Skinfaxi - 01.03.2013, Side 17
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 17
Þórarinn Hannesson, íþróttakennari við
Grunnskóla Fjallabyggðar og frjálsíþrótta-
þjálfari hjá Ungmennafélaginu Glóa, segir
krakkana vera mjög áhugasama og að þeir
leggi mikið á sig til að ná árangri.
Þórarinn er jafnframt formaður Glóa.
Stofnuðum Glóa 1994
„Ég kom hingað til Siglufjarðar haustið 1993
og vorið eftir stofnuðum við nokkrir saman
Ungmennafélagið Glóa. Við höfðum áhuga
á því að auka fjölbreytnina í íþróttalífinu á
Siglufirði og vorum þá aðallega með í huga
körfubolta og frjálsar íþróttir. Við hófum
frjálsíþróttaæfingar hér strax 1995, héldum
út í nokkur ár en svo datt þetta niður um
tíma. En við höfum haldið úti æfingum í
frjálsum íþróttum óslitið frá 2004. Við höfum
í gegnum tíðina gert töluvert að því að taka
þátt í mótum, minna á sumrin, því að þá fara
krakkarnir í fótboltann, en þess meira á vet-
urna. Þátttaka í Stórmóti ÍR hefur verið fastur
liður, Íslandsmótin og nokkur Unglingalands-
mót UMFÍ. Það hittir þannig á að mikið er að
gerast á Siglufirði um verslunarmannahelgar
en við reynum eins og kostur er að fara á
Unglingalandsmótin. Við förum líka mikið
á mót hér í kringum okkur, inn á Akureyri,
Sauðárkrók og á minni mót sem passar vel
fyrir okkar hóp,“ sagði Þórarinn Hannesson.
Nú eru krakkarnir
lengur heima
Aðspurður hvort krakkarnir haldi áfram
frjálsíþróttaiðkun þegar þau þurfa að heim-
an vegna náms sagði Þórarinn svo vera í ein-
hverjum tilfella. Þórarinn sagði að nú væru
krakkarnir lengur heima með tilkomu
Menntaskólans á Tröllaskaga og það væri
virkilega gaman.
„Við ætlum í kjölfar þessa að fara að bæta
við æfingum og koma þannig í meira mæli
til móts við eldri iðkendur hjá okkur. Við höf-
um fram að þessu verið með iðkendur í ein-
um hóp en á næsta ári er markmiðið að tví-
skipta þeim og fylgja þeim lengur en gert
hefur verið til þessa. Það verður mjög spenn-
andi,“ sagði Þórarinn.
Mörg félög og margar
greinar stundaðar
– Hefur ekki alltaf verið mikill íþróttaáhugi á
Siglufirði?
„Jú, því er ekki að neita. Hér eru mörg félög
og margar greinar stundaðar en knattspyrn-
an hefur alltaf verið sterk. Skíðin voru það
lengi, döluðu um tíma, en eru á uppleið aftur.
Badmintonstarfið hefur alltaf verið gott og
stundað mikið í gegnum tíðina. Það hefur
alltaf verið sterk hefð fyrir badminton en öfl-
ugir aðilar hér hafa búið vel um hnútana og
hlúð vel að starfinu. Svo erum við með golf
og hestaíþróttir. Í eldri flokknum erum við
með öldungablak sem er mjög öflugt og
mikið stundað.“
Ótrúlegir hlutir með
nánast enga aðstöðu
Hvað aðstöðuna áhrærir segir Þórarinn að á
Siglufirði sé ágætt íþróttahús sem boltahús.
Svo er minni íþróttasalur sem er góður til að
kenna í og leiðbeina yngri börnunum. Þokka-
legur knattspyrnuvöllur er í bænum en engin
frjálsíþróttaaðstaða.
„Unnið er að því að gera frjálsíþróttasvæði
þar sem sett yrði upp almennileg langstökks-
braut og betri kasthringir en annað er ekki í
bígerð. Það má því segja að við séum að gera
ótrúlega hluti í frjálsum íþróttum með nánast
enga aðstöðu. Við notumst við inniaðstöðu
og svo á túnum á sumrin en það er samt ekki
allt unnið með góðri aðstöðu í öllum tilfell-
um. Krakkarnir eru ótrúlega duglegir og eru
að gera flotta hluti á mótum sem þau taka
þátt í,“ sagði Þórarinn.
Þórarinn sagði það mikið ævintýri fyrir
krakkana að koma suður og keppa við jafn-
aldra sína í Frjálsíþróttahöllinni. Hann segir
óneitanlega langt að fara og að mikill tími
fari í að undirbúa keppnisferðir.
„Ég var afskaplega ánægður með frammi-
stöðu þeirra á meistaramótinu 11–14 ára.
Þau hafa alltaf staðið sig vel þegar maður
hefur farið með þau í æfinga- og keppnis-
ferðir. Flestallir krakkarnir æfa fleiri en eina
grein svo að það er nóg að gera hjá þeim.
Það þarf stundum að velja og hafna. Ég
mjög stoltur af þeim,“ sagði Þórarinn.
Aðspurður hvað sé fram undan sagði Þór-
arinn á dagskránni að halda innanfélagsmót
í mars og svo verði farið á mót inn á Akureyri
í apríl.
„Ég sé bara framtíðina bjarta í íþróttamál-
um á Siglufirði. Það er loksins að verða við-
snúningur hvað fólksfjölgun varðar en eftir
henni erum við búin að bíða lengi. Það er
heilmikil uppbygging í ferðaþjónustu og fjöl-
breytnin í atvinnulífinu er að aukast þannig
að mikið af ungu fólki snýr aftur. Krakkar, sem
ég var að kenna fyrst eftir að ég kom hingað,
eru nú að koma heim með börnin sín. Ég
held því að óhætt sé að segja að bjart sé
fram undan hjá okkur á Siglufirði. Við erum
búin að fá Héðinsfjarðargöngin og Mennta-
skólann á Tröllaskaga og mannlífið er gott,“
sagði Þórarinn Hannesson.
Þórarinn Hannesson, frjálsíþróttaþjálfari hjá Ungmennafélaginu Glóa:
Ég er stoltur af krökkunum
Keppendur frá Ung-
mennafélaginu Glóa
á Siglufirði á Meist-
aramóti Íslands 11–14
ára náðu frábærum
árangri og komu heim
með fern verðlaun, þrjú
brons og eitt silfur. Mótið er
ekki aðeins einstaklingskeppni heldur
einnig stigakeppni milli félaga og varð
Glói í 11. sæti af 20 félögum og héraðs-
samböndum sem áttu keppendur á
mótinu.
Keppendur frá Glóa kepptu alls í 14
greinum og í níu þeirra höfnuðu þau
meðal tíu efstu og komust á pall í fjórum
þeirra. Ekki slæm tölfræði það.
Björgvin Daði Sigurbergsson stóð sig
sérstaklega vel á mótinu, keppti í sex
greinum, vann til þriggja bronsverðlauna
og bætti afrek sín í nokkrum greinum.
Unnur Hrefna Elínardóttir kom skemmti-
lega á óvart með því að kasta til silfur-
verðlauna í kúluvarpi í flokki 11 ára
stúlkna og Elín Helga náði best 6. sæti í
kúluvarpi í sínum aldursflokki.
Með tilkomu Menntaskólans
á Tröllaskaga ætlum við að
bæta við æfingum og koma
þannig í meira mæli til móts
við eldri iðkendur hjá okkur.
Þórarinn Hannes-
son, íþróttakennari
við Grunnskóla
Fjallabyggðar og
frjálsíþróttaþjálf-
ari hjá Ungmenna-
félaginu Glóa.