynd: Frá undirritun samningsins í Vík í
Mýrdal. Frá vinstri: Elín Einarsdóttir, oddviti
Mýrdalshrepps, Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ, og Ragnheiður Högnadóttir,
formaður USVS.
Neðri mynd: Frá undirritun samningsins á Horna-
firði. Frá vinstri: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri,
Matthildur Ásmundardóttir, formaður USÚ, og
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
16. Unglingalandsmót
UMFÍ verður haldið á
Höfn í Hornafirði dag-
ana 2.–4. ágúst í sum-
ar. Þann 28. febrúar
voru undirritaðir
samningar á Horna-
firði vegna mótsins,
á milli unglingalandsmótsnefndar og
Sveitarfélagsins Hornafjarðar annars
vegar og Ungmennafélags Íslands og
Ungmennasambandsins Úlfljóts hins
vegar.
Þetta verður í annað sinn sem mótið er
haldið á Höfn en síðast var það haldið þar
árið 2007. Þar varð veruleg uppbygging
íþróttamannvirkja fyrir mótið 2007 og
hún hefur haldið áfram eftir það. Stór-
glæsileg sundlaug og stórt knattspyrnu-
hús hafa verið tekin í notkun.
Tjaldsvæðið, sem verður vel útbúið,
verður í göngufæri við aðalkeppnis-
svæðið. Unnið er að dagskrá mótsins og
mun hún birtast á heimasíðu þess þegar
nær dregur.
Eftirtaldar keppnisgreinar verða á dag-
skrá á mótinu á Höfn: Fimleikar, frjálsar
íþróttir, glíma, golf, hestaíþróttir, íþróttir
fatlaðra, knattspyrna, körfuknattleikur,
mótokross, skák, starfsíþróttir, sund og
karate.
Höfn í Hornafirði