Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2013, Síða 14

Skinfaxi - 01.03.2013, Síða 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Ungmennafélögin Stjarnan og Kefla- vík unnu bikarmeistaratitla í körfu- knattleik í úrslitaleikjum sem fram fóru í Laugardalshöll 16. febrúar sl. Stjarnan – Grindavík 91:79 Í karlaflokki lagði Stjarnan lið Grindvíkinga með sannfær- andi hætti, 91–79. Staðan í hálfleik var 47–39 fyrir Stjörn- una. Garðbæingar stóðu sig betur allan tímann og voru vel hvattir áfram af stuðningsmönnum sem fjöl- menntu á leikinn. Teitur Örlygsson, þjálf- ari Stjörnunnar, stýrði liðinu þarna í annað sinn til sigurs í bikarkeppninni. Þess má geta að Teitur, sem var á sínum tíma einn fremsti körfuboltamaður landsins, vann á sínum tíma bikarmeistaratitilinn sjö sinn- um sem leikmaður Njarðvíkinga. Keflavík – Valur 68:60 Sigurður Ingimundarson, þjálfari kvennaliðs Keflvík- inga, stýrði liði sínu til sigurs gegn Val, 68–60, eftir að stað- an í hálfleik var 38–17 fyrir Keflavík. Fátt benti til annars en að Keflavík myndi vinna öruggan sigur en Valsstúlkur voru ekki af baki dottnar og komu tvíefldar til leiks í síðari hálfleik. Suðurnesjaliðið náði afger- andi forystu í fyrri hálfleik en Valsstúlkur voru langt frá sínu besta. Hlíðarendaliðið sneri dæminu við í síðari hálfleik og saxaði jafnt og þétt á forskot Keflvíkinga. Spenna hljóp í leikinn en það voru Keflvíkingar sem reyndust sterkari og tryggðu sér átta stiga sigur. Þetta var 8. bikarsigur Sigurðar Ingi- mundarsonar sem þjálfara. Stjarnan og Keflavík bikarmeistarar Velkomin á 16. Unglingalandsmót UMFÍ Höfn í Hornafirði verslunarmannahelgina 2.–4. ágúst 2013

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.