Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.2013, Side 28

Skinfaxi - 01.03.2013, Side 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Aðalfundur Ungmennafélags Akureyr- ar, UFA, var haldinn í Brekkuskóla 28. febrúar sl. Fundurinn var ágætlega sóttur og mikill hugur í UFA-fólki. Á fundinum kom fram að undirbúning- ur er þegar hafinn fyrir Unglingalands- mótið sem verður haldið á Akureyri 2015. Gunnar Gíslason var endurkjör- inn formaður UFA. Í dag eru 505 skráð- ir félagsmenn í UFA, þar af 215 iðk- endur í þremur deildum félagsins. Starfið hjá okkur er á blússandi siglingu „Fundurinn gekk í alla staði vel. Ég get ekki sagt annað en að starfið hjá okkur sé á blússandi siglingu. Það hefur verið sérlega gaman að fylgjast með frjálsíþróttafólkinu okkar sem hefur staðið sig frábærlega vel. Annað starf gengur líka vel og það er bjart fram undan hjá okkur. Það fer alltaf Gunnar Gíslason, formaður Ungmennafélags Akureyrar: Þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn mikill tími í að afla meira fjár til starf- seminnar en það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn í þeim efnum, við munum halda okkar striki,“ sagði Gunnar Gíslason, formaður Ung- mennafélags Akureyrar. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir sæmd starfsmerki UMFÍ Baldur Daníelsson, sem á sæti í vara- stjórn UMFÍ, ávarpaði fundinn og flutti kveðjur frá stjórn og starfsfólki UMFÍ. Baldur benti á helstu verkefni á vegum UMFÍ og ræddi um það að gildi ungmennafélagshreyfingarinnar ættu svo sannarlega erindi til fólks í dag. Einnig kynnti Baldur stuttlega starfsemi Ungmenna- og tómstunda- búðanna á Laugum í Sælingsdal. Baldur sæmdi Aðalbjörgu Hafsteins- dóttur starfsmerki UMFÍ fyrir frábær störf. Baldur Daníelsson sæmir Aðalbjörgu Hafsteins- dóttur starfsmerki UMFÍ á aðalfundi Ungmennafélags Akureyrar. Aðalfundur Ungmennafélags Kjalnes- inga var haldinn í Fólkvangi á Kjalar- nesi 7. mars sl. Stefán Skafti Steinólfs- son, stjórnarmaður í UMFÍ, flutti ávarp á fundinum. Magnús Ingi Magnússon gaf ekki kost á sér áfram til formennsku og var Guðrún Dögg Gunnarsdóttir kosin í hans stað. Reyndar hafði Guðrún Dögg gegnt formennsku frá því í september. „Þetta var málefnalegur fundur og ný stjórn kosin. Starfsemin hjá okkur gengur vel en iðkendur í dag eru komnir yfir eitt hundrað og þeim hefur fjölgað jafnt og þétt á síðustu tveimur árum. Hjá félaginu eru stundaðar frjáls- ar íþróttir, íþróttaskóli fyrir yngstu iðk- endurna, sund og svokölluð heilsu- rækt fyrir unglingana. Við vorum áður með knattspyrnu en tókum hana af dagskrá á sl. hausti vegna þess hve Guðrún Dögg Gunnarsdóttir, nýkjörin formaður UMFK: Iðkendum hefur fjölgað jafnt og þétt iðkendur voru orðnir fáir. Við ætlum að halda áfram því starfi sem unnið hefur verið á undanförnum árum en reyna jafnframt að fá fleira fólk til að taka þátt í starfinu. Hér er starfandi íþróttafulltrúi, sem vinnur afar gott og drífandi starf. Í vor verður félagið 75 ára og þeirra tímamóta verður minnst með einhverjum hætti,“ sagði Guðrún Dögg Gunnarsdóttir, nýkjörin formaður UMFK. Núverandi stjórn félagsins er þannig skipuð: Guðrún Dögg Gunnarsdóttir, formaður, Birna Ragnarsdóttir, vara- formaður, Íris Fjóla Bjarnadóttir, gjald- keri, Sigrún Jóhannsdóttir ritari. Með- stjórnandi er Arnar Grétarsson. Vara- menn eru Soffía Sóley Þráinsdóttir, Málfríður Kristín Ólafsdóttir og Svan- hvít Jóhannsdóttir. Guðrún Dögg Gunnarsdóttir, formaður UMFK, á Meistaramóti Íslands í frjálsum 11–14 ára. Stjórn Héraðssambands Vestfjarða, HSV, ákvað á fundi sínum síðla í janúar að ráða Pétur Georg Markan sem framkvæmdastjóra HSV. Pétur Georg er með B.A. próf í guðfræði ásamt því að vera í meistaranámi í opin- berri stjórnsýslu við HÍ. Pétur hefur mikla reynslu og áhuga á íþróttum, en þekkt- astur er hann eflaust þessa dagana fyrir að vera fyrirliði meistaraflokks BÍ/Bolungarvíkur í knatt- spyrnu. Pétur Georg hefur alla þá eiginleika sem stjórn óskaði eftir í nýjum framkvæmdastjóra og býður hann velkominn til starfa. Pétur Georg hóf störf 1. febrúar sl. Pétur Georg starfar sem umsjónarkennari í Súðavík og mun hann sinna kennslu samhliða störf- um sem framkvæmdastjóri fram á vor. Pétur Georg Markan, framkvæmdastjóri Héraðssambands Vestfjarða. Nýr framkvæmdastjóri hjá HSV

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.